Efna til samkeppni um framtíðarbókasafn

Grófarhús.
Grófarhús. Ljósmynd/Reykjavíkurborg

Reykjavíkurborg hefur efnt til hönnunarsamkeppni um endurhönnun á Grófarhúsi í miðborginni í samstarfi við Arkitektafélag Íslands.

Í fréttatilkynningu um málið segir að samkeppnin sé hönnunar- og framkvæmdasamkeppni með forvali og að henni lokinni muni fimm teymi taka þátt í samkeppni um breytingar og endurbætur á Grófarhúsi við Tryggvagötu, sem á að hýsa framtíðarbókasafn miðborgarinnar.

„Forvalsnefnd umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar býður arkitektum/hönnunarteymum til þátttöku í forvalinu. Forvalsnefnd fer yfir umsóknir sem berast og velur fimm teymi til þátttöku í samkeppninni,“ segir í tilkynningunni.

Öllum sem uppfylla skilyrði er frjáls þátttaka í forvalinu og óskað er eftir að mynduð séu þverfagleg teymi sem í eru að minnsta kosti einn arkitekt, einn innanhússarkitekt og einn upplifunarhönnuður þegar sótt er um.

Teymin sem valin verða fyrir valinu og skila inn tillögum frá greiddar 5.000.000 kr. hvert. Vinningstillaga fær að auki 5.000.000 kr. auk þess sem gert er ráð fyrir að ná samningi um hönnun verkefnisins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert