10.000 tonn af rusli á götum Parísar

Rusl sem hefur safnast upp á götum Parísar.
Rusl sem hefur safnast upp á götum Parísar. AFP

Borgarstjórn Parísar áætlar að um 10.000 tonn af rusli liggi nú á víð og dreif um götur Parísar í kjölfar verkfalls sorphirðufólks í borginni.

Aðstoðarmanneskja Anne Hidalgo, borgarstjóra Parísar, segir ruslið hafa aukist úr 7.000 tonnum síðan í byrjun vikunnar. 

Frönsk verkalýðsfélög boðuðu til verkfalla 7. Mars síðastliðinn  vegna áforma ríkistjórnar Emmanuel Macron um að hækka eftirlaunaaldur úr 62 árum í 64, og eru því nú á tólfta degi. 

Vegfarendi smeygir sér fram hjá barmafullum ruslatunnum.
Vegfarendi smeygir sér fram hjá barmafullum ruslatunnum. AFP

Macron skipaði á fimmtudaginn forsætisráðherra landsins, Elisabeth Borne, að nýta sérstakt stjórnarskrárvald til að koma eftirlaunafrumvarpinu óvinsæla í gegn, án atkvæðagreiðslu á þingi. Borne mætti síður góðum viðtökum frá þingmönnum, sem púuðu á hana og sungu franska þjóðsönginn hástöfum í mótmælaskyni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert