Takast á um félagatalið í dómsal í dag Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar 30. janúar 2023 12:00 Sólveig Anna Jónsdóttir og liðsmenn Eflingar hafa mætt fylktu liði til síðustu funda við Samtök atvinnulífsins í húsakynnum ríkissáttasemjara. Vísir/Vilhelm Krafa ríkissáttasemjara um að Efling afhendi félagatala sitt, svo hægt sé að greiða atkvæði um miðlunartillögu, verður tekin fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur nú eftir hádegi. Óvíst er hvenær niðurstaða liggur fyrir en óskað hefur verið eftir flýtimeðferð.
Ríkissáttasemjari lagði fram miðlunartillöguna í síðustu viku en Efling hefur neitað að afhenda félagatal sitt svo hægt sé að hefja atkvæðagreiðslu um hana. Héraðsdómur mun taka málið fyrir klukkan korter yfir eitt. Efling undirbýr enn verkfall hátt í þrjú hundruð starfsmanna Íslandshótela. Í kvöld mun niðurstaða atkvæðagreiðslu um verkfallsboðun Eflingar liggja fyrir. Verði verkfall, sem hefst 7. febrúar, samþykkt fer samninganefnd Eflingar að skipuleggja næstu verkfallsaðgerðir strax á þriðjudag en þau verkföll myndu þá hefjast 14. febrúar. Samninganefnd Eflingar hefur um helgina farið á hótel Íslandshótela í Reykjavík til að funda með félagsmönnum sínum um miðlunartillöguna. Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar sagði í fréttum okkar í gær að að atvinnurekendur hafi tekið misvel í þær heimsóknir. Verið sé að reyna með mjög markvissum hætti að knýja fram niðurstöðu í atkvæðagreiðslu sem sé atvinnurekendum þóknandi. „Auðvitað höfum við því miður heyrt ýmsar sögur af ógnandi og kúgandi tilburðum þar sem verið er að reyna að segja fólki fyrir verkum. Þar sem verið er að reyna með mjög markvissum hætti að knýja fram niðurstöðu í atkvæðagreiðslu sem er atvinnurekendum þóknandi. Það er auðvitað mjög leiðinlegt,“ sagði Sólveig Anna í fréttum okkar í gær. Þá sakaði Sólveig Samtök atvinnulífsins um ólögleg afskipti af atkvæðagreiðslunni um verkfallið á RÚV í morgun. Forstjóri Íslandshótela vildi ekki veita viðtal vegna málsins fyrir hádegisfréttir og ekki heldur Halldór Benjamín Þorbergsson framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. Halldór sagði yfirlýsingar Sólveigar ekki svaraverðar. Hún sjái óvini í hverju horni.
Kjaraviðræður 2022-23 Kjaramál Dómstólar Tengdar fréttir Ætlar ekki að beita sér gegn miðlunartillögunni Vinnumarkaðsráðherra segist ekki ætla að beita sér fyrir því að ríkissáttasemjari dragi miðlunartillögu sína til baka. Hann segist bera fullt traust til ríkissáttasemjara og segist ætla að funda með Eflingu þegar hann kemur heim frá Kaupmannahöfn. 30. janúar 2023 08:59 Heimildin óumdeild og ekki háð samþykki deiluaðila „Það er alveg ljóst að sáttasemjari hefur þessa heimild til að leggja fram miðlunartillögu og þarf ekkert samþykki deiluaðila til þess. Það er staðreyndin.“ 30. janúar 2023 06:34 Vilja að Guðmundur Ingi beiti sér gegn miðlunartillögu ríkissáttasemjara Formaður Eflingar krefst þess að vinnumarkaðsráðherra beiti sér gegn umdeildri miðlunartillögu ríkissáttasemjara. Ráðherra neyddist þó til að fresta fundi með formanninum sem halda átti í fyrramálið. 29. janúar 2023 19:15 Óréttmæt þvingunaraðgerð gegn lágtekjufólki Samkvæmt lögum um stéttarfélög og vinnudeilur verður miðlunartillaga ríkissáttasemjara ekki felld nema 25 prósent félagsmanna í stéttarfélagi greiði atkvæði gegn henni. 29. janúar 2023 18:00 Ríkisstjórnin þarf að virða leikreglurnar Dramatískar yfirlýsingar formanns Eflingar héldu áfram um helgina. Þeim fjölgar ört óvinum hennar og greinilegt er að leikfléttan sem lengi hefur verið í undirbúningi, að ætla aldrei að semja eins og aðrir aðilar á vinnumarkaði en efna þess í stað til verkfalla til að knýja fram pólitísk áherslumál, er í uppnámi eftir útspil ríkissáttasemjara. 29. janúar 2023 12:59 „Ríkissáttasemjari að reyna að auka valdheimildir sínar“ Formaður Eflingar hefur óskað eftir fundi með vinnumarkaðsráðherra vegna útspils ríkissáttasemjara í kjaradeilu Eflingar og Samtaka atvinnulífsins. Formaður Rafiðnaðarsambandsins telur ríkissáttasemjara með nýjasta útspili sínu reyna að víkka út valdheimildir sínar. 29. janúar 2023 12:02 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Sáu ekki andlit huldumanns sem þeir telja vera Pétur Jökul Innlent „Erum hér í kvöld svo þetta gerist ekki í þögn“ Innlent Vænsti maður og harðduglegur Innlent Var í símanum á 142 kílómetra hraða áður en hann lést Innlent Heimafæðingum fjölgar og teljast eðlilegri en áður Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi vegna ofsaaksturs undir áhrifum Innlent „Mig langaði bara að drepa þennan mann“ Innlent Bíllinn í happdrætti Ástþórs úr hans eigin smiðju Innlent Næsta gos gæti hafist á hverri stundu Innlent Fleiri fréttir „Erum hér í kvöld svo þetta gerist ekki í þögn“ Heimafæðingum fjölgar og teljast eðlilegri en áður Sáu ekki andlit huldumanns sem þeir telja vera Pétur Jökul Næsta gos gæti hafist á hverri stundu „Kisuprestar“ á Snæfellsnesi Hið opinbera skuldi sér og öðrum mæðrum afsökunarbeiðni Starfsmaður Sjúkratrygginga grunaður um fjárdrátt Óska eftir tilnefningum um Reykvíking ársins Þvingun úr landi og prestar í kisubúning Veikindi Blessing ekki nógu mikil til að fresta brottvísun Vænsti maður og harðduglegur Spreyjaði málningu á bifreiðar í miðbænum Fluttur með þyrlu til Reykjavíkur eftir árekstur Kaldavatnslaust á Arnarnesi Telur ekki viðeigandi að tjá sig um mál Maríu Sigrúnar Þurfi að gera úrbætur en ástandið verið ýkt Lilja hefur áhyggjur af „nýlenskunni“ á RÚV Lýsa eftir Bandaríkjamanni Bíllinn í happdrætti Ástþórs úr hans eigin smiðju Göngin lokuð á miðvikudagskvöld Tekur til varna eftir stuðningsyfirlýsingu við Katrínu Maðurinn ríkisborgari Möltu Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi vegna ofsaaksturs undir áhrifum Áhorf á úrslit Eurovision hríðféll Sýnist stefna í kapphlaup tveggja en útilokar þó ekki vendingar Mótmæla þróun gervigreindar á Austurvelli Veit ekki hvort hann fái svar áður en spurningin verði úrelt Auknar líkur á gosi sem gæti hafist án fyrirvara Guðni heldur utan til að kveðja Margréti Þórhildi Telur ástandið á sauðfjárbúinu ekki eins slæmt og menn vilja vera láta Sjá meira
Ætlar ekki að beita sér gegn miðlunartillögunni Vinnumarkaðsráðherra segist ekki ætla að beita sér fyrir því að ríkissáttasemjari dragi miðlunartillögu sína til baka. Hann segist bera fullt traust til ríkissáttasemjara og segist ætla að funda með Eflingu þegar hann kemur heim frá Kaupmannahöfn. 30. janúar 2023 08:59
Heimildin óumdeild og ekki háð samþykki deiluaðila „Það er alveg ljóst að sáttasemjari hefur þessa heimild til að leggja fram miðlunartillögu og þarf ekkert samþykki deiluaðila til þess. Það er staðreyndin.“ 30. janúar 2023 06:34
Vilja að Guðmundur Ingi beiti sér gegn miðlunartillögu ríkissáttasemjara Formaður Eflingar krefst þess að vinnumarkaðsráðherra beiti sér gegn umdeildri miðlunartillögu ríkissáttasemjara. Ráðherra neyddist þó til að fresta fundi með formanninum sem halda átti í fyrramálið. 29. janúar 2023 19:15
Óréttmæt þvingunaraðgerð gegn lágtekjufólki Samkvæmt lögum um stéttarfélög og vinnudeilur verður miðlunartillaga ríkissáttasemjara ekki felld nema 25 prósent félagsmanna í stéttarfélagi greiði atkvæði gegn henni. 29. janúar 2023 18:00
Ríkisstjórnin þarf að virða leikreglurnar Dramatískar yfirlýsingar formanns Eflingar héldu áfram um helgina. Þeim fjölgar ört óvinum hennar og greinilegt er að leikfléttan sem lengi hefur verið í undirbúningi, að ætla aldrei að semja eins og aðrir aðilar á vinnumarkaði en efna þess í stað til verkfalla til að knýja fram pólitísk áherslumál, er í uppnámi eftir útspil ríkissáttasemjara. 29. janúar 2023 12:59
„Ríkissáttasemjari að reyna að auka valdheimildir sínar“ Formaður Eflingar hefur óskað eftir fundi með vinnumarkaðsráðherra vegna útspils ríkissáttasemjara í kjaradeilu Eflingar og Samtaka atvinnulífsins. Formaður Rafiðnaðarsambandsins telur ríkissáttasemjara með nýjasta útspili sínu reyna að víkka út valdheimildir sínar. 29. janúar 2023 12:02