Fleiri fóru yfir Ermarsundið í dag og tala látinna hækkar Samúel Karl Ólason skrifar 25. nóvember 2021 16:38 Nýlegar grafir farand- og flóttafólks í Calais í Frakklandi. AP/Rafael Yaghobzadeh Fleiri Farand- og flóttamenn hafa lagt leið sína yfir Ermarsundið við erfiðar aðstæður í dag. Það er degi eftir að minnst 27 drukknuðu eftir að loftið fór úr slöngubát þeirra á Ermarsundinu. Meðal þeirra sem dóu voru ólétt kona og minnst þrjú börn.
Tveir sem voru um borð í bátnum eru í alvarlegu ástandi á sjúkrahúsi í Frakklandi vegna ofkælingar, samkvæmt frétt BBC. Annar þeirra er frá Írak og hinn er frá Sómalíu. Eitt lík til viðbótar fannst í dag en ekki liggur fyrir hvort viðkomandi hafi verið um borð í bátnum sem fórst í gær eða einhverjum öðrum. BBC segir fimm hafa verið handtekna vegna slyssins í gær og hafa saksóknarar í Frakklandi opnað manndráps-rannsókn vegna dauðsfallanna. Í dag náðu um 40 farand- og flóttamenn í land við Dover en aðstæður á svæðinu voru nokkuð erfiðar. Kalt er í veðri og nokkur vindur en hann varð öflugri seinni partinn og hætti fólk við að reyna að fara yfir Ermarsundið. Hér má sjá stutta sjónvarpsfrétt Sky News þar sem meðal annars má sjá mynd sem sögð er vera af bátnum sem fórst í gær. Yfirvöld í Bretlandi hafa heitið því að fara í harðar aðgerðir gegn smyglurum sem flytji fólk yfir Ermarsundið. Talið er að þeir taki um þrjú þúsund pund fyrir að koma einni manneskju um borð í báta. Það samsvarar rúmum fimm hundruð þúsund krónum. Priti Patel, innanríkisráðherra Bretlands, mun ræða við Gerald Darmanin, innanríkisráðherra Frakklands í dag, og ætlar Patel að bjóða Frökkum mikla aðstoð við að herja á smyglara. Frakkar segjast ætla að auka öryggi við Ermasundið. Sky News hefur eftir Darmanin að mun meiri samvinnu ríkja á milli sé þörf. Ekki bara frá Bretum heldur einnig frá Belgíu og Þýskalandi. Þar þurfi ráðamenn einnig að beita sér gegn smyglurum og koma að málefnum farand- og flóttafólks. Í annarri frétt Sky segir að það sé gífurlega auðvelt að finna smyglara sem flytja fólk yfir Ermarsundið. Nóg sé í mörgum tilfellum að skrifa leita með orðinu „smyglari“ á samfélagsmiðlum. Auglýsingar um leiðir inn í Evrópu og Bretland séu iðulega auglýstar á samfélagsmiðlum.
Bretland Flóttamenn Frakkland Evrópusambandið Tengdar fréttir Hittast á neyðarfundi vegna dauðsfalla flóttafólks á Ermarsundi Franska ríkisstjórnin hittist í dag á neyðarfundi til að ræða málefni flóttafólks, eftir að 27 drukknuðu í gær á Ermarsundi við að reyna að komast til Bretlands. 25. nóvember 2021 07:25 Tugir flóttamanna fórust á Ermarsundi í morgun Að minnsta kosti þrjátíu flóttamenn létu lífið á Ermarsundi eftir að bátur þeirra sökk nærri Calais í Frakklandi. Um fimmtíu voru um borð í bátnum og einhverra er enn leitað. Aldrei hafa fleiri flóttamenn látið lífið á Ermarsundi. 24. nóvember 2021 21:47 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Biðst afsökunar á að hafa kallað skemmdarvarginn „fífl“ Innlent Segja valdarán framið og kirkju aðventista klofna Innlent Berst gegn kvíaeldi á jörð sem hann telur sína Innlent Grunaður um að hafa ráðið konu sinni bana Innlent Óttast mikinn skaða sem seint yrði fyrirgefinn Innlent Steinunn Ólína skýtur föstum skotum á Katrínu Innlent Segja baráttuna bara rétt að hefjast Innlent Gera alvarlegar athugasemdir við verðlaunakerfi Tik Tok Erlent Tíðni manndrápa í takt við fjölgun mannfjölda Innlent Undirbúa stærðarinnar sendingar til Úkraínu Erlent Fleiri fréttir Umdeildur flutningur á hælisleitendum til Rúanda samþykktur Starfsmaður hægrijaðarflokks handtekinn fyrir njósnir fyrir Kína Gera alvarlegar athugasemdir við verðlaunakerfi Tik Tok Tugir handteknir á mótmælum háskólanema gegn aðgerðum Ísraels Undirbúa stærðarinnar sendingar til Úkraínu Engin sönnunargögn bendla UNRWA við árásina Hættu við umfangsmiklar árásir á Íran Sakaði Trump um að reyna að spilla kosningunum 2016 Dæmdu samskiptastjóra Meta fyrir að „verja hryðjuverk“ Modi sakaður um múslimaandúð í miðjum kosningum Dregur úr vinnu og verkefnum Evrópa hlýnar hraðast heimsálfanna Duda segir Pólverja reiðubúna til að geyma kjarnorkuvopn Segir af sér vegna mistaka í kringum árás Hamas Rallýbíll ók á áhorfendur á Sri Lanka Ísraelar æfir yfir fyrirhuguðum þvingunum á Netzah Yehuda herdeildina Ríki heims verja metupphæðum til hermála Kynferðisafbrotamanni bannað að nota gervigreind Varnarmál efst á baugi nýs formanns Ætla að endurreisa Børsen „sama hvað“ Frumvarp um bann við TikTok samþykkt Heita Úkraínu 61 milljarði dala í stuðning Tugir þúsunda mótmæltu fjölda ferðamanna á Kanaríeyjum Sprengjuhótun í Billund Maðurinn sem kveikti í sjálfum sér látinn Íkveikjan ekki talin hafa beinst að Trump eða réttarhöldunum Kveikti í sér fyrir utan dómshúsið þar sem réttað er yfir Trump Fyrstu loftárásir Ísraela í Íran frá 1979 Fengu aðstoð Demókrata við að koma hernaðaraðstoð úr nefnd Hefur mátt sitja undir svívirðingum um sjálfan sig Sjá meira
Hittast á neyðarfundi vegna dauðsfalla flóttafólks á Ermarsundi Franska ríkisstjórnin hittist í dag á neyðarfundi til að ræða málefni flóttafólks, eftir að 27 drukknuðu í gær á Ermarsundi við að reyna að komast til Bretlands. 25. nóvember 2021 07:25
Tugir flóttamanna fórust á Ermarsundi í morgun Að minnsta kosti þrjátíu flóttamenn létu lífið á Ermarsundi eftir að bátur þeirra sökk nærri Calais í Frakklandi. Um fimmtíu voru um borð í bátnum og einhverra er enn leitað. Aldrei hafa fleiri flóttamenn látið lífið á Ermarsundi. 24. nóvember 2021 21:47