Vara við gífurlegri ógn frá Kína Samúel Karl Ólason skrifar 6. júlí 2022 22:01 Ken McCallum og Christopher Wray, yfirmenn MI5 og FBI í Lundúnum í dag. AP/Dominic Lipinski Ken McCallum og Christopher Wray, yfirmenn MI5, innanríkisöryggisstofnunar Bretlands og Alríkislögreglu Bandaríkjanna (FBI), vöruðu báðir við því í dag að mikil ógn stafaði af Kommúnistaflokki Kína. Ógnin sneri bæði að hagkerfum Bretlands og Bandaríkjanna og þjóðaröryggi ríkjanna. Þeir sögðu Kína einnig ógna bandamönnum ríkjanna í Evrópu og annars staðar í heiminum og að nauðsynlegt væri að grípa til aðgerða.
McCallum lýsti ógninni sem „umbyltandi“ og Wray sagði hana gífurlega umfangsmikla og „ótrúlega“. Wray varaði við því að Kínverjar hefðu meðal annars haft afskipti af stjórnmálum í Vesturlöndum og þar á meðal af nýlegum kosningum. Þeir McCallum og Wray fluttu ræður í höfuðstöðvum MI5 í dag og er það í fyrsta sinn sem forsvarsmenn þessara stofnana gera það, samkvæmt frétt BBC. Leiðtogar úr viðskiptalífinu í Bretlandi og forsvarsmenn háskóla hlustuðu á ræðurnar og sneru þær að miklu leyti að fjármálum. Sjöfalt fleiri rannsóknir Í ávarpi sínu sagði McCallum að umsvif Kínverja í Bretlandi hefðu aukist til muna á undanförnum árum. Frá árinu 2018 hefði fjöldi rannsókna sem vörðuðu Kína sjöfaldast. Hann sagði eina rannsóknina snúa að því að breskum manni hefði verið boðið vel launað starf í Kína. Eftir viðræður um starfið og tvær ferðir til Kína hefði hann verið beðinn um leynilegar og tæknilegar upplýsingar um herþotur. Þær upplýsingar hafi hann átt að færa kínversku fyrirtækið sem væri leppur fyrir her Kína. McCallum nefndi annað mál þar sem bresku verkfræðifyrirtæki var boðinn samningur af kínversku fyrirtæki. Tækni breska fyrirtækisins hafi hins vegar verið stolið og enginn samningur gerður. Að endingu hafi breska fyrirtækið farið í þrot vegna tækniþjófnaðarins. Grófu upp erfðabreytt fræ Wray varaði við því að forsvarsmenn viðskiptalífsins í Vesturlöndum áttuðu sig ekki á ógninni frá Kína. Meðal annars nefndi hann tilfelli þar sem kínverskir útsendarar hefðu grafið upp erfðabreytt fræ í Bandaríkjunum og komist þannig hjá dýrri og tímafrekri rannsóknarvinnu. Ráðamenn í Bandaríkjunum hafa lengi kvartað yfir umfangsmiklum njósnum Kínverja vestanhafs. Þeir hafa sakað Kínverja um njósnir og þjófnað á ýmiskonar leyndarmálum, hvort sem tengjast vopnum og hernaði eða viðskiptum og tækni. Í ræðu sinni sagði Wray einnig að Kommúnistaflokkurinn hefði byggt upp umfangsmikið kerfi til tölvuárása og stafrænna njósna. Það væri mun umfangsmeira en í nokkru öðru ríki og það notuðu Kínverjar til að „svindla og stela á massívum skala“. Wray ræddi einnig um mögulega innrás Kínverja í Taívan og sagði að ráðamenn í Peking hefðu dregið ákveðinn lærdóm af innrás Rússa í Úkraínu. Meðal annars ynnu Kínverjar nú að því að einangra sig og verja sig gegn mögulegum refsiaðgerðum ef þeir skyldu gera innrás í Taívan. Það kallaði Wray ákveðna vísbendingu um ætlanir Kínverja, samkvæmt frétt AP fréttaveitunnar. Ráðamenn í Kína hafa ítrekað sagt að ekkert muni koma í veg fyrir sameiningu Kína og Taívans og að ef þess þurfi, þá muni þeir gera innrás í eyríkið.
Bandaríkin Bretland Kína Taívan Tengdar fréttir Íbúum Hong Kong bannað að minnast blóðbaðsins 1989 þriðja árið í röð Íbúum Hong Kong var í dag bannað að minnast blóðbaðsins á Torgi hins himneska friðar, sem gerðist á þessum degi árið 1989. Þetta er þriðja árið í röð sem þeim er bannað að minnast ódæðisverkanna en öryggissveitir mátti sjá á hverju götuhorni í borginni í dag í tilefni dagsins. 4. júní 2022 20:57 Taívanir bregðast við flugi kínverskra herflugvéla Taívanir segjast hafa sent orrustuþotur á loft til að stugga við þrjátíu kínverskum herflugvélum sem höfðu farið inn fyrir lofthelgi eyjunnar í gær. 31. maí 2022 07:28 Ofsóknir Kínverja gegn Úígúrum staðfestar Þjóðarbrot Úígúra í Kína hefur kerfisbundið verið ofsótt, pyntað og fangelsað af kínverskum stjórnvöldum um margra ára skeið. Þetta sýna þúsundir skjala sem vestrænir fjölmiðlar hafa gert opinber. Sérfræðingur í málefnum Úígúra segir þetta verstu ofsóknir síðan í Helförinni. 29. maí 2022 14:30 Segir ummælin ekki marka breytta stefnu gagnvart Taívan Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, segist ekki hafa verið að tala um breytta stefnu ríkisins gagnvart Taívan er hann sagði að Bandaríkin myndu koma eyríkinu til aðstoðar ef Kína réðist á það. Ráðamenn í Kína brugðust hinir reiðustu við ummælum Bidens. 24. maí 2022 12:11 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Of þung en annars hraust á Ozempic Innlent Skuldirnar bíði þegar frelsið taki við Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Gular viðvaranir á Suðurlandi, Suðausturlandi og Faxaflóa á morgun Innlent Segja grafalvarlegt mál að fresta atkvæðagreiðslu Innlent „Engu okkar er boðið að koma þarna og sjá“ Innlent Ekki megrunarlyf heldur lyf við offitu Innlent Myndband sýnir árás Diddy Erlent Slagsmálahundar afþökkuðu aðstoð lögreglu Innlent „Það er miður að það falli til kostnaður vegna þessa“ Innlent Fleiri fréttir Myndband sýnir árás Diddy Færeyingar felldu frumvarp um fóstureyðingar Þrjátíu ár fyrir árásina á mann þingforsetans Segir Rússa ekki hafa í hyggju að taka Kharkív Viðtal á Stöð 2 kveikir upp í færeyskum stjórnmálum Reyndi að kveikja í bænahúsi gyðinga og var skotinn til bana Spánverjar neita skipi með vopn innanborðs um að leggja að bryggju „Einfari“ ákærður fyrir tilræðið við Fico Hver er Robert Fico? Neyðarástandi lýst yfir á Nýju-Kaledóníu eftir miklar óeirðir Ágreiningur innan stjórnarinnar brýst upp á yfirborðið Hægriflokkar ná saman um myndun ríkisstjórnar Samið um kappræður í júní og september Fico ekki talinn í lífshættu Þróun ES-30 flugvélarinnar flutt frá Svíþjóð til Kaliforníu Þetta er vitað um árásarmanninn Biden skorar á Trump Forsætisráðherra Slóvakíu í lífshættu eftir skotárás Þverpólitískar tillögur um viðbrögð vegna gervigreindar FIFA byrjað að vinda ofan af umbótum eftir spillingarhneykslið Fulltrúar Talíbana á ráðstefnu í Ósló Fyrsta opinbera málverkið af konunginum Karli III afhjúpað í gær Gróðureldar ógna olíuvinnslumiðstöð í Kanada Gríðarleg leit gerð að mönnum sem frelsuðu fanga í Frakklandi Skriðdrekar Ísraelshers komnir inn í íbúðahverfi í Rafah Framámaður AfD sektaður fyrir að nota slagorð nasista Vill bjóða NATO að byggja nýjan flugvöll í Færeyjum Þorir að veðja bjór á að hún verði áfram forsætisráðherra Lokað á grein um barnadráp í Bretlandi Drápu fangaverði og hjálpuðu fanga að strjúka Sjá meira
Íbúum Hong Kong bannað að minnast blóðbaðsins 1989 þriðja árið í röð Íbúum Hong Kong var í dag bannað að minnast blóðbaðsins á Torgi hins himneska friðar, sem gerðist á þessum degi árið 1989. Þetta er þriðja árið í röð sem þeim er bannað að minnast ódæðisverkanna en öryggissveitir mátti sjá á hverju götuhorni í borginni í dag í tilefni dagsins. 4. júní 2022 20:57
Taívanir bregðast við flugi kínverskra herflugvéla Taívanir segjast hafa sent orrustuþotur á loft til að stugga við þrjátíu kínverskum herflugvélum sem höfðu farið inn fyrir lofthelgi eyjunnar í gær. 31. maí 2022 07:28
Ofsóknir Kínverja gegn Úígúrum staðfestar Þjóðarbrot Úígúra í Kína hefur kerfisbundið verið ofsótt, pyntað og fangelsað af kínverskum stjórnvöldum um margra ára skeið. Þetta sýna þúsundir skjala sem vestrænir fjölmiðlar hafa gert opinber. Sérfræðingur í málefnum Úígúra segir þetta verstu ofsóknir síðan í Helförinni. 29. maí 2022 14:30
Segir ummælin ekki marka breytta stefnu gagnvart Taívan Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, segist ekki hafa verið að tala um breytta stefnu ríkisins gagnvart Taívan er hann sagði að Bandaríkin myndu koma eyríkinu til aðstoðar ef Kína réðist á það. Ráðamenn í Kína brugðust hinir reiðustu við ummælum Bidens. 24. maí 2022 12:11