Hjúkrunarfræðinemum hópað saman í próf þrátt fyrir neyðarstig: „Þetta er alveg út í hött og mjög óábyrgt“ Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar 25. október 2020 20:59 Rakel Sif Magnúsdóttir er hjúkrunarfræðinemi á fjórða ári. Hún segir það afar óábyrt af hjúkrunarfræðideild að hópa saman nemendum í fyrramálið vegna prófs og minnir á að flestir vinni þeir á Landspítalanum sem er kominn á neyðarstig vegna faraldurs kórónuveirunnar. AÐSEND
Á morgun munu tæplega hundrað hjúkrunarfræðinemar við Háskóla Íslands þreyta próf í lyfja- og vökvaútreikningum í húsakynnum Eirbergs. Rakel Sif Magnúsdóttir, hjúkrunarfræðinemi á fjórða ári, er ein þeirra sem mun þreyta prófið á morgun. „Þetta er alveg út í hött og mjög óábyrgt af hjúkrunarfræðideild. Ég vil ekki eiga á hættu á að bera inn smit á spítalann þar sem ég vinn með fólki í áhættuhópi,” sagði Rakel Sif Magnúsdóttir, hjúkrunarfræðinemi. Hún minnir á að flestir hjúkrunarfræðinemar starfi á Landspítalanum eða á hjúkrunarheimilum. Rakel segir að nemendur hafi ítrekað óskað eftir því að prófið fari fram rafrænt svo að nemendur þurfi ekki að koma saman. Einnig hafi þeir velt upp hugmyndum á borð við að seinka prófinu þar til smitum fækkar og að færa prófið inn í lokapróf áfangans. Ekki í samræmi við fyrirmæli þríeykisins Hún segir áætlun deildarinnar um að halda prófið á morgun engan vegin í samræmi við aðgerðir og fyrirmæli þríeykisins. „Maður hefði haldið að það væri skilningur innan heilbrigðisvísindasviðs á ástandinu sem nú er uppi en svo er greinilega ekki.” Samkvæmt pósti sem fréttastofa hefur undir höndum og sendur var á nemendur verður próftökum skipt í fjóra hópa. Í einum hópnum eru 28 nemendur sem munu þreyta prófið. Í næsta hópi 19 nemendur, þriðji hópurinn samanstendur af 27 nemendum og í þeim fjórða eru 19 nemendur. Segir húsnæðið ekki bjóða upp á hólfaskiptingu Rakel segist áhyggjufull þrátt fyrir þessa hópaskiptingu. „Húsnæðið einfaldlega býður ekki upp á algjöra hólfaskiptingu. Það eru bara þrír inngangar á byggingunni og svo er ekki hægt að halda salernum hópaskiptum.” Þá minnir hún á að Landspítalinn sé í fyrsta sinn í sögunni kominn á neyðarstig. Landspítalinn í Fossvogi.Vísir/Vilhelm Fyrst og fremst óábyrgt Rakel bendir á að flestar deildir hafi getað komið til móts við aðstæður í samfélaginu með því að útfæra próf á rafrænan hátt til að koma í veg fyrir hópamyndun. „Mér finnst þetta fyrst og fremst óábyrgt. Við vinnum felst innan heilbrigðiskerfisins og erum allan daginn í kringum fólk í áhættuhópum,” sagði Rakel Sif. Hún segir að nemendur hafi fundað með deildarforseta í síðustu viku. „Þar var ekki tekið tillit til okkar sjónarmiða.” Segir deildina ekki sýna gott fordæmi Hjúkrunarfræðineminn Berglins Rós Bergsdóttir tjáði sig um málið á Facebook. Hún telur hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands ekki sýna gott fordæmi. Íris Helgudóttir, hjúkrunarfræðinemi, tekur undir með Rakel og Berglindi í færslu á Facebook.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Skóla - og menntamál Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Halla Hrund fremst í nýrri könnun og Katrín dottin niður í þriðja sæti Innlent Ætlaði að ganga frá álverinu og upp á Keflavíkurflugvöll Innlent Ók blindfullur við Grímsvötn og hótaði að drepa alla Innlent Vopnuð rán tíðari en fólk gerir sér grein fyrir Innlent Langt í að þeir nái sér að fullu Innlent Vopnahlé í sjónmáli? Erlent Tveir látnir eftir að bíll hafnaði í sjónum við Stokkhólm Erlent Óttast að saga slökkviliða á Íslandi glatist Innlent Á ofsahraða undir áhrifum fíkniefna Innlent Skjálfti við Bláfjöll í morgun og óbreytt við Sundhnúk Innlent Fleiri fréttir Ráðherra kynnir nýtt mælaborð farsældar barna Skjálfti við Bláfjöll í morgun og óbreytt við Sundhnúk Ætlaði að ganga frá álverinu og upp á Keflavíkurflugvöll Halla Hrund fremst í nýrri könnun og Katrín dottin niður í þriðja sæti Vopnuð rán tíðari en fólk gerir sér grein fyrir Óttast að saga slökkviliða á Íslandi glatist Plokkdagurinn mikli haldinn hátíðlegur um land allt Á ofsahraða undir áhrifum fíkniefna Efnahagsstefnan sé að ýta fólki í verðtryggð lán Ók blindfullur við Grímsvötn og hótaði að drepa alla Langt í að þeir nái sér að fullu Lögregla með eftirför í Vogahverfi Íslandsferðin sem breyttist í martröð Fundu hræ fimm hvolpa í Mosfellsbæ Fengu aðstoð sérsveitar og Gæslunnar við handtöku við Grímsvötn Sigurvin dró smábát í land Vill að fréttastofa RÚV biðji Maríu Sigrúnu afsökunar Lögreglan lofar góðu vegaeftirliti á Suðurlandi í sumar Landskjörsstjórn tilkynnir á morgun hvaða listar eru gildir Mögulega að hægjast á landrisi í Svartsengi Karlremba sé komin í tísku Voru með stæla og neituðu að fara upp úr fyrr en löggan mætti Arnar Þór vantaði sex meðmæli upp á Sprengisandur: Peningastefna, ESB og lagareldi Lögregla kölluð út vegna ungmenna til leiðinda í sundlaug Svakalegt að sjá fylgisaukningu Höllu Hrundar Minni lyfjanotkun og meiri vellíðan í sérstöku heilabilunarþorpi Mennirnir tóku annan starfsmannanna hálstaki Líklegt að það styttist í brotmörk Helga lenti einnig í vandræðum Sjá meira