Teitur og félagar unnu til bronsverðlauna

Teitur Örn Einarsson
Teitur Örn Einarsson mbl.is/Eggert Jóhannesson

Teitur Örn Einarsson og félagar hans í Flensburg unnu til bronsverðlauna í þýsku bikarkeppninni í handbolta í dag.

Teitur byrjaði inn á í bakverðinum og skoraði tvö mörk úr jafn mörgum skotum í 31:28, sigri liðins gegn Fuchse Berlín.

Flensburg er svo í þriðja sæti í deildinni með 42 stig og Fuchse Berlín er í fyrsta sæti með 49 stig þegar fimm umferðir eru eftir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert