Fimm til viðbótar reknir vegna dauða Nichols Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar 31. janúar 2023 14:36 Íbúar í hverfi Nichols safnast saman til að minnast hans á staðnum sem handtakan fór fram. AP Photo/Gerald Herbert Tveimur lögreglumönnum, til viðbótar við þá fimm sem hafa þegar verið reknir, hefur verið sagt upp vegna dauða Tyre Nichols í Memphis í Bandaríkjunum. Þá hafa þrír sjúkraflutningamenn verið reknir fyrir að hafa ekki brugðist rétt við.
Tyre Nichols lést 10. janúar síðastliðinn, þremur dögum eftir að hafa verið barinn til óbóta af lögreglumönnum. Hann hafði verið stöðvaður af lögreglunni við umferðareftirlit en að því er virðist án tilefnis hófu lögreglumennirnir barsmíðar. Í myndbandi, sem lögregluembættið í Memphis birti um helgina, af atvikinu sést að það voru mun fleiri en lögreglumennirnir fimm á vettvangi sem brugðust Nichols. Fram kemur í nýrri frétt AP um málið að lögreglumanninum Preston Hemphill, sem er hvítur á hörund, hafi verið sagt upp störfum stuttu eftir að atvikið kom upp þann 7. janúar. Sama dag hafi öðrum lögreglumanni verið sagt upp en lögregluembættið hefur ekki gefið upp nafn hans. Þannig hefur sjö lögreglumönnum verið sagt upp störfum vegna dauða Nichols. Þeir fimm sem fyrstir misstu vinnuna vegna atviksins voru allir svartir á hörund, eins og Nichols, en þeir hafa einnig verið ákærðir fyrir manndráp af gáleysi og önnur brot í tengslum við dauða Nichols. Biðu í 27 mínútur með að flytja hann á sjúkrahús Þá hefur slökkviliðið í Memphis sagt upp sjúkraliðunum Robert Long, JaMicheal Sandridge og Michelle Whitaker. Öll hafa þau verið send áður í leyfi frá störfum. Gina Sweat, slökkviliðsstjóri, sagði í yfirlýsingu í dag að slökkviliðinu hafi borist beiðni frá lögreglu um að koma manneskju, sem hafði verið úðuð með piparspreyi, til aðstoðar. Sjúkraliðarnir hafi komið á vettvang klukkan 20:41 þann 7. janúar en þá lá Nichols handjárnaður við lögreglubíl. Long og Sandridge hafi ekki framkvæmt fullnægjandi skoðun á Nichols. Whitaker hafi beðið inni í bíl með bílstjóra. Klukkan 20:55 hafi verið hringt á sjúkrabíl, sem hafi lagt af stað með Nichols á sjúkrahús klukkan 21:08 - 27 mínútum eftir að Long, Sandridge og Whitaker komu á vettvang. Innanhúsrannsókn hafi leitt það í ljós að Long Sandridge og Whitaker hafi brotið fjölda verklagsregla og hafi ekki uppfyllt kröfur embættisins. Hörð viðbrögð vegna málsins Dauði Nichols hefur vakið hörð viðbrögð vestanhafs og framkomu viðbragðsaðila þetta kvöld verið mótmælt víða. Sérstaklega mikil reiði blossaði eftir að myndband af atvikinu var birt um helgina þar sem sást að lögregla skaut Nichols með rafbyssu, barði hann með kylfum og hnefum. Nichols, sem var aðeins 29 ára gamall, lét eftir sig ungt barn en hann heyrðist á myndbandinu kalla á hjálp móður sinnar. Eftir að Nichols misst meðvitund létu lögreglumenn hann liggja á götunni í nokkrar mínútur á meðan þeir spjölluðu. Fleiri viðbragðsaðilar voru þá komnir á vettvang, til að mynda tveir fulltrúar frá fógetanum í Shelby sýslu. Hvorugur þeirra kom Nichols til aðstoðar þar sem hann lá meðvitundarlaus og báðir hafa verið sendir í launalaust leyfi á meðan þáttur þeirra í málinu er til rannsóknar.
Bandaríkin Kynþáttafordómar Tengdar fréttir Sýnir hvernig harkaleg meðferð lögreglu leiddi til dauða Nichols: „Ég er bara að reyna að komast heim“ Nýbirt myndskeið sýnir hvernig hópur lögreglumanna kýldi og sparkaði ítrekað í Tyre Nichols á meðan hann lá máttlítill á jörðinni og kallaði eftir aðstoð móður sinnar. Atvikið, sem átti sér stað í Memphis í Bandaríkjunum þann 7. janúar síðastliðinn, hefur vakið upp mikla reiði í þar í landi en þremur dögum síðar lést hinn 29 ára Nichols á sjúkrahúsi af völdum áverka. 28. janúar 2023 10:33 Biden biður fólk um að halda ró sinni Joe Biden Bandaríkjaforseti hvetur fólk í Tennessee ríki til að halda ró sinni en þar ríkir mikil reiði eftir að fimm lögreglumenn í Memphis börðu tuttugu og níu ára gamlan mann til dauða. 27. janúar 2023 07:56 Bandarískir lögreglumenn ákærðir fyrir að hafa barið mann til dauða Fimm bandarískir lögreglumenn hafa verið ákærðir fyrir að hafa barið mann til dauða. Lögregla stöðvaði manninn, Tyre Nichols, við umferðareftirlit í borginni Memphis í Tennessee fyrr í mánuðinum. 26. janúar 2023 19:25 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið „Í fangelsi eins og á Litla-Hrauni gerist allt“ Innlent „Þetta breytti mér mjög mikið sem persónu“ Innlent Viðurkennir að hafa gengið of hart fram Innlent Eldinum í bílnum fylgdi heljarinnar sprenging Innlent Endurnýja spá um lok umbrota við Grindavík Innlent Búast má við slyddu Veður Ný sýn fékk meirihluta Innlent Sú sem var oftast nefnd ekki ein af fjórum efstu í könnunum Innlent Ísraelsmenn vísa fréttamönnum á dyr Erlent Frestun verkfalla kemur til greina Innlent Fleiri fréttir Ísrael samþykkir ekki vopnahlé Ísraelsmenn vísa fréttamönnum á dyr Íhaldsflokkurinn laut í lægra haldi í sveitarstjórnarkosningum Tuga enn saknað og 55 látnir Verður borgarstjóri Lundúna þriðja kjörtímabilið í röð Auka viðbúnað í aðdraganda Eurovision Forseti Argentínu skýtur föstum skotum á spænsku ríkisstjórnina Berlínarborg vill losna við glæsivillu Göbbels Flugvél Atlanta á tæpasta vaði í Ríad Varaforsetaefni í bobba vegna hundsdráps og meints fundar með Kim Kreml fordæmir ummæli Macrons og Camerons Reyna að sækja fyrsta sýnið frá fjærhlið tunglsins Hlustuðu á Trump og Cohen tala um þagnargreiðslu Danir rýmka reglur um þungunarrof Þrjátíu látnir og tuga saknað eftir flóð í Brasilíu Segja frumvarp um gyðingaandúð í andstöðu við Biblíuna Tyrkir stöðva öll viðskipti við Ísrael „Mun ekki halla mér aftur og leyfa deyjandi sjónvarpsstöð að ráðast á mig“ Segir fólk eiga rétt til mótmæla en ekki til óreiðu Umfangsmikil mótmæli vegna „rússneskra“ laga í Georgíu Enn í basli með skemmdir á hitaskildi Orion Vornanen kastað úr þingflokknum Hafa engin varnarvirki til að hörfa í Yfirstandandi kosningar á Englandi prófsteinn fyrir Íhaldsflokkinn Viðbrögð Hamas við vopnahléstillögunum „neikvæð“ Hundruð lögreglumanna í viðbragðsstöðu vegna mótmæla í UCLA Vilja endurupptöku í máli Weinstein Þrjú hundruð handtekin í Columbia-háskóla Stuðningur við dönsku ríkisstjórnina aldrei verið minni Mótmælendur og gagnmótmælendur tókust á Sjá meira
Sýnir hvernig harkaleg meðferð lögreglu leiddi til dauða Nichols: „Ég er bara að reyna að komast heim“ Nýbirt myndskeið sýnir hvernig hópur lögreglumanna kýldi og sparkaði ítrekað í Tyre Nichols á meðan hann lá máttlítill á jörðinni og kallaði eftir aðstoð móður sinnar. Atvikið, sem átti sér stað í Memphis í Bandaríkjunum þann 7. janúar síðastliðinn, hefur vakið upp mikla reiði í þar í landi en þremur dögum síðar lést hinn 29 ára Nichols á sjúkrahúsi af völdum áverka. 28. janúar 2023 10:33
Biden biður fólk um að halda ró sinni Joe Biden Bandaríkjaforseti hvetur fólk í Tennessee ríki til að halda ró sinni en þar ríkir mikil reiði eftir að fimm lögreglumenn í Memphis börðu tuttugu og níu ára gamlan mann til dauða. 27. janúar 2023 07:56
Bandarískir lögreglumenn ákærðir fyrir að hafa barið mann til dauða Fimm bandarískir lögreglumenn hafa verið ákærðir fyrir að hafa barið mann til dauða. Lögregla stöðvaði manninn, Tyre Nichols, við umferðareftirlit í borginni Memphis í Tennessee fyrr í mánuðinum. 26. janúar 2023 19:25