Handbolti

Teitur markahæstur í tapi

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Teitur Örn Einarsson skoraði fimm mörk í tapi Flensburg í dag.
Teitur Örn Einarsson skoraði fimm mörk í tapi Flensburg í dag. vísir/getty

Teitur Örn Einarsson var markahæsti maður Flensburg með fimm mörk í sínum fyrsta leik fyrir félagið er liðið mætti Telekom Veszprem í fimmtu umferð Meistaradeildar Evrópu í dag. Mörk Teits dugðu þó skammt því liðið tapaði 28-23.

Heimamenn í Vezprem byrjuðu af miklum krafti og skoruðu fyrstu fjöfur mörk leiksins. Áður en langt um leið var staðan orðin 10-3 og útlitið svart fyrir Teit og félaga. Liðið náði þó að rétta sig örlítið af fyrir hálfleik, en staðan var 14-8 þegar gengið var til búningsherbergja.

Heimamenn byrjuðu seinni hálfleikinn af sama krafti og náðu fljótt níu marka forskoti. Gestirnir í Flensburg hrukku í gang um stund og skoruðu fjögur mörk í röð, en náðu þó aldrei að brúa bilið á milli liðanna.

Lokatölur urðu 28-23 og Veszprem hefur nú unnið fjóra af fyrstu fimm leikjum sínum í B-riðli. Flensburg hefur aðeins náð í eitt stig og situr sem fastast á botni riðilsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×