Úr Vestmannaeyjum á Hlíðarenda

Hanna Kallmaier leikur með Val í Bestu deildinni á komandi …
Hanna Kallmaier leikur með Val í Bestu deildinni á komandi keppnistímabili. mbl.is/Kristinn Magnússon

Knattspyrnukonan Hanna Kallmaier er gengin til liðs við Íslands- og bikarmeistara Vals á Hlíðarenda.

Þetta tilkynnti Valur á samfélagsmiðlum sínum í dag en Hanna, sem er 29 ára gömul, kemur til félagsins frá ÍBV þar sem hún hefur leikið frá árinu 2020.

Miðjumaðurinn skrifaði undir samning sem gildir út keppnistímabilið 2023 en alls á hún að baki 50 leiki í efstu deild þar sem hún hefur skorað fjögur mörk.

Hanna er frá Þýskalandi en kemur til liðsins frá ÍBV þar sem hún hefur leikið við góðan orðstír frá árinu 2020,“ segir meðal annars í tilkynningu Vals.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert