Keflavík einum sigri frá úrslitum

Sara Rún Hinriksdóttir úr Keflavík sækir að Elísabetu Ólafsdóttur úr …
Sara Rún Hinriksdóttir úr Keflavík sækir að Elísabetu Ólafsdóttur úr Stjörnunni. mbl.is/Árni Sæberg

Keflavík þarf einn sigur til viðbótar gegn Stjörnunni í einvígi liðanna í undanúrslitum Íslandsmóts kvenna í körfubolta eftir heimasigur í þriðja leik liðanna í kvöld, 87:78.

Stjarnan var yfir nánast allan tímann, en Keflavík þó aldrei langt undan. Var staðan 35:31 fyrir Stjörnuna í hálfleik og 58:57 fyrir fjórða og síðasta leikhlutann.

Þá tók Keflavík við sér, skoraði hverja þriggja stiga körfuna á fætur annarri og tryggði sér endurkomusigur.

Það lið sem fyrr vinnur þrjá leiki í einvíginu mætir Grindavík eða Njarðvík í úrslitum.

Anna Ingunn Svansdóttir var stigahæst hjá Keflavík með 17 stig. Komu flest þeirra úr þriggja stiga skotum undir lokin. Sara Rún Hinriksdottir kom næst með 16 stig.

Denia Davis-Stewart átti stórleik fyrir Stjörnuna, skoraði 30 stig og tók 23 fráköst. Katarzyna Trzeciak gerði 22 stig.

Fjórði leikur liðanna fer fram í Garðabænum á fimmtudaginn kemur.

Lýsing uppfærist sjálfkrafa

Allar lýsingar í beinni

Keflavík 85:78 Stjarnan opna loka
99. mín. skorar
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert