Forseti La Liga segir eyðslu enskra liða ógna stöðugleika fótboltans í Evrópu Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 2. febrúar 2023 07:01 Tebas er ekki sáttur. EPA-EFE/OLIVIER HOSLET Javier Tebas, forseti La Liga – spænsku úrvalsdeildarinnar í fótbolta, segir að eyðsla enskra úrvalsdeildarfélaga ógni stöðugleika fótboltans í álfunni. Ensk lið hafa eytt fjármunum sem aldrei fyrr í janúar og er Tebas ekki sáttur.
Samkvæmt Deloitte eyddu ensk úrvalsdeildarfélög samtals 815 milljónum punda, eða rúmlega 141 milljörðum króna, í leikmenn í félagaskiptaglugganum sem lokaði nú fyrr í vikunni. Á sama tíma eyddu spænsk úrvalsdeildarlið aðeins 25 milljónum punda, eða rúmlega 4 milljörðum króna. Af þessum 815 milljónum punda þá á Chelsea 290 milljónir eftir að hafa eytt fúlgum fjár í leikmenn á borð við Mykhailo Mudryk, Benoit Badiashile og Enzo Fernandez. Raunar er það þannig að tímabilið 2022-23 hefur Chelsea eytt meiru í leikmenn en öll lið La Liga til samans. Spending in 2022-23:Chelsea: $666.7MLa Liga: $608.9MBundesliga: $604.1M pic.twitter.com/6HNrfpt2QZ— B/R Football (@brfootball) February 1, 2023 The Athletic greinir frá því að Tebas hafi sagt að enski markaðurinn væri á lyfjum. „Þú sérð það greinilega á janúarglugganum þar sem Chelsea hefur keypt helming þeirra leikmanna sem eru komnir í deildina.“ „Enska úrvalsdeildin hefur tapað milljörðum punda á undanförnum árum. Deildin er að mörgu leyti fjármögnuð af bandarískum auðjöfrum virðast tilbúnir að tapa pening.“ La Liga hefur ólíkt ensku úrvalsdeildinni sett eyðslu þak á lið deildarinnar sem hefur áhrif á hvað þau geta eytt í leikmenn og laun. Þekktasta dæmið eru vandræði Barcelona undanfarna félagaskiptaglugga. Tebas segir að það þekkist ekki á Spáni að lið tapi jafn miklum fjármunum og stærstu lið Englands. Þá sagði hann að það gerðist heldur ekki í Þýskalandi. „Okkar efnahagur leyfir það ekki. Við leyfum ekki velunnurum að bæta upp töp eins og eiga sér stað á Englandi. Það er það sem sker á milli á markaðnum.“ „Það fylgir því töluverð hætta að vera með markað sem er uppblásinn eins og sá sem við höfum séð á undanförnum árum í Evrópu. Það getur ógnað stöðugleika og sjálfbærni fótboltans í Evrópu.“ Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Tebas pirrar sig á fjármunum erlendra liða en hann hefur látið París Saint-Germain heyra það oftar en einu sinni. Fyrst varðandi möguleg vistaskipti Lionel Messi og svo þegar Kylian Mbappé ákvað að vera áfram í París.
Fótbolti Enski boltinn Spænski boltinn Mest lesið Kelce framlengir og verður launahæsti innherji sögunnar Sport „Þeir voru bara miklu betri í kvöld og áttu sigurinn skilið“ Körfubolti „Við eigum að geta varist föstum leikatriðum“ Íslenski boltinn Rúnar Páll: Við eigum þetta ekki skilið en svona er þetta Fótbolti Uppgjör: Valur - Njarðvík 84 - 105 | Deildarmeistararnir fengu kjaftshögg Körfubolti „Skákin er bara byrjuð“ Körfubolti Lopetegui tekur við AC Milan Fótbolti Uppgjör, viðtöl og myndir: Valur - Fram 1-1 | Ungir Framarar halda áfram að stela senunni Íslenski boltinn Albert skoraði þegar Genoa gulltryggði sætið í efstu deild Fótbolti „Það er mikill efniviður í Fram“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Nær allir leikmenn Man Utd til sölu fyrir rétt verð Thiago Silva hættir hjá Chelsea en vonast til að synirnir spili þar áfram Hundraðasti sigur Arteta kom gegn erkifjendunum: „Stoltur af leikmönnunum“ „Ekki boðlegt á þessu getustigi“ Fowler hjálpaði Man City að styrkja stöðu sína á toppnum Meistarar Man City halda í við topplið Arsenal Bournemouth fór illa með Brighton Arsenal vann kaflaskiptan Norður-Lundúnaslag Segir að VAR skaði ímynd enska boltans Stendur með Salah og skilur pirring hans Ten Hag segir sitt lið þróttmikið og eitt af þeim skemmtilegri í deildinni Chelsea hjálpaði Tottenham með því að ná í stig gegn Villa Klopp: Verð hamingjusamur ef rétt ákvörðun er tekin Newcastle setti met þegar það skaut Sheffield niður um deild Enn ein vonbrigðin fyrir United Salah eftir rifrildið við Klopp: „Ef ég tala mun allt loga“ Klopp og Salah rifust á hliðarlínunni Antonio eyðilagði endurkomu Rauða hersins Biðst afsökunar á að hafa rætt við West Ham Arteta hefur beðið Wenger um ráð hvernig eigi að verða meistari Ten Hag bannaði þremur fjölmiðlum að spyrja spurninga Leicester í úrvalsdeildina eftir rassskellingu Leeds Stólpagrín gert að Terry vegna stjörnustæla hans Liverpool nær samkomulagi um Slot Leikmaður Newcastle tók meirapróf Rashford: Nú er nóg komið Finnst De Bruyne betri en Gerrard og Lampard Slot staðfestir að hann vilji taka við Liverpool Einstefna í Brighton Krókur Liverpool á móti bragði Sjá meira
Uppgjör, viðtöl og myndir: Valur - Fram 1-1 | Ungir Framarar halda áfram að stela senunni Íslenski boltinn
Uppgjör, viðtöl og myndir: Valur - Fram 1-1 | Ungir Framarar halda áfram að stela senunni Íslenski boltinn