Sungu fyrir farþega sem sátu fastir í vél Icelandair Bjarki Sigurðsson skrifar 22. janúar 2023 21:46 Farþegar tóku vel í sönginn og bættust nokkrir við hljómsveit kvennanna. Hljómsveit sem var um borð í vél Icelandair á leið til Keflavíkur frá Toronto söng fyrir farþega sem voru fastir með þeim í vélinni. Flugstjórinn segir alla hafa gengið úr vélinni með bros á vör.
Á Keflavíkurflugvelli var aftakaveður og glerhálka í morgun og í dag sem olli því að ekki var unnt að tæma flugvélar sem lentu þar í morgun. Í vél sem kom hingað til lands frá Toronto í Kanada gripu farþegar til söngs til að stytta biðina. Flugstjóri vélarinnar, Óskar Tryggvi Svavarsson, segir í samtali við fréttastofu að stelpurnar í hljómsveitinni hafi fyrst nefnt þetta í gríni við flugfreyjurnar. Óskar Tryggvi Svavarsson var flugstjóri vélarinnar og tók myndbandið upp. Aðsend „Ég frétti af þessu og var á röltinu að ræða við fólkið og láta vita af mér. Ég kom þarna aftur í og spurði þær hvort það væri ekki einhver hljómsveit hérna um borð. Þær spruttu upp og við forum eitthvað að spjalla. Þá segði ég þeim bara að kýla á þetta. Það var bara fínt að fá eitthvað til að létta andann um borð,“ segir Óskar. Því voru hljóðfæri rifin upp, gítar og fiðla sem konurnar höfðu verið með í handfarangri. Þá var þriðji meðlimurinn að syngja og bættust tveir aðrir farþegar við. Einn sló taktinn með skeiðum og önnur söng með. Klippa: Sungið um borð í vél Icelandair „Þetta var bara geggjað. Þær tóku nokkur lög og röltu um vélina. Flugvél er ekki besta tónleikahöllin þannig þær gengu fram og baka svo það fengu allir að njóta,“ segir Óskar. Hann segir að allt hafi gengið rosalega vel um borð og þakkar farþegum fyrir að hafa tekið aðstæðum með æðruleysi og að skilja aðstæðurnar sem voru í gangi, enda ekki eftir hverja einustu flugferð sem fólk þarf að bíða í tíu tíma eftir lendingu til að komast úr vélinni. „Þegar fólk fór loksins úr vélinni eftir að hafa verið þarna í sautján tíma þá voru allir brosandi. Ég var rosalega ánægður með hvernig þetta gekk,“ segir Óskar. Hljómsveitin sem var um borð í vélinni heitir Jessica Pearson and the East Wind. Í myndbandinu hér fyrir ofan er lagið Better Bad Decisions sungið og er af plötunni On the Line sem kom út í fyrra.
Fréttir af flugi Tónlist Keflavíkurflugvöllur Icelandair Grín og gaman Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Nöfn þeirra sem létust í Eyjafirði Innlent Apple biðst afsökunar á auglýsingu fyrir nýjan iPad Erlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Krefjast þess að HÍ beiti sér með sama hætti gegn Ísrael og Rússlandi Innlent Flóttamannastofnun SÞ gerir athugasemdir við útlendingafrumvarpið Innlent Makar mætast í Pallborðinu Innlent Laus úr haldi en enn grunaður um græsku Innlent Segja lögregluþjón hafa bankað á rangar dyr og skotið ungan mann Erlent Stöðugt landris og hugað að rýmingu Innlent Raðrúðubrjóturinn enn á ferð í miðborginni Innlent Fleiri fréttir Óska eftir frekara gæsluvarðhaldi Skjálftahrina og skyndilegt brotthvarf þjálfara Raðrúðubrjóturinn enn á ferð í miðborginni Makar mætast í Pallborðinu Mögulegt strok á laxi úr landeldi Laus úr haldi en enn grunaður um græsku Opna Laugardalslaug á ný Nöfn þeirra sem létust í Eyjafirði Flóttamannastofnun SÞ gerir athugasemdir við útlendingafrumvarpið Krefjast þess að HÍ beiti sér með sama hætti gegn Ísrael og Rússlandi Tveir fluttir á Landspítala eftir árekstur á mótorkrossbrautinni í Mosfellsbæ Skjálftavirkni aukist í kjölfar gosloka Stöðugt landris og hugað að rýmingu Ræktar 95 tegundir af túlípönum í Mosfellsdal Dýrin séu dauð, veik, horuð og í miklum vanhöldum Ríkisstjórn þurfi að gera meira í þágu vopnahlés Dauð lömb á túni, árás á Rafah og Eurovision Maður sem áreitir börn í Hafnarfirði til rannsóknar Sýknaður af nauðgun en enginn vafi að konan telji á sér brotið Fylgi Höllu hrundi eftir kappræðurnar á RÚV Sinubruni við Hellisskóg á Selfossi 150 þolendum sinnt vegna ofbeldis í nánu sambandi Meintur fjárdráttur mikið áfall fyrir starfsfólk skólans Stóra Svört bar fimm svörtum lömbum Eldgosinu lokið, meintur fjárdráttur og manndrápsrannsókn Eldvörp líkleg næst Rannsókn vegna meints manndráps í Kiðjabergi miðar vel Samanburður við lóðamál olíufélaganna eins „fjarri sannleikanum og hægt er“ Guðríður Hrund skipuð skólameistari MK Eldgosinu lokið eftir 54 daga Sjá meira