Um þessar mundir eru það sjónvarpsþættirnir Squid Game sem eru það vinsælasta í dægurmenningunni, bæði hér á Íslandi, sem og erlendis. Um er að ræða kóreskan spennutrylli sem sýndur er á Netflix og er ætlaður fólki sem er sextán ára eða eldri.
Þessir þættir eru þó gríðarlega vinsælir meðal barna. Mikið fer fyrir þáttunum og efni tengdum þeim á samfélagsmiðlinum TikTok og í tölvuleiknum Roblox. Börn í grunnskólum landsins leika sér í Squid Game-leikjum, og foreldrar eru að undirbúa búninga í anda þáttanna handa börnum sínum fyrir komandi hrekkjavöku.
Ekki eru allir foreldrar sáttir með þetta, en á Facebook-hópnum Mæðratips myndaðist mikil umræða um að börn væru að horfa á þættina. Þannig er nefnilega mál með vexti að mikið og gróft ofbeldi birtist í þáttunum, sem útskýrir sextán ára-aldurslímmiðann
„[Þættirnir eru] með því ógeðfelldara sem ég hef séð og myndi aldrei leyfa börnunum mínum að horfa á þá, enda bannaðir innan 16. Samt er ég að heyra um börn niður í þriðja bekk sem eru búin að horfa á þá og frímínútur í þriðja bekk eru herteknar af squidgames leikjum.“ segir í færslu áhyggjufullrar móður, sem spyr hreinlega: „Er fólk æst í að ala upp siðblinda morðingja, eða hvað er málið? Eru það heilasletturnar sem heilla, eða kannski frábært framtíðaratvinnutækifæri í að ræna líffærum? Ég bara skil þetta engan veginn. Er ég óhóflega viðkvæm?“
Færsla hennar bjó til miklar umræður. „Ég er að horfa á þessa þætti og þeir eru ógeð! Myndi aldrei í lífinu leyfa mínum 9 ára að horfa.“ sagði ein móðir, og önnur sagðist hafa fengið tölvupóst frá kennara vegna þáttanna, þar sem sex ára gömul börn höfðu séð þá: „Ég ásamt öllum öðrum foreldrum barnanna í sama bekk og dóttir mín fengum tölvupóst frá umsjónarkennara í dag, okkur var tjáð að umræðan um þessa þætti er væri mjög mikil. Börnin hafa lýst í smáatriðum atriðum úr þáttunum fyrir samnemendur sína svo að kennarar heyrðu til. Þessi börn eru 6 ára gömul! Það hefur ekkert barn þroska til þess að horfa á svona viðbjóð.“
Annar þráður varðandi þættina spratt fram á Mæðratips. Þar sagði kona að þættirnir minntu á útrýmingarbúðir nasista. „Úffff þessir þættir eru mest brútalt sem ég hef séð og kallaði fram tilfinningar hjá mér og hugsanir um Auschwitz útrýmingarbúðirnar. Mjög sérstakt að maður horfi á þetta, þetta er svo hrikalegt alveg! En eitthvað í mannskepnunni er dýrslegt… úfff myndi bara ekki vilja að nein börn myndu sjá þennan hrylling… sem maður hefur ekki á neinn hátt hugmyndaflug í sjálfur.“
Í svari við þeirri færslu viðurkenndi ein móðir að barnið sitt hefði séð þættina. Hún spurði kaldhæðnislega hvort hún ætti að fá verðlaun fyrir uppeldið sitt. „Minn er í 4. bekk og horfði á þetta eiginlega um leið og þetta kom út, ég vissi ekki af því. Mömmuverðlaun fyrir mig?“