„Meiriháttar trúnaðarbrestur“ innan ríkisstjórnarinnar Máni Snær Þorláksson skrifar 16. mars 2023 17:04 Sigmar Guðmundsson, þingmaður Viðreisnar og annar varaformaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar. Vísir/Vilhelm Umboðsmaður Alþingis mætti á fund stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis í dag vegna samráðsleysis dómsmálaráðherra um rafbyssur. Annar varaformaður nefndarinnar segir að um sé að ræða meiriháttar trúnaðarbrest milli Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra og Jóns Gunnarssonar dómsmálaráðherra.
Sigmar Guðmundsson, þingmaður Viðreisnar og annar varaformaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar, segir í samtali við fréttastofu að það sé augljóst eftir fundinn að þingið þurfi að skoða málið frekar. Hann segir álit umboðsmanns Alþingis segja að stjórnsýsla Jóns Gunnarssonar dómsmálaráðherra í málinu hafi ekki verið í lagi. Reglugerð dómsmálaráðherra sem heimilar lögreglumönnum að nota rafbyssur var birt í Stjórnartíðindum þann 23. janúar síðastliðinn. Reglugerðin hefur verið afar umdeild, sérstaklega í ljósi þess að ákvörðunin var ekki rædd á ríkisstjórnarfundi. Meiriháttar trúnaðarbrestur Sigmar segir að Jón hefði átt að ræða þetta mál á ríkisstjórnarfundi þar sem um er að ræða mikilsvert stjórnarmálefni. „Þetta er áherslubreyting að mati forsætisráðherrans sem á að ræða á ríkisstjórnarfundum samkvæmt lögum um stjórnarráðið,“ segir hann. „Þá liggur það bara fyrir að forsætisráðherra telur að dómsmálaráðherra hafi mögulega brotið gegn annað hvort lögunum eða stjórnarskránni eða jafnvel bæði,“ Sigmar telur að um sé að ræða meiriháttar trúnaðarbrest milli Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra og Jóns Gunnarssonar dómsmálaráðherra.Arnar Halldórsson Að sögn Sigmars er um að ræða meiriháttar trúnaðarbrest milli forsætisráðherra og dómsmálaráðherra. Ræða þurfi það hvort farið verði lengra með málið: „Þá þýðir það auðvitað að það er orðinn meiriháttar trúnaðarbrestur þarna á milli forsætisráðherra og dómsmálaráðherra. Við á þinginu hljótum að þurfa að skoða það mjög vandlega hvort við förum áfram með þetta mál.“ „Eiginlega jafn vont og brotið sjálft“ Sigmar segir að um mjög alvarlegt mál sé að ræða. „Það er mjög vont þegar ráðherra í ríkisstjórninni fær svona álit frá umboðsmanni um það að hann hafi ekki haft nægilegt samráð inn í ríkisstjórn, fer þvert gegn því sem leiðtogi ríkisstjórnarinnar vill að sé gert,“ segir hann. Sigmar segir að trúnaðarbresturinn sé tvöfaldaður vegna viðbragða dómsmálaráðherra í málinu. „Ég túlka það sem meiriháttar trúnaðarbrest innan ríkisstjórnarinnar. Trúnaðarbresturinn er síðan tvöfaldaður þegar þú tekur viðbrögð dómsmálaráðherrans sem telur að þetta skipti bara ekki neinu máli, hann sé bara ósammála álitinu og þar við situr. Það er eiginlega jafn vont og brotið sjálft.“ Að sögn Sigmars var þó ekki rætt um næstu skref á fundinum heldur var einungis farið yfir það sem umboðsmaður Alþingis hafði að segja.
Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur Rafbyssur Stjórnsýsla Umboðsmaður Alþingis Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Verkefnið skapi níutíu störf og meðallaunin verði um 1,4 milljón á mánuði Innlent Grunaður um að hafa ráðið konu sinni bana Innlent Svona var Pallborðið með Höllu, Katrínu og Steinunni Ólínu Innlent Sjálfstæðisflokkurinn kvelji barnafólk með vettlingagjörningi Innlent Fluttur á sjúkrahús eftir að ekið var á Útlendingastofnun Innlent Leiðin í vinnuna smám saman þrefaldast: „Þetta er eins og í einhverri bíómynd“ Innlent „Það er ástæða fyrir því að farið er í að rannsaka þetta andlát“ Innlent Biðst afsökunar á að hafa kallað skemmdarvarginn „fífl“ Innlent Halla Hrund fjórfaldar fylgi sitt á milli kannanna Innlent Segja valdarán framið og kirkju aðventista klofna Innlent Fleiri fréttir Miðflokkurinn staðfestir sig sem þriðji stærsti flokkurinn Leiðin í vinnuna smám saman þrefaldast: „Þetta er eins og í einhverri bíómynd“ Ákærð fyrir að hafa orðið syni sínum að bana Stórfjölgun ofbeldisbrota, firðir í hættu og hönnunarstuldur „Við næðum eflaust meiri árangri ef borgarstjóri myndi væla minna“ Össur segir Jóni Gnarr að „hætta að væla“ Staðfesta gæsluvarðhald tveggja sakborninga Óbreytt frumvarp þýði útrýmingu villta laxins Fluttur á sjúkrahús eftir að ekið var á Útlendingastofnun Húsfélagið má ekki klippa á tengil rafvirkjameistara Sjálfstæðisflokkurinn kvelji barnafólk með vettlingagjörningi Enn kröftugt gos úr einum gíg Börn sofi ekki úti í gosmóðunni suðvestanlands Velkomin í Verbúðina II Halla Hrund fjórfaldar fylgi sitt á milli kannanna Ákærðir fyrir þaulskipulagða skotárás gegn feðginum á aðfangadag Sextán hundruð vettlingar fyrir börnin sem bíða Verkefnið skapi níutíu störf og meðallaunin verði um 1,4 milljón á mánuði Aðstoðarrektor í Bandaríkjunum verður rektor Háskólans á Akureyri Bjarni vill taka daginn snemma Svona var Pallborðið með Höllu, Katrínu og Steinunni Ólínu Freista þess að halda veitingamanninum bak við lás og slá Furðar sig á ávirðingum vegna kaupa á vínarbrauði Tvö manndráp á skömmum tíma „Það er ástæða fyrir því að farið er í að rannsaka þetta andlát“ Vill geta vísað flóttafólki úr landi innan tveggja sólarhringa Réðst á barn sem gerði dyraat Grunaður um að hafa ráðið konu sinni bana Myndaði annan mann í sturtuklefanum Tíðni manndrápa í takt við fjölgun mannfjölda Sjá meira