Fimmta sinn í sögu tólf liða deildar sem titillinn vinnst í lokaumferðinni Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 24. september 2021 15:31 Valsmenn eru síðasta liðið til að vinna Íslandsmeistaratitilinn í lokaumferðinni en hér fagna Valsarar sigri sínum árið 2018. Vísir/Bára Dröfn Úrslitin ráðast í Pepsi Max deild karla í lokaumferðinni á morgun en það er ekki á hverju ári sem Íslandsmeistaratitilinn vinnst ekki fyrr en í síðasta leik.
Þetta verður aðeins í fimmta sinn í fjórtán ára sögu tólf liða deildar þar sem við vitum ekki hver verður Íslandsmeistari fyrr en eftir lokaumferðina. Árin 2018, 2014, 2010 og 2008 réðust úrslitin einnig í lokaumferð úrvalsdeildarinnar. Síðast gerðist þetta fyrir þremur árum, haustið 2018, þegar Valsmenn voru með tveggja stiga forystu á Breiðablik fyrir lokaumferðina en fengu þá langneðsta lið deildarinnar í heimsókn. Valur vann öruggan 4-1 sigur á Keflavík í lokaleiknum eftir að hafa komist í 3-0 á fyrstu tuttugu mínútunum. Fjórum árum fyrr fengum við ótrúlegan úrslitaleik á milli FH og Stjörnunnar um Íslandsmeistaratitilinn í Kaplakrika 4. október 2014. FH var á heimavelli, nægði jafntefli og FH-ingum tókst að jafna metin eftir að Stjarnan komst yfir í fyrri hálfleik. Ólafur Karl Finsen fékk síðan umdeilt víti í uppbótartíma og skoraði úr því sigurmarkið í leiknum og markið sem tryggði Stjörnunni Íslandsmeistaratitilinn. Breiðablik tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn í lokaumferðinni 2010 en þrjú lið áttu þá möguleika á að vinna titilinn. Breiðablik var með eins stigs forskot á ÍBV og tveggja stiga forskot á FH. Það nægði Blikum að gera markalaust jafntefli á útivelli á móti Stjörnunni því ÍBV tapaði á sama tíma 4-1 í Keflavík og þrátt fyrir 3-0 sigur FH á Fram í Laugardalnum þá náðu FH-ingar ekki að vinna upp markamuninn sem Blikar höfðu á þá. Blikar urðu því Íslandsmeistarar á markatölu. Á fyrsta tímabili tólf liða deildar, árið 2008, þá réðust einnig úrslitin í lokaumferðinni. Keflavík var með tveggja stiga forskot á FH fyrir lokaumferðina og nægði sigur á Fram á heimavelli til þess að tryggja sér titilinn í fyrsta sinn í 35 ár. Keflavík komst í 1-0 í leiknum en tapaði síðan leiknum 2-1 þar sem Hjálmar Þórarinsson skoraði sigurmark Fram tíu mínútum fyrir leikslok. FH vann á sama tíma 2-0 sigur á Fylki í Árbæ og tryggði sér með því Íslandsmeistaratitilinn.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið „Þetta er töfrum líkast“ Fótbolti Romário tekur fram skóna til að spila með syninum Fótbolti Real sló meistarana úr leik eftir vítakeppni Fótbolti „Ég get ekki fundið réttu orðin“ Fótbolti „Við bara fóðruðum dýrið og dýrið borðaði“ Körfubolti Kimmich tryggði Bayern sæti í undanúrslitum Fótbolti „Sem betur fer var leikurinn bara 40 mínútur í dag“ Körfubolti Uppgjör, viðtöl og myndir: Haukar - Stjarnan 80-78 | Haukasigur eftir dramatík Körfubolti „Þær skoruðu full auðveldlega á okkur í dag“ Körfubolti Þróttarar kjósa um nýtt merki Íslenski boltinn Fleiri fréttir Þróttarar kjósa um nýtt merki Spáin segir að Valur verji titilinn Amanda verður best og FH-ingar grófastir Besta-spáin 2024: Ætla að gera falldrauginn afturreka úr Árbænum Svona var kynningarfundur Bestu deildar kvenna Niðurstöðu að vænta í máli Arnars og KA eftir mánuð Besta-spáin 2024: Blóðtakan of mikil Heimir Guðjóns og Óskar Hrafn hafa báðir látið Hallgrím heyra það „Vorum að spila á móti besta liði landsins“ Uppgjör og viðtal: Valur - Víkingur 1-1 | Bikarmeistar Víkings Meistarar meistaranna Þór/KA fær Bryndísi á láni frá Íslandsmeisturum Vals Besta byrjun Íslandsmeistara í átta ár Biðin eftir fyrsta leiknum á grasi lengist Óskar Örn jafnaði met Gunnleifs Pressa á Hallgrími: „Áttu að þurfa að segja þetta við leikmenn?“ Gummi Ben: Hann fær boltann í lærið Jóhann Ingi Vill vera jafn iðinn við kolann og Olga Færseth Sjáðu sigurmark Víkinga og mark Framara sem var dæmt af „Djöfull hlýtur að vera óþolandi að spila á móti þessum gaur“ „Allir sem eru búnir að sjá þetta aftur segja mér hvernig þetta hefði átt að vera“ Uppgjörið og viðtal: Fram - Víkingur 0-1 | Íslandsmeistararnir áfram með fullt hús Hefur varið helming vítanna sem hann hefur reynt við í Bestu Arnar hefur ekki tapað fyrir Rúnari í meira en þrjú ár Valur og FH mætast í bikarnum en meistararnir fá heimsókn úr Garði KR-ingar meira en tíu klukkutímum fljótari í sjö mörkin í ár Allir vinir í skóginum: Sameiginlegt Fan Zone fyrir fyrsta leik Nadíu með Val Sjáðu þrennu Viktors og vítavörsluna sem bjargaði Val „Gott að verja frá svona góðum fótboltamanni“ „Margar fínar stöður sem við náum ekki að nýta“ Uppgjörið: Fylkir - Valur 0-0 | Markverðirnir í aðalhlutverki í Lautinni Sjá meira