Gætu borgað fyrir lyftu og viðhald með nýrri hæð Kristín Ólafsdóttir skrifar 25. nóvember 2021 21:01 Teikningin sýnir mögulega ofanábyggingu með nýjum íbúðum ásamt lyftum sem tengdar eru við allar hæðir til að bæta aðgengi. Húsfélög lyftulausra fjölbýlishúsa gætu niðurgreitt uppsetningu á lyftu með því að bæta nýrri hæð ofan á hús sín, samkvæmt nýjum hugmyndum að hverfisskipulagi í Reykjavík. Markmiðið er að bæta aðgengi og gera eldra fólki kleift að búa lengur í íbúðum sínum.
Talið er að allt að tíu þúsund íbúðir í Reykjavík séu í lyftulausum, þriggja til fimm hæða fjölbýlishúsum. Með nýjum hugmyndum að hverfisskipulagi sem nú er verið að kynna á Kjarvalsstöðum yrði þessum húsfélögum veitt heimild til að bæta við heilli íbúðarhæð, til dæmis eins og sést á myndinni hér fyrir ofan, samtímis því sem bætt yrði við lyftu. Þúsundir húsfélaga, að öllum líkindum í öllum hverfum borgarinnar, gætu nýtt sér heimildina. „Og nýta kannski byggingarréttinn sem kemur með því að selja íbúðir þarna á fimmtu hæðinni, nýta hagnaðinn af því til þess að fjármagna lyftu, breytingar og lagfæringar á húsinu, lagfæringar á lóðinni,“ segir Ævar Harðarson, deildarstjóri hverfisskipulags Reykjavíkur. Hann fór ítarlega yfir hugmyndirnar í pistli sem birtist á Vísi í síðustu viku. Samkvæmt ákvæðum núverandi byggingarreglugerðar er aðgengi að þessum fjölbýlishúsum ófullnægjandi. Það myndi breytast með lyftu - og gæti til dæmis gert eldra fólki kleift að búa lengur í íbúðum sínum en áður. „Og kalla á það að það er kannski minni þörf fyrir hjúkrunarheimili, það yrði hægt að stunda meiri heimahjúkrun. Þetta bætir rosalega mikið lífsgæði,“ segir Ævar. Fyrirmyndir skort Heimildin var sett inn í hverfisskipulag í Árbæ 2019 en hefur ekki verið nýtt hingað til, einkum vegna skorts á fyrirmyndum. Reykjavíkurborg og Félagsbústaðir, sem eiga mörg fjölbýlishús þar sem heimildin gæti nýst, hafa því efnt til hönnunarsamkeppni um útfærslu á viðbótarhæð og lyftu. „Sem Félagsbústaðir gætu nýtt fyrir sig en vonandi húsfélögin líka. Það eru miklir möguleikar, það hafa litlar breytingar verið gerðar á þessum húsum.“
Skipulag Reykjavík Húsnæðismál Eldri borgarar Málefni fjölbýlishúsa Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið María Sigrún látin fara úr Kveik Innlent Halla Hrund mælist með mest fylgi allra frambjóðenda Innlent Ætlar í aðra undirskriftasöfnun Innlent Svona var stemmningin á lokaspretti forsetaefnanna í Hörpu Innlent „Ef ég get flogið þremur gerðum af þyrlum þá get ég tekið ákvörðun fyrir þjóðina“ Innlent Svona var Pallborðið með Arnari Þór, Ásdísi Rán og Ástþóri Innlent Dregur framboðið til baka Innlent „Ísdrottningin myndi bráðna ef hér kæmi kjarnorkusprengja“ Innlent Viktor stal senunni: Hefði ekki haft tíma til að safna ef hann væri í vinnu Innlent Mikil tíðindi í glænýrri könnun Innlent Fleiri fréttir Krefjast skýringa á brotthvarfi Maríu Sigrúnar Veisluhöld forseta séu barns síns tíma Húsráðendum tókst að ráða niðurlögum elds í þakskyggni Landsréttur komi fram við ákæruvaldið eins og lítið barn Mannasættir sem óttist ekki að standa í fæturnar Mótmælendur fengu óvæntan liðstyrk frá Hollywood Ráðherra reiðubúin að vinna með atvinnuveganefnd að breytingum Vill skipa í ríkissjórn eftir eigin höfði Halla Hrund mælist með mest fylgi allra frambjóðenda Mikil tíðindi í glænýrri könnun Ástþór sannfærður um að verða sjöundi forsetinn Refsing fyrir að nauðga stjúpdóttur æskuvinar þyngd Ætlar í aðra undirskriftasöfnun Hjúkrunarfræðingurinn ekki laus allra mála enn Trúnaðarsamtöl við forsætisráðherra lykilatriði Sprakk úr hlátri „Ísdrottningin myndi bráðna ef hér kæmi kjarnorkusprengja“ Með hundruð sjálfboðaliða í liði sínu Samskiptaleysi meðal lögreglumanna olli því að fólk var sektað Verði ekki meðvirk frekar en Ólafur Ragnar Rifjaði upp þegar forsetinn bjargaði landinu Skemmdarvargar á eftir útilistaverkum eftir Einar Jónsson Krafturinn í gosinu gæti aukist verulega haldi kvikusöfnun áfram Þrettánda nafnið bætist við Fimm af tólf skiluðu einungis rafrænum meðmælum Gylfi leiðir samhæfingu vegna Grindavíkur María Sigrún látin fara úr Kveik Viktor stal senunni: Hefði ekki haft tíma til að safna ef hann væri í vinnu Forsetaefni streymdu í Hörpu Svona var Pallborðið með Arnari Þór, Ásdísi Rán og Ástþóri Sjá meira