Bolvíkingurinn kom Íslendingaliðinu á bragðið

Andri Rúnar Bjarnason fagnar innilega.
Andri Rúnar Bjarnason fagnar innilega. Ljósmynd/Esbjerg

Esbjerg hafði betur gegn Fremad Amager á heimavelli í dönsku B-deildinni í fótbolta í dag, 2:0.

Andri Rúnar Bjarnason byrjaði á varamannabekk Esbjerg en hann kom liðinu á bragðið á 70. mínútu, stundarfjórðungi eftir að hann kom inn á sem varamaður. Markið var það þriðja sem Andri skorar á leiktíðinni. 

Kjartan Henry Finnbogason lék allan leikinn með Esbjerg, sem Ólafur Helgi Kristjánsson þjálfar. Esbjerg er í öðru sæti deildarinnar með 45 stig, fimm stigum á eftir toppliði Viborg.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert