Kári hamast enn í og hundskammar heimspekinga Jakob Bjarnar skrifar 23. febrúar 2021 09:48 Kári virðist njóta þess að hamast í heimspekingunum sem hann segir að hafi ekki hundsvit á bólusteningum. vísir/vilhelm Kári Stefánsson forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar segir dagljóst að heimspekingar hafi ekki hundsvit á bólusetningum.
Kári birtir langan pistil á Facebook-síðu sína í dag þar sem hann svarar í átta liðum þeim háskólamönnum sem rituðu grein þar sem þeir veltu upp ýmsum siðferðilegum spurningum sem sneru að hugsanlegum samningum íslenska ríksins við Pfizer; um tilraunabólsetningar. Ekkert varð af þeim samningum en víst er að greinin fór ekki vel í Kára. Pistil sinn birtir Kári jafnframt í Fréttablaðinu í dag. Heimspekingarnir merkilegir með sig „Mér fannst hins vegar fyndnast og fáránlegast af öllu að heilt fótboltalið af heimspekingum fór að tjá sig um þessa tilraun í Fréttablaðinu í morgun. Var að tjá heimspekilegar vangaveltur um kjaftasögu. Mér finnst það vera svolítið met og finnst að þessi menn eigi skilið einhvers konar medalíu fyrir þetta,“ sagði Kári í samtali við fréttastofu fljótlega eftir að umrædd grein leit dagsins ljós. Og féll sú hryssingslega nóta vel í kramið víða. En ljóst er að greinastúfurinn situr í Kára því nú fer hann í hana lið fyrir lið að hætti hússins. Kári segir ýmislegt gott að segja um íslenska heimspekinga. „En af og til lenda heimsspekingarnir okkar í slíkri sjálfsupphafningu að þegar þeir líta niður á okkur pöpulinn, ofan úr hæðum sínum þá sundlar þá og þeir tapa áttum. Gott dæmi um þetta má finna í greinarstúf eftir fimm íslenska heimsspekinga sem birtist í Fréttablaðinu þann 9. febrúar undir fyrirsögninni: Áleitnar spurningar um Ísland sem tilraunaland.“ Hafa ekki hundsvit á bólusetningarvandanum Vísindamaðurinn segir greinina að mestu byggja á spurningum um rannsókn sem ekki var búið að setja saman og var því ekki til. „Hún var einungis óljós hugmynd í kollunum á nokkrum mönnum beggja vegna Atlantshafsins. Spurningar sem bornar voru upp í grein heimsspekinganna byggðu á ágiskun þeirra á því hvernig sú hugmynd yrði gerð að rannsókn sem síðan yrði framkvæmd hér á landi. Þetta er svipað því og þegar einn af okkar ágætu tónlistargagnrýnendum skrifaði í dagblað dóm um tónleika sem aldrei voru haldnir,“ skrifar Kári háðskur og vitnar í fræga sögu. Hann segir svo félagana fimm bæta gráu ofan á svart með því að efast um vísindalegt gildi rannsóknar sem þeir vissu ekkert um, vegna þess að það var ekkert til að vita um. „Það er dagljóst á stúfnum að þeir hafa ekki hundsvit á þeim bólusetningarvanda sem blasir við heiminum í dag,“ segir í pistli Kára sem finna má hér neðar. Þegar liggur fyrir að hann fellur vel í kramið meðal þeirra sem telja þessa heimspekinga ekki merkilegan pappír. Ef ekki væri fyrir blessaða heimsspekingana Kári Stefánsson Það má ýmislegt gott segja um íslenska heimsspekinga. Þeir...Posted by Kari Stefansson on Þriðjudagur, 23. febrúar 2021
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Vísindi Bólusetningar Íslensk erfðagreining Háskólar Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Vísbending um að flutningaskip hafi hvolft bátnum Innlent Fólk muni ekki borga 200 þúsund fyrir „heimili sem það notar sem sumarbústað“ Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Miklar breytingar á fylgi fyrir kappræður Stöðvar 2 í kvöld Innlent Skipstjórinn og tveir stýrimenn handteknir vegna sjóslyssins Innlent „Blaut tuska í andlit Félags eldri borgara í Reykjavík“ Innlent Fékk sting í hjartað þegar hann sá nafnið á bátnum Innlent Skikkar lögreglu til að rannsaka stjórn aðventista Innlent Leigan fyrir 100 fermetra hús í Grindavík 62.500 á mánuði Innlent Ágreiningur innan stjórnarinnar brýst upp á yfirborðið Erlent Fleiri fréttir Viktor hvetur forsetaframbjóðendur til að sniðganga Stöð 2 Skipstjórinn og tveir stýrimenn handteknir vegna sjóslyssins Óvinnufær eftir harkalegt fall þegar strappur slitnaði Skipuð aðstoðarlögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu Valdimar Hermannsson nýr sveitarstjóri Vopnafjarðarhrepps Bjarni ætlar að geta Katrínar í formálanum Þórey í Konukoti hlaut mannréttindaverðlaun Reykjavíkur Nafnið Hroði of hroðalegt Fékk sting í hjartað þegar hann sá nafnið á bátnum Um 920 mál óafgreidd hjá kærunefnd útlendingamála Færa almannavarnastig niður á óvissustig vegna vatnslagnarinnar Fólk muni ekki borga 200 þúsund fyrir „heimili sem það notar sem sumarbústað“ Vísbending um að flutningaskip hafi hvolft bátnum Skikkar lögreglu til að rannsaka stjórn aðventista Sjóslys, Þórkatla og framtíð Play Kvikusöfnunin áfram stöðug Tóku niður íslenska svikasíðu með FBI Hafna tilboðum í áætlunarflug milli Reykjavíkur og Hornafjarðar Segir rangt að gjaldskylda á nagladekk sé í skoðun „Blaut tuska í andlit Félags eldri borgara í Reykjavík“ Vilja sinna Íslendingum á Spáni betur Dregið úr hrinunni við Sýlingarfell Slapp við meiðsli á höfði og hrygg Leigan fyrir 100 fermetra hús í Grindavík 62.500 á mánuði Manni bjargað úr sjónum í nótt eftir að bátur hans sökk Um 800 börn bíða eftir leikskólaplássi í Reykjavík Meinleysisgrey sem séu lífríkinu afar mikilvæg Sjö smáskjálftar við Sýlingarfell og Veðurstofan fylgist vel með „Þetta reddast“ voru fyrstu orðin sem hann lærði Lögreglan þurfi nauðsynlega auknar rannsóknarheimildir Sjá meira