Segja lendinguna á tunglinu hafa heppnast Samúel Karl Ólason skrifar 1. desember 2020 16:02 Chang'e 5 var skotið á loft á miðvikudaginn. AP/Mark Schiefelbein Yfirvöld í Kína segja að lending kínversks geimfars á tunglinu hafi heppnast. Geimfarið, sem kallast Chang'e 5, á að safna mánasteinum og flytja þá aftur til jarðarinnar.
Þetta er í þriðja sinn sem Kína lendir fari á yfirborði tunglsins. Chang'e 5 var skotið á loft á miðvikudaginn með Long March 5 eldflaug. Farið á að sækja tvö til fjögur kíló af bergsýnum í Stormhafinu. Sá hluti Stormhafsins sem farið lenti á hefur aldrei verið heimsóttur áður. Bergsýnin eiga að gefa vísindamönnum betri hugmynd um hvernig tunglið myndaðist og þróaðist, hversu lengi það var jarðfræðilega virkt og hvenær segulsvið þess fjaraði út. Sjá einnig: Kínverjar ætla sér að sækja mánasteina Á næstu dögum stendur til að nota vélarm á geimfarinu til að grafa upp bergsýnin og verður þeim komið fyrir í geymslu á geimfarinu sjálfu. Það situr í raun á eldflaug sem á svo að skjóta því á loft í annað sinn. Annar hluti geimfarsins bíður svo á braut um tunglið og eiga þau að tengjast og setja stefnuna aftur til jarðar. Takist verkefnið verður Kína þriðja ríkið til að flytja mánasteina til jarðarinnar, á eftir Bandaríkjunum og Sovétríkjunum. This video broadcast by China s state-run CCTV network appears to show Chang e 5 s landing on the moon.Landing was expected to occur at 10:13am EST (1513 GMT). We re standing by for further information from China.https://t.co/8AYSFU3dXE pic.twitter.com/SkFcIIUx0e— Spaceflight Now (@SpaceflightNow) December 1, 2020 Ekki liggur fyrir hvenær til stendur að lenda Chang'e 5 aftur en það gæti verið um miðjan mánuðinn. Chang'e 5 er ekki eina geimfarið sem mun mögulega flytja sýni frá öðrum hnetti til jarðarinnar í þessum mánuði. Vísindamenn Geimvísindastofnunar Japan stefna að því að lenda geimfarinu Hayabusa2 um helgina. Það geimfar hefur verið á ferðinni frá 2014. Í apríl í fyrra var það notað til að varpa sprengju á smástirnið Ryugu svo hægt væri að safna sýnum. Markmiðið er að varpa ljósi á uppruna vatns og lífs á jörðinni og veita vísindamönnum aukinn skilning á uppruna sólkerfisins. Ryugu er talið vera um 4,6 milljarða ára gamalt og mun það vera að mestu úr kolefni. Talið er að þar megi einnig finna vatn.
Kína Geimurinn Japan Tunglið Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Það er norskur sigur í dag“ Innlent Íslendingur í gæsluvarðhaldi vegna Hamraborgarmálsins Innlent Halla vill skikka ungmenni í samfélagsþjónustu Innlent Betra að fá óþægilegu málin fram fyrr en seinna Innlent Búinn að skila inn undirskriftum eftir „óvenjulegan“ frest Innlent Hafa engin varnarvirki til að hörfa í Erlent Hundruð lögreglumanna í viðbragðsstöðu vegna mótmæla í UCLA Erlent Friðrik skipaður sendiherra í Póllandi Innlent Eldur í ruslageymslu í Hafnarfirði Innlent Ný skoðanakönnun á morgun og Pallborð klukkan 14 Innlent Fleiri fréttir Enn í basli skemmdir á hitaskildi Orion Vornanen kastað úr þingflokknum Hafa engin varnarvirki til að hörfa í Yfirstandandi kosningar á Englandi prófsteinn fyrir Íhaldsflokkinn Viðbrögð Hamas við vopnahléstillögunum „neikvæð“ Hundruð lögreglumanna í viðbragðsstöðu vegna mótmæla í UCLA Vilja endurupptöku í máli Weinstein Þrjú hundruð handtekin í Columbia-háskóla Stuðningur við dönsku ríkisstjórnina aldrei verið minni Mótmælendur og gagnmótmælendur tókust á Trump sektaður um meira en milljón króna Rússar sagðir nota skotflaugar frá Norður-Kóreu Þrettán ára drengur stunginn til bana með sverði Særði minnst fimm með sverði í Lundúnum Íslendingur sem lúbarði lögreglumenn í Varsjá þarf að borga brúsann Fjórir lögreglumenn skotnir til bana í Charlotte Rostungur sem fannst í fyrra drapst af völdum fuglaflensu Hvetur Hamas til að ganga að rausnarlegum tillögum Ísrael Flugvöllur Færeyinga fær að taka við stærri þotum Yousaf segir af sér sem ráðherra og formaður Skoska þjóðarflokksins Sánchez hættir við að segja af sér Grafið undan fjölmiðlafrelsinu víða í Evrópu Vopnahlé í sjónmáli? Tveir látnir eftir að bíll hafnaði í sjónum við Stokkhólm Fjölmenn mótmæli vegna ofbeldisbylgju í Ástralíu Vasaúr ríkasta manns Titanic seldist á 210 milljónir Þúsundir hvöttu Sánchez til að segja ekki af sér Skoða að færa Mónu Lísu í eigið herbergi Harvey Weinstein lagður inn á spítala Þingmaður hleypti af skoti fyrir utan skemmtistað Sjá meira