Handbolti

Ingi­mundur: Þetta er bara della

Ester Ósk Árnadóttir skrifar
Ingimundur var á sínum tíma fastamaður í íslenska landsliðinu. Hann var mættur í vörn Þórs í dag.
Ingimundur var á sínum tíma fastamaður í íslenska landsliðinu. Hann var mættur í vörn Þórs í dag. DIENER/LEENA MANHART

Ingimundur snéri á völlinn aftur í dag en hann hefur ekki spilað í nokkur ár. Hann spilaði að vísu nokkrar mínútur á móti Fram í síðasta leik en í dag stóð hann í miðju varnar Þórs allan leikinn á móti nágrönnunum sínum í KA.

KA vann leikinn með tveimur mörkum og enduðu leikar 19-21.

„Ég veit það ekki. Þetta er bara della. Það virðist vera erfitt að rífa sig frá handboltanum. Um áramótin var fjölgað í hópunum og við sáum það sem tækifæri að koma mér inn í hópinn. Svo æxlaðist þetta bara svona í dag. Þetta er bara gaman og meðan að þeir vilja hafa mann inn á vellinum þá er ég alveg klár í það.“

Spurður út í það hvort hann eigi eftir að spila meira á það eftir að koma í ljós.

„Það veltur í raun á þjálfurunum og þann tíma sem maður hefur aflögu til að sinna þessu. Maður hefur kannski ekki sama tíma og áður. Undurbúningurinn hefur t.d. ekki verið hefðbundin og ákjósanlegur fyrir leikinn í dag en maður tekur þetta þá meira á gleðinni. Meðan þjálfarar og leikmenn telja að ég hafi eitthvað fram að færa þá er það bara fínt og ég er klár.“

Eins og áður sagði unnu KA menn Þór í dag en leikur var spennandi fram á síðustu sekúndu.

„Tölurnar tala bara sínu máli. Þetta var fremur hægur leikur að mestu leiti. Sóknarleikurinn var ekki góður hjá okkur. 21-19 er ekki há markatala í nútíma handbolta en við þurfum að auka hraðann í sókinni og hafa betri tímasetningar. Við þurfum að vera útsjónasamari og klókari í leikjunum sem eru framundan.“

Þór er í næst neðsta sæti deildarinnar með fjögur stig, þremur stigum frá öruggu sæti.

„Ég er svo sem bara nýkominn inn í þetta. Ef að það væri lengra liðið á deildina þá væri maður kannski orðinn stressaður en það er nóg eftir af þessu móti. Það er mjög þétt spilað, deildin er þétt og þetta getur breyst mjög snögglega. Við þurfum bara að halda áfram og finna lausnir í okkar leik til þess að bæta.“


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×