Durant fór meiddur af velli í dramatísku tapi

Bam Adebayo, fyrir miðju, fór mikinn í kvöld.
Bam Adebayo, fyrir miðju, fór mikinn í kvöld. AFP

Bam Adebayo reyndist hetja Miami Heat þegar liðið fékk Brooklyn Nets í heimsókn í bandarísku NBA-deildinni í körfuknattleik í kvöld.

Leiknum lauk með tveggja stiga sigri Miami, 109:107, en Adebayo skoraði sigurkörfu leiksins á lokasekúndunum.

Brooklyn varð fyrir áfalli snemma leiks þegar Kevin Durant þurfti að fara meiddur af velli eftir að hafa fengið högg á lærið en Landry Shamet var stigahæstur Brooklyn-manna með 30 stig.

Þá var títtnefndur Adebayo stigahæstur í liði Miami með 21 stig og fimmtán fráköst.

Miami er í sjöunda sæti austurdeildarinnar með 29 sigra en Brooklyn er í öðru sæti austurdeildarinnar með 38 sigra.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert