Lífið

Virkir í at­huga­semdum misstu stjórnina við frétt Evu Bjarkar

Ása Ninna Pétursdóttir skrifar
Eva Björk Benediktsdóttir lýsti reynslu sinni í viðtali á Vísi og virkir í athugasemdum misstu stjórn á sér.
Eva Björk Benediktsdóttir lýsti reynslu sinni í viðtali á Vísi og virkir í athugasemdum misstu stjórn á sér.

Í Brennslunni í morgun var mikið rætt um ummæli virkra í athugasemdum við umtalað viðtal við íþróttafréttakonuna Evu Björk Benediktsdóttur. Í viðtalinu lýsir Eva Björk upplifun sinni af dvöl á sóttvarnarhótelinu við Þórunnartún.

Skyldudvöl fólks frá áhættusvæðum á sóttvarnarhóteli hefur verið mikið hitamál síðustu daga en í gær úrskurðaði Héraðsdómur Reykjavíkur aðgerðina ólöglega. 

Eva Björk er íþróttafréttakona á RÚV og birtist viðtalið við hana á Vísi á laugardag. Hún kom til landsins 1. apríl eftir að hafa fylgt U21 karlalandsliði Íslands í knattspyrnu sem spilaði leik á Evrópumótinu í Ungverjalandi í síðustu viku.

Tugir neikvæðra athugasemda

Þáttastjórnendur morgunþáttarins Brennslunar á FM957 furða sig mikið á fjölda athugasemda við fréttina sem nú eru orðnar rúmlega sjötíu talsins og flestar í neikvæðari kantinum.

Við umræðuna kemur einnig fram að ritstjórn Vísis hafi falið ómálefnaleg ummæli og bannað notendur sem fóru yfir strikið.

Hér fyrir neðan má heyra Rikka G lesa upp nokkrar vel valin ummæli þar hann gerir góðlátlegt grín af háttalagi fólks í kommentakerfum og ljáir þeim heiftuga rödd sína.

Klippa: Rikki G les upp comment virka í athugasemdum með þeirra rödd

Tengdar fréttir

Gestum sótt­kvíar­hótels frjálst að ljúka sótt­kví annars staðar

Öllum sem dvelja á sóttkvíarhótelinu í Þórunnartúni er frjálst að ljúka sóttkví annars staðar, hafi þeir viðunandi aðstöðu til þess. Þetta kemur fram í tilkynningu sem send var frá Heilbrigðisráðuneytinu fyrir stuttu. Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurðaði síðdegis í dag að ekki teldist lögmætt að skikka komufarþega frá áhættusvæðum í sóttkvíarhús.

Rýnt í úrskurðinn: Reglugerðin gekk lengra en lög heimiluðu

Sóttvarnalæknir gekk lengra en sóttvarnalög heimiluðu með því að skikka fólk sem sannarlega hafði í hús að vernda hér á landi til að sæta fimm daga sóttkví í til þess gerðu sóttvarnarhúsi. Til þess skorti reglugerð heilbrigðisráðuneytisins lagastoð. 

Allt annað en sáttur við páskadvöl á sóttvarnahótelinu

Þjálfari í 21 árs landsliðsteymi Íslands er ekki par ánægður með að þurfa að dúsa í sóttvarnarhúsi yfir páskana. Leiguvél Icelandair með karlaliðin, A-liðið og 21 árs liðið, lenti á Keflavíkurflugvelli í kvöld. Hlutskipti leikmanna, þjálfara, starfsfólks og fjölmiðlamanna voru æði ólík við komuna eftir því hvoru teyminu fólk tilheyrði.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×