Leggur til takmarkanir innanlands Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar 22. júlí 2021 11:14 Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir segir rannsóknir benda til að bólusettir smiti frá sér í minna mæli en aðrir. Vísir/Vilhelm Þórólfur Guðnason sóttvarnalækir mun senda Svandísi Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra minnisblað með tillögum að auknum takmörkunum hér innanlands í dag. Þetta sagði Þórólfur á upplýsingafundi almannavarna.
Þórólfur segist ekki tilbúinn að ræða þær tillögur að sóttvarnaaðgerðum sem hann ætli að leggja til fyrr en ráðherrar hafi rætt þær. Íslendingar viti þó hvaða aðgerðir hafi virkað best hingað til og eðlilegt sé að nýta sér þá reynslu. „Persónubundnar sóttvarnir eru enn lykilinn í baráttunni við Covid-19 en þegar þær duga ekki til eins og við sjáum núna þurfa samfélagslegar aðgerðir einnig að koma ti sögunnar.“ „Ég held að það sé ljóst að eftir að slakað var á landamærum um síðustu mánaðamót hafa margir komið hingað inn með veiruna sem hefur hrundið af stað víðtækri útbreiðslu innanlands. Þetta hefur gerst þrátt fyrir að fólk sé með vottorð á landamærum um bólusetningu eða vottorð um fyrri sýkingu,“ segir Þórólfur. Hann segir að þrátt fyrir mikla þátttöku í bólusetningum innanlands hafi veiran dreift mjög hratt úr sér. „Það bendir til þess að virkni bóluefnisins gegn smiti með Delta-afbrigðinu sé minni en vonast var til,“ segir Þórólfur. Sjá vísi að alvarlegri veikindum Það sem ekki sé ljóst á þessari stundu sé hvort smitin leiði til alvarlegra veikinda og að óvissan sé mest hvað varði eldra fólk og fólk með undirliggjandi sjúkdóma. Hann segir að yfirvofandi sé að þeir sjúklingar sem eru í eftirliti á Covid-göngudeildinni séu að komast yfir á alvarlegra stig veikinda. „Þetta er fólk sem er heilbrigt í flestum tilfellum þannig að við vitum ekki hvað gerist þegar fólk með undirliggjandi vandamál og viðkvæmt fólk fer að fá í sig smit þrátt fyrir bólusetningu. Við erum líka að fá upplýsingar erlendis frá að spítalainnlagnir eru að aukast,“ segir Þórólfur. Það megi til dæmis sjá í Ísrael. „Þannig að við erum að fara inn í svona óvissu og það er að mínu mati skynsamlegra að grípa hart inn í og reyna að koma í veg fyrir þessi smit núna frekar en að bíða eftir að við fáum einhvern faraldur innlagna og þá er bara of seint í rassinn gripið til til að til að stoppa faraldurinn,“ segir Þórólfur. „Ég held að það sé skynsamlegri nálgun heldur en að láta þetta ganga yfir sig og ætla að grípa inn í síðar meir.“ Fréttin hefur verið uppfærð.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Tengdar fréttir 78 greindust innanlands í gær Í gær greindust 78 einstaklingar innanlands með Covid-19. Þar af voru 52 fullbólusettir og fimm hálfbólusettir. 59 voru utan sóttkvíar við greiningu. 22. júlí 2021 10:41 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Lífið heldur áfram eftir svona áfall“ Innlent Varaforsetaefni í bobba vegna hundsdráps og meints fundar með Kim Erlent Ók á tvö hundruð með lögguna á hælunum Innlent Flugvél Atlanta á tæpasta vaði í Ríad Erlent Ríflega fjörutíu prósent líst illa á Katrínu Innlent Katrín efst en Jón hrynur í nýrri könnun Innlent Ótrúlegustu aðskotahlutir gera óskunda í dósatalningarvélum Innlent Sigu niður í Gretti sterka og dældu úr honum sjó Innlent „Ég get ekki annað en sagt satt“ Innlent Hafa rukkað þá sem valda sinubruna um kostnað við útkall Innlent Fleiri fréttir „Ég get ekki annað en sagt satt“ Ríflega fjörutíu prósent líst illa á Katrínu „Lífið heldur áfram eftir svona áfall“ Sigu niður í Gretti sterka og dældu úr honum sjó Ók á tvö hundruð með lögguna á hælunum Sólríkasta byrjun árs í Reykjavík í 77 ár Hafa rukkað þá sem valda sinubruna um kostnað við útkall Ótrúlegustu aðskotahlutir gera óskunda í dósatalningarvélum Fjöldi verkfallsboðana á Keflavíkurflugvelli áhyggjuefni Kosið um sameiningu Húna- og Skagabyggðar í júní Nýjustu skoðanakannanir, verkfallsaðgerðir á flugvellinum og týndur gaffall Halla Hrund líka vinsæll annar kostur Kolbeinn hafi strokið kynfæri stúlkunnar ítrekað Segja lýðræðis- og mannréttindabakslag staðreynd Ný sendiskrifstofa opnuð í Síerra Leóne Baldur segir niðurstöður nýjustu kannana vonbrigði Halla Hrund mælist með mest fylgi í nýrri könnun Maskínu Tilvísunum vegna skekkju á höfuðkúpu ungbarna fjölgað mikið Fréttaskýring Maríu Sigrúnar kemur út á mánudag Einar segir forsetaembættið um ekki neitt Svona gæti bensínstöðvarreiturinn við Ægisíðu litið út Ákærð fyrir að kæfa son sinn með kodda Börn lögð inn með kíghósta „Við reyndum eins og við gátum“ Framkvæmdanefnd fyrir Grindavík sett á laggirnar Sambærileg rúðubrot í Lækjargötu og á Skólavörðustíg Skipar framkvæmdanefnd um málefni Grindavíkur Spellvirkinn lætur til skarar skríða á ný Svona var Pallborðið með Höllu Hrund, Katrínu og Baldri Svandís boðar til blaðamannafundar Sjá meira
78 greindust innanlands í gær Í gær greindust 78 einstaklingar innanlands með Covid-19. Þar af voru 52 fullbólusettir og fimm hálfbólusettir. 59 voru utan sóttkvíar við greiningu. 22. júlí 2021 10:41