Lygilegar tölur hjá Doncic í spennutrylli, Jokic sá um Clippers og Pacers skoruðu 152 stig Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 2. maí 2021 09:15 Luka Dončić var hreint út sagt magnaður í nótt. Dallas Mavericks Að venju var nóg um að vera í NBA-deildinni í körfubolta í nótt þar sem tíu leikir fóru fram. Luka Dončić var stórkostlegur í 125-124 sigri Dallas Mavericks á Washington Wizards. Nikola Jokić fór fyrir Denver Nuggets í sex stiga sigri á Los Angeles Clippers, 110-104. Þá skoruðu leikmenn Indiana Pacers 152 stig gegn aðeins 95 hjá Oklahoma City Thunder. Slóveninn ungi sá eins og áður sagði til þess að Dallas vann Washington í spennutrylli í nótt. Dončić var með þrefalda tvennu: 31 stig, 20 stoðsendingar og 12 fráköst. Síðasta stoðsendingin tryggði sigurinn en Dončić fann þá galopinn Dorian Finney-Smith í horninu. Luka and Russ DUELED in the @dallasmavs 125-124 win over Washington! Luka: 31 PTS, 12 REB, 20 AST (career high)Russ: 42 PTS, 10 REB, 9 AST pic.twitter.com/Z3lD0Klv8d— NBA (@NBA) May 2, 2021 Washington fór í lokasóknina en náði ekki að setja boltann í körfuna og Dallas fagnaði því naumum 125-124 sigri. Russell Westbrook var einni stoðsendingu frá þrefaldri tvennu en hann skoraði 40 stig, tók 10 fráköst og gaf 9 stoðsendingar. Nikola Jokić átti ef til vill ekki alveg jafn góðan leik og Dončić en Serbinn var samt sem áður ástæða þess að Denver Nuggets lagði Los Angeles Clippers í nótt. Jokić skoraði 30 stig, tók 14 fráköst og gaf 7 stoðsendingar. Lokatölur 110-104 Denver í vil. 30 PTS, 14 REB, 7 AST for Jokic.5 straight wins for @nuggets. pic.twitter.com/LSbiWl8bE5— NBA (@NBA) May 2, 2021 Indiana Pacers skoruðu yfir 40 stig í fyrstu þremur leikhlutunum gegn Oklahoma City Thunder í nótt. Þó liðið hafi „aðeins“ skorað 26 í síðasta þá vann það samt þann leikhluta. Lokatölur 152-95 í biluðum leik. Þrír leikmenn Indiana skoruðu 25 stig eða meira. Domantas Sabonis splæsti í þrefalda tvennu en hann bauð upp á 26 stig, 19 fráköst og 14 stoðsendingar. Stigahæstur var Doug McDermott með 31 stig og þá skoraði Caris LeVert 25 stig. Domantas Sabonis becomes the third player with a first-half triple double since 1997-98! @Dsabonis11: 26p/19r/14a in @Pacers W pic.twitter.com/RKkwNxZWCK— NBA (@NBA) May 2, 2021 LaMelo Ball sneri til baka er lið hans, Charlotte Hornets, lagði Detroit Pistons 107-94. Bróðir hans, Lonzo Ball, skoraði 33 stig er New Orleans Pelicans lagði Minnesota Timberwolves í framlengdum leik, 140-136. Zion Williamson var samt stigahæstur allra á vellinum með 37 stig. Önnur úrslit Golden State Warriors 113-187 Houston Rockets Chicago Bulls 97-108 Atlanta Hawks Miami Heat 124-107 Cleveland Cavaliers Memphis Grizzlies 111-112 Orlando Magic Toronto Raptors 102-106 Utah Jazz Stöðuna í deildinni má finna hér. NBA er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. NBA körfuboltinn er hluti af Stöð 2 Sport erlent sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur. Körfubolti NBA Mest lesið Umfjöllun: Höttur - Tindastóll 87-82 | Ótrúlegur lokakafli tryggði sæti í úrslitakeppninni Körfubolti Hulunni svipt af nýrri treyju íslenska landsliðsins Fótbolti „Verð dæmdur fyrir þetta restina af ævi minni“ Sport Umfjöllun og viðtöl: Stjarnan - Grindavík 91-90 | Von um úrslitakeppni lifir enn í Garðabæ Körfubolti Segir von á mikilvægum tilboðum í Albert Fótbolti Danirnir ánægðir með Guðmund: „Enginn að kvarta yfir þessu hér“ Handbolti „Bjóst ekki við að þetta myndi enda svona“ Fótbolti Umfjöllun: Valur - Breiðablik 106-94 | Toppliðið lagði lánlausa Blika örugglega Körfubolti Arnór frá út tímabilið eftir ömurlega tæklingu Ísraelans Fótbolti Góður árangur í Evrópu dýru verði keyptur fyrir leikmenn Vals Handbolti Fleiri fréttir Umfjöllun og viðtöl: Stjarnan - Grindavík 91-90 | Von um úrslitakeppni lifir enn í Garðabæ „Greinilega áherslubreytingar hjá dómurum varðandi ástríðu og tilfinningar“ Í beinni: Keflavík - Njarðvík | Ekki pláss fyrir bikarþynnku gegn nágrönnunum Umfjöllun: Höttur - Tindastóll 87-82 | Ótrúlegur lokakafli tryggði sæti í úrslitakeppninni Í beinni: Valur - Breiðablik | Toppliðið fær lánlausa Blika í heimsókn Umfjöllun: Haukar - Álftanes 91-98 | Gestirnir styrktu stöðu sína með sigri í Ólafssal Aðeins sá þriðji til að dæma yfir tvö þúsund leiki Umfjöllun og viðtöl: Grindavík-Keflavík 78-61 | Bikarmeistararnir bakaðir í Smáranum „Við erum ekkert orðnar Íslandsmeistarar þó svo að við vinnum Keflavík einu sinni“ „Ekkert leyndarmál að við ætlum að reyna við þann stóra“ Umfjöllun: Njarðvík-Haukar 84-71 | Sterkur sigur heimakvenna NFL ætlar að taka jólin frá NBA „Ekki týpan til að gefast upp“ „Öll félög á Íslandi vilja KR í efstu deild“ Valur vann stórsigur á Stykkishólmi Hætti við að hætta og varð bikarmeistari: „Súrealískt, líkt og í draumi“ KR aftur í deild þeirra bestu eftir stórsigur Um „slagsmálin“ í leik Utah og Houston: „Er ungt og leikur sér“ Þýðingarmikill leikur fyrir KR sýndur í beinni útsendingu KR-ingar geta endurheimt sæti meðal þeirra bestu í kvöld Arnar hættir að þjálfa bæði lið Stjörnunnar James Harden var bara að reyna að hafa gaman Martin drjúgur í miklivægum sigri Myndasería úr seinni bikarslag dagsins „Það verður partý um allan bæ“ Umfjöllun, viðtöl og myndir: Keflavík - Þór Ak. 89-67 | Keflavík bikarmeistari eftir stórsigur „Héldum bara áfram að berja á þeim“ „Held að ég hafi aldrei spilað fyrir framan svona marga á Íslandi“ Umfjöllun,viðtöl og myndir: Tindastóll - Keflavík 79 - 92 | Keflvíkingar bikarmeistarar í baráttuleik Boston heldur flugi og Oklahoma á toppinn Sjá meira
Luka Dončić var stórkostlegur í 125-124 sigri Dallas Mavericks á Washington Wizards. Nikola Jokić fór fyrir Denver Nuggets í sex stiga sigri á Los Angeles Clippers, 110-104. Þá skoruðu leikmenn Indiana Pacers 152 stig gegn aðeins 95 hjá Oklahoma City Thunder. Slóveninn ungi sá eins og áður sagði til þess að Dallas vann Washington í spennutrylli í nótt. Dončić var með þrefalda tvennu: 31 stig, 20 stoðsendingar og 12 fráköst. Síðasta stoðsendingin tryggði sigurinn en Dončić fann þá galopinn Dorian Finney-Smith í horninu. Luka and Russ DUELED in the @dallasmavs 125-124 win over Washington! Luka: 31 PTS, 12 REB, 20 AST (career high)Russ: 42 PTS, 10 REB, 9 AST pic.twitter.com/Z3lD0Klv8d— NBA (@NBA) May 2, 2021 Washington fór í lokasóknina en náði ekki að setja boltann í körfuna og Dallas fagnaði því naumum 125-124 sigri. Russell Westbrook var einni stoðsendingu frá þrefaldri tvennu en hann skoraði 40 stig, tók 10 fráköst og gaf 9 stoðsendingar. Nikola Jokić átti ef til vill ekki alveg jafn góðan leik og Dončić en Serbinn var samt sem áður ástæða þess að Denver Nuggets lagði Los Angeles Clippers í nótt. Jokić skoraði 30 stig, tók 14 fráköst og gaf 7 stoðsendingar. Lokatölur 110-104 Denver í vil. 30 PTS, 14 REB, 7 AST for Jokic.5 straight wins for @nuggets. pic.twitter.com/LSbiWl8bE5— NBA (@NBA) May 2, 2021 Indiana Pacers skoruðu yfir 40 stig í fyrstu þremur leikhlutunum gegn Oklahoma City Thunder í nótt. Þó liðið hafi „aðeins“ skorað 26 í síðasta þá vann það samt þann leikhluta. Lokatölur 152-95 í biluðum leik. Þrír leikmenn Indiana skoruðu 25 stig eða meira. Domantas Sabonis splæsti í þrefalda tvennu en hann bauð upp á 26 stig, 19 fráköst og 14 stoðsendingar. Stigahæstur var Doug McDermott með 31 stig og þá skoraði Caris LeVert 25 stig. Domantas Sabonis becomes the third player with a first-half triple double since 1997-98! @Dsabonis11: 26p/19r/14a in @Pacers W pic.twitter.com/RKkwNxZWCK— NBA (@NBA) May 2, 2021 LaMelo Ball sneri til baka er lið hans, Charlotte Hornets, lagði Detroit Pistons 107-94. Bróðir hans, Lonzo Ball, skoraði 33 stig er New Orleans Pelicans lagði Minnesota Timberwolves í framlengdum leik, 140-136. Zion Williamson var samt stigahæstur allra á vellinum með 37 stig. Önnur úrslit Golden State Warriors 113-187 Houston Rockets Chicago Bulls 97-108 Atlanta Hawks Miami Heat 124-107 Cleveland Cavaliers Memphis Grizzlies 111-112 Orlando Magic Toronto Raptors 102-106 Utah Jazz Stöðuna í deildinni má finna hér. NBA er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. NBA körfuboltinn er hluti af Stöð 2 Sport erlent sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.
NBA er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. NBA körfuboltinn er hluti af Stöð 2 Sport erlent sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.
Körfubolti NBA Mest lesið Umfjöllun: Höttur - Tindastóll 87-82 | Ótrúlegur lokakafli tryggði sæti í úrslitakeppninni Körfubolti Hulunni svipt af nýrri treyju íslenska landsliðsins Fótbolti „Verð dæmdur fyrir þetta restina af ævi minni“ Sport Umfjöllun og viðtöl: Stjarnan - Grindavík 91-90 | Von um úrslitakeppni lifir enn í Garðabæ Körfubolti Segir von á mikilvægum tilboðum í Albert Fótbolti Danirnir ánægðir með Guðmund: „Enginn að kvarta yfir þessu hér“ Handbolti „Bjóst ekki við að þetta myndi enda svona“ Fótbolti Umfjöllun: Valur - Breiðablik 106-94 | Toppliðið lagði lánlausa Blika örugglega Körfubolti Arnór frá út tímabilið eftir ömurlega tæklingu Ísraelans Fótbolti Góður árangur í Evrópu dýru verði keyptur fyrir leikmenn Vals Handbolti Fleiri fréttir Umfjöllun og viðtöl: Stjarnan - Grindavík 91-90 | Von um úrslitakeppni lifir enn í Garðabæ „Greinilega áherslubreytingar hjá dómurum varðandi ástríðu og tilfinningar“ Í beinni: Keflavík - Njarðvík | Ekki pláss fyrir bikarþynnku gegn nágrönnunum Umfjöllun: Höttur - Tindastóll 87-82 | Ótrúlegur lokakafli tryggði sæti í úrslitakeppninni Í beinni: Valur - Breiðablik | Toppliðið fær lánlausa Blika í heimsókn Umfjöllun: Haukar - Álftanes 91-98 | Gestirnir styrktu stöðu sína með sigri í Ólafssal Aðeins sá þriðji til að dæma yfir tvö þúsund leiki Umfjöllun og viðtöl: Grindavík-Keflavík 78-61 | Bikarmeistararnir bakaðir í Smáranum „Við erum ekkert orðnar Íslandsmeistarar þó svo að við vinnum Keflavík einu sinni“ „Ekkert leyndarmál að við ætlum að reyna við þann stóra“ Umfjöllun: Njarðvík-Haukar 84-71 | Sterkur sigur heimakvenna NFL ætlar að taka jólin frá NBA „Ekki týpan til að gefast upp“ „Öll félög á Íslandi vilja KR í efstu deild“ Valur vann stórsigur á Stykkishólmi Hætti við að hætta og varð bikarmeistari: „Súrealískt, líkt og í draumi“ KR aftur í deild þeirra bestu eftir stórsigur Um „slagsmálin“ í leik Utah og Houston: „Er ungt og leikur sér“ Þýðingarmikill leikur fyrir KR sýndur í beinni útsendingu KR-ingar geta endurheimt sæti meðal þeirra bestu í kvöld Arnar hættir að þjálfa bæði lið Stjörnunnar James Harden var bara að reyna að hafa gaman Martin drjúgur í miklivægum sigri Myndasería úr seinni bikarslag dagsins „Það verður partý um allan bæ“ Umfjöllun, viðtöl og myndir: Keflavík - Þór Ak. 89-67 | Keflavík bikarmeistari eftir stórsigur „Héldum bara áfram að berja á þeim“ „Held að ég hafi aldrei spilað fyrir framan svona marga á Íslandi“ Umfjöllun,viðtöl og myndir: Tindastóll - Keflavík 79 - 92 | Keflvíkingar bikarmeistarar í baráttuleik Boston heldur flugi og Oklahoma á toppinn Sjá meira
Umfjöllun: Höttur - Tindastóll 87-82 | Ótrúlegur lokakafli tryggði sæti í úrslitakeppninni Körfubolti
Umfjöllun og viðtöl: Stjarnan - Grindavík 91-90 | Von um úrslitakeppni lifir enn í Garðabæ Körfubolti
Umfjöllun,viðtöl og myndir: Tindastóll - Keflavík 79 - 92 | Keflvíkingar bikarmeistarar í baráttuleik
Umfjöllun: Höttur - Tindastóll 87-82 | Ótrúlegur lokakafli tryggði sæti í úrslitakeppninni Körfubolti
Umfjöllun og viðtöl: Stjarnan - Grindavík 91-90 | Von um úrslitakeppni lifir enn í Garðabæ Körfubolti