Rauði krossinn ekki upplýstur um nýja reglugerð Sylvía Hall skrifar 8. apríl 2021 21:22 Farþegar mæta á Fosshótelið við Þórunnartún. Starfsmenn Rauða krossins hafa haft umsjón með farsóttar- og sóttvarnahúsum fyrir hönd stjórnvalda, en voru ekki upplýstir um nýja reglugerð fyrr en hún var birt. Stöð 2/Egill Rauði krossinn, sem hefur haft umsjón með farsóttar- og sóttvarnahúsum fyrir hönd stjórnvalda, var ekki upplýstur um nýja reglugerð er varðar komu fólks frá útlöndum og tekur gildi á miðnætti. Að mati Rauða krossins setur ný reglugerð sóttvarnir í uppnám.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Rauða krossinum í kvöld en samkvæmt nýrri reglugerð munu allir þeir sem ekki uppfylla skilyrði um heimasóttkví þurfa í sóttvarnahús, óháð því hvaða landi þeir koma frá. Fulltrúar félagsins vinna nú að yfirferð og túlkun nýrra reglna sem boðar miklar breytingar að mati félagsins. „Það er mat Rauða krossins að ný reglugerð setji sóttvarnir og góðan árangur í sóttvarnarhúsum í uppnám og lýsa fulltrúar félagsins yfir verulegum áhyggjum af því,“ segir í tilkynningunni. Ekkert gjald verður tekið fyrir dvölina samkvæmt nýrri reglugerð og munu gestir geta notið útivistar. Að mati Rauða krossins er lykilatriði að lágmarka umgang gesta um sameiginleg svæði eins og fremst er unnt. Reynslan hafi sýnt það að hópsmit hefðu hæglega getað komið upp þar sem nokkrir gestir á sóttvarnahótelinu reyndust smitaðir og þar af leiðandi einhverjir starfsmenn mögulega þurft í sóttkví, eða sóttkví annarra gesta framlengst. Því metur félagið það sem svo að ekki sé unnt að tryggja útiveru gesta og sérstakan aðbúnað fyrir börn líkt og kveðið er á um í reglugerð. „Rauði krossinn tekur af heilum hug undir mikilvægi þess að einstaklingar í sóttkví fái að njóta útiveru eins og frekast er unnt og hefur sýnt gagnrýni því tengdri skilning. En með ofangreint í huga, auk þess skamma undirbúningstíma sem reglugerðin gefur, er það mat Rauða krossins að ekki sé gerlegt að tryggja útiveru gesta og sérstakan aðbúnað fyrir börn á sóttkvíarhóteli – líkt og ný reglugerð boðar – nema á kostnað sóttvarna og þar með öryggis gesta sóttkvíarhótelsins.“
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Tengdar fréttir Svandís segir mögulegt að breyta þurfi sóttvarnalögum Heilbrigðisráðherra setti nýja reglugerð í dag um sóttkví farþega til landsins þar sem skilyrði eru sett um aðstæður í heimasóttkví og ef þau eru ekki uppfyllt skuli fólk fara á sóttvarnahótel því að kostnaðarlausu. Sóttvarnalæknir segir það enga stefnubreytingu að stefnt sé að veirulausu Íslandi. 8. apríl 2021 19:20 Væri ágætis byrjun að biðja fólkið afsökunar á þessu klúðri Bjarni Már Magnússon, lagaprófessor við Háskólann í Reykjavík, gagnrýnir íslensk heilbrigðisyfirvöld fyrir að „grafa undan íslenskum dómstólum“ með viðbrögðum sínum við úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur um að skyldudvöl á sóttkvíarhóteli væri ólögmæt ráðstöfun. 8. apríl 2021 16:07 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Nöfn þeirra sem létust í Eyjafirði Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Svona var Pallborðið með mökunum Innlent Kári axlar ábyrgð á stuðningi Víðis og Þórólfs Innlent Óhapp í fyrsta sinn í 25 ára sögu Innlent Stefnir í tveggja turna tal Innlent Dóra vill ekki búa við umræðu byggða á „falsvitnum“ Innlent Apple biðst afsökunar á auglýsingu fyrir nýjan iPad Viðskipti erlent Krefjast þess að HÍ beiti sér með sama hætti gegn Ísrael og Rússlandi Innlent Raðrúðubrjóturinn enn á ferð í miðborginni Innlent Fleiri fréttir Senda á tólf ára palestínskan dreng með hrörnunarsjúkdóm úr landi Hræðsla við brottvísun, fylgi á fleygiferð og veðjað á leiki barna Ísland greiddi atkvæði með auknum rétti Palestínu hjá SÞ Auknar líkur á nýju eldgosi á næstu dögum Reyndi að drepa mann eftir að upp úr sauð á gamlárskvöld Kári axlar ábyrgð á stuðningi Víðis og Þórólfs Stefnir í tveggja turna tal Guðmundur í Afstöðu hundskammar DV Stórri flotaæfingu NATO lauk í Reykjavík „Þegar hann loksins náði að bjóða mér út missti ég hnén“ Rafmagnslaust í Vesturbænum Viðhorf breytist ekki við það bara að klæða sig í lögreglubúning Þrír sóttu um stöðu dómara við Landsrétt Óhapp í fyrsta sinn í 25 ára sögu Dóra vill ekki búa við umræðu byggða á „falsvitnum“ Einn fluttur eftir þriggja bíla árekstur Óska eftir frekara gæsluvarðhaldi Skjálftahrina og skyndilegt brotthvarf þjálfara Raðrúðubrjóturinn enn á ferð í miðborginni Svona var Pallborðið með mökunum Mögulegt strok á laxi úr landeldi Laus úr haldi en enn grunaður um græsku Opna Laugardalslaug á ný Nöfn þeirra sem létust í Eyjafirði Flóttamannastofnun SÞ gerir athugasemdir við útlendingafrumvarpið Krefjast þess að HÍ beiti sér með sama hætti gegn Ísrael og Rússlandi Tveir fluttir á Landspítala eftir árekstur á mótorkrossbrautinni í Mosfellsbæ Skjálftavirkni aukist í kjölfar gosloka Stöðugt landris og hugað að rýmingu Ræktar 95 tegundir af túlípönum í Mosfellsdal Sjá meira
Svandís segir mögulegt að breyta þurfi sóttvarnalögum Heilbrigðisráðherra setti nýja reglugerð í dag um sóttkví farþega til landsins þar sem skilyrði eru sett um aðstæður í heimasóttkví og ef þau eru ekki uppfyllt skuli fólk fara á sóttvarnahótel því að kostnaðarlausu. Sóttvarnalæknir segir það enga stefnubreytingu að stefnt sé að veirulausu Íslandi. 8. apríl 2021 19:20
Væri ágætis byrjun að biðja fólkið afsökunar á þessu klúðri Bjarni Már Magnússon, lagaprófessor við Háskólann í Reykjavík, gagnrýnir íslensk heilbrigðisyfirvöld fyrir að „grafa undan íslenskum dómstólum“ með viðbrögðum sínum við úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur um að skyldudvöl á sóttkvíarhóteli væri ólögmæt ráðstöfun. 8. apríl 2021 16:07