Viðræður í höfn og Snorri stýrir strákunum okkar Sindri Sverrisson skrifar 24. maí 2023 08:01 Snorri Steinn Guðjónsson tekur við landsliðinu eftir að hafa náð eftirtektarverðum árangri með Val. VÍSIR/VILHELM Snorri Steinn Guðjónsson verður næsti landsliðsþjálfari Íslands í handbolta karla og heldur því um stjórnartaumana þegar strákarnir okkar spila á Evrópumótinu í Þýskalandi í janúar.
Samningsviðræður á milli forráðamanna HSÍ og Snorra hafa tekið drjúgan tíma, og snurða virtist hlaupin á þráðinn um helgina. Nú er hins vegar allt frágengið, samkvæmt heimildum Vísis, og ljóst að Snorri verður kynntur sem nýr landsliðsþjálfari á næstunni, mögulega innan við hundrað dögum eftir að greint var frá brotthvarfi Guðmundar Guðmundssonar í febrúar. Eins og Vísir greindi fyrst frá stendur til að Arnór Atlason, fyrrverandi liðsfélagi Snorra til margra ára úr landsliðinu, verði aðstoðarþjálfari landsliðsins. Það mun þó hins vegar ekki vera í höfn enn þá. Arnór er núverandi aðstoðarþjálfari Álaborgar og þjálfari U21-landsliðs Danmerkur en hættir báðum störfum í sumar og tekur við sem aðalþjálfari TTH Holstebro í dönsku úrvalsdeildinni. Langt liðið frá fyrstu samskiptum Snorri var á meðal fyrstu manna sem að forráðamenn HSÍ ræddu óformlega við sem mögulega arftaka Guðmundar, í byrjun mars. Einnig var rætt óformlega við Dag Sigurðsson og Svíann Michael Apelgren, og gagnrýndi Dagur forráðamenn HSÍ harðlega fyrir slæleg vinnubrögð. Ekkert framhald varð á viðræðum við Snorra á meðan að HSÍ kannaði möguleikann á að fá erlendan þjálfara, þar sem Norðmaðurinn Christian Berge virðist hafa verið efstur á blaði. Hann hefur sagt tilboð HSÍ hafa verið freistandi en hafnaði því. Annar erlendur þjálfari sem orðaður var við landsliðsþjálfarastarfið, hinn danski Nicolej Krickau sem gert hefur mjög góða hluti hjá GOG, mun svo hafa hafnað Íslandi til að taka við þýska stórliðinu Flensburg. Snorri Steinn er einn af silfurstrákunum úr Peking. Hann er fimmti markahæsti landsliðsmaður Íslands frá upphafi - spilaði alls 257 leiki fyrir íslenska landsliðið og skoraði í þeim 848 mörk eða 3,3 að meðaltali í leik.EPA/SRDJAN SUKI Annað freistandi starf losnaði fyrir Snorra Við það losnaði starf sem ljóst er að Snorri Steinn hafði mikinn áhuga á, og forráðamenn GOG voru fljótir að setja sig í samband við hann í síðustu viku. Íþróttastjóri GOG hefur staðfest viðræður við Snorra en nú er ljóst að hann tekur við landsliðinu. Snorri, sem er 41 árs gamall, sneri heim árið 2017 eftir farsælan feril í atvinnumennsku og var ráðinn spilandi þjálfari Vals en hann stýrði þá liðinu ásamt Guðlaugi Arnarssyni. Undir stjórn Snorra varð Valur Íslands- og bikarmeistari bæði árin 2021 og 2022, auk þess að verða deildarmeistari 2020 og aftur í vor. Þá náði liðið eftirtektarverðum árangri í Evrópudeildinni í vetur og komst í 16-liða úrslit. Óskar í stað Snorra Við brotthvarf Snorra frá Val stendur til að Valsarinn mikli Óskar Bjarni Óskarsson taki við Valsliðinu. Óskar Bjarni hefur verið Snorra til aðstoðar síðustu ár og þjálfað fyrir Val í fjölmörg ár. Tveir synir Óskars hafa verið lykilmenn í liði Vals síðustu misseri, þeir Benedikt Gunnar og Arnór Snær. Arnór verður hins vegar ekki í liðinu á næstu leiktíð því hann hefur samið til tveggja ára við þýska stórliðið Rhein-Neckar Löwen.
Valur Landslið karla í handbolta EM 2024 í handbolta Mest lesið „Eins og að spila við landslið Þýskalands nasismans“ Sport Klökkur Jóhann Berg beygði af í viðtali Enski boltinn Uppgjörið, viðtöl og myndir: Valur - Olympiacos 30-26 | Einum leik frá Evróputitli Handbolti Þetta gerðist í lokaumferðinni í enska | City meistari og Jóhann Berg kvaddi Enski boltinn Uppgjör: FH - Afturelding 29-32 | Mosfellingar taka forystuna Handbolti Koddaslagur sjónvarpsstjörnu endaði með ósköpum Sport Usyk fyrstur til að vinna Fury Sport Reykti tvo pakka, át fjögur súkkulaðistykki og drakk tvær kókdósir á fyrsta hringnum Golf Var spáð falli en eru á leið í Meistaradeildina Fótbolti Uppgjör, viðtöl og myndir: Valur - Grindavík 89-79 | Valsmenn leiða í baráttunni um titilinn Körfubolti Fleiri fréttir „Þetta einvígi er rétt að byrja“ Bjarki og félagar bikarmeistarar fjórða árið í röð Uppgjör: FH - Afturelding 29-32 | Mosfellingar taka forystuna Gummersbach heldur í Evrópuvon eftir sigur í Íslendingaslag Haukur og félagar lentir undir í úrslitaeinvíginu eftir vítakeppni Strákarnir hans Gumma komu til baka í öðrum spennutrylli Mættust síðast í úrslitum fyrir aldarfjórðungi Uppgjörið, viðtöl og myndir: Valur - Olympiacos 30-26 | Einum leik frá Evróputitli Ómar og Viggó röðuðu inn mörkum í sigrum Bjarki og félagar í úrslit eftir öruggan sigur „Umgjörðin er bara engu lík, gæsahúð að hlaupa inn á völlinn“ „Þurfum bara okkar besta leik í vetur“ Tíunda tapið í röð hjá Íslendingaliði Balingen Grín sem snerist mjög fljótt upp í alvöru Uppgjörið, viðtöl og myndir: Valur - Haukar 28-25 | Valskonur Íslandsmeistarar Íslendingarnir gerðu lítið þegar Skara féll úr leik Jafnt í Íslendingaslag í undanúrslitum Blaðamannafundur fyrir úrslitaleik Vals í Evrópubikarnum Úr húsvarðarstarfi í atvinnumennsku Uppgjörið og viðtöl: Valur - Afturelding 27-29 | Mosfellingar í úrslit Teitur skoraði fimm og Flensburg heldur naumlega í við toppliðin „Okkur dauðlangar í meira“ Íslendingaliðið tryggði sér oddaleik Ólafur Gústafsson aftur heim í FH: „Gleðidagur fyrir okkur FH-inga“ Einar hættir með kvennalið Fram „Við erum alveg róleg“ Uppgjör: Haukar - Valur 22-30 | Meistararnir í 2-0 Algjör niðurlæging sveina Dags sem hafa aldrei tapað stærra Vonar að pabbi sinn komist ekki á ÓL Heimsmeistararnir stöðvaðir á síðustu stundu Sjá meira
Uppgjör, viðtöl og myndir: Valur - Grindavík 89-79 | Valsmenn leiða í baráttunni um titilinn Körfubolti
Uppgjör, viðtöl og myndir: Valur - Grindavík 89-79 | Valsmenn leiða í baráttunni um titilinn Körfubolti