Fótbolti

Bjartsýnn á að Messi komi til Bandaríkjanna

Anton Ingi Leifsson skrifar
Lionel Messi hefur viðrað áhuga sinn að spila í MLS-deildinni.
Lionel Messi hefur viðrað áhuga sinn að spila í MLS-deildinni. Gabriel Aponte/Getty Images

Jorge Mas, sem á Inter Miami í MLS-deildinni ásamt David Beckham, er fullviss um að Lionel Messi muni koma til að spila með félaginu einn daginn.

Messi hefur sjálfur opnað á þann möguleika að spila einn daginn fyrir MLS-félagið og eigendurnir hafa rætt um að fá Argentínumanninn til félagsins.

„David og ég höfum unnið hart að þessu. Við erum með markmið að ná í bestu leikmennina og Messi er besti leikmaður sögunnar,“ sagði Mas í samtali við Miami Herald.

„Ég er bjartsýnn á því að Messi muni spila í Inter Miami treyjunni. Það mun koma vel saman með besta leikmanni okkar kynslóðar og markmiðum okkar að byggja upp lið í heimsklassa.“

Samningur Messi við Barcelona rennur út eftir þrjár vikur og enn hefur ekki verið tilkynnt um framlengingu.

Miklar líkur eru þó á því að Messi muni framlengja við Barcelona, að minnsta kosti um eitt ár til viðbótar.

MLS



Fleiri fréttir

Sjá meira


×