Ríkisstjórnin hefur boðað til kynningarfundar á framhaldi viðspyrnuaðgerða í Hörpu í dag og hefst fundurinn klukkan 15.
Fundurinn verður sendur út frá Silfurbergi en vegna gildandi sóttvarnaráðstafana verða engir fjölmiðlamenn í salnum.
Á fundinum verða Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra og Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra.