Bæjarar sluppu með skrekkinn í Úkraínu

Robert Lewandowski fagnar marki sínu ásamt liðsfélögum sínum í Úkraínu.
Robert Lewandowski fagnar marki sínu ásamt liðsfélögum sínum í Úkraínu. AFP

Robert Lewandowski skoraði frábært mark fyrir Bayern München þegar liðið vann 2:1-sigur gegn Dynamo Kiev í E-riðli Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu í Úkraínu í dag.

Lewandowski kom Þjóðverjunum yfir með frábærri hjólhestaspyrnu á 14. mínútu áður en Kingsley Coman tvöfaldaði forystu Bæjara með marki á 42. mínútu.

Denis Harmash klóraði í bakkann fyrir Dynamo Kiev á 70. mínútu en lengra komst úkraínska liðið ekki.

Bæjarar voru fyrir leik kvöldsins komnir áfram í sextán liða úrslit keppninnar en liðið er í efsta sætinu með fullt hús stiga með 15 stig. Dynamo Kiev er í neðsta sætinu með 1 stig.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert