Batnandi afkoma í Færeyjum og áhrif hækkandi olíuverðs á kostnað Eimskipa er á meðal þess sem fjallað er um í uppgjöri félagsins fyrir fyrsta ársfjórðung.
Fram kemur í uppgjörinu að alþjóðleg flutningamiðlun Eimskipa hafi skilað góðum árangri þrátt fyrir minna magn, áframhaldandi gámaskorti og takmarkaðri afkastagetu á sumum alþjóðlegum flutningaleiðum.
Tekjur námu alls 239,7 milljónum evra og hækkuðu um 59,5 milljónir evra eða 33% samanborið við fyrsta árfjórðung 2021.
Kostnaður nam 209,3 milljónum evra sem er hækkun um 27,7% og skýrist að mestu af verulegri aukningu í kostnaði vegna kaupa á þjónustu flutningsbirgja og hærra olíuverði.
Launakostnaður jókst um 3,1 milljón evra eða um 10,5% og þar af námu gjaldeyrisáhrif 1,5 milljónum evra.
Verulegur vöxtur var á EBITDA hagnaði sem nam 30,4 milljónum evra á fjórðungnum samanborið við 16,3 milljónir evra fyrir sama tímabil 2021. EBITDA hlutfall var 12,7% samanborið við 9% fyrir sama tímabil síðasta árs.
Hagnaður tímabilsins nam 10,5 milljónum evra samanborið við 2,8 milljónir evra fyrir sama tímabil ársins 2021.