Stóra bílasalan braut lög um auglýsingar

Stóra bílasalan braut lög.
Stóra bílasalan braut lög. mbl.is/Árni Sæberg

Stóra bílasalan braut lög þegar hún auglýsti söluvöru sína með villandi hætti og bauð upp á 100% lánamöguleika samkvæmt ákvörðun Neytendastofu.

Neytendastofa bannar Stóru bílasölunni að viðhafa sömu viðskiptahætti og leiddu til brotsins og segir að til sekta muni koma lúti bílasalan ekki banninu.

Stóra bílasalan auglýsti bíl undir því yfirskini að hann væri „ódýrasti smájeppinn fyrir íslenskar aðstæður“ og barst Neytendastofu ábending um það. Einnig bárust athugasemdir um að lögboðnar upplýsingar skorti um lán sem bílasalan bauð upp á og þá var gerð athugasemd við auglýsingu um að fáanleg væru „allt að 100%“ bílalán.

„Neytendastofa telur að auglýst bifreið Stóru bílasölunnar geti talist staðgönguvara bifreiðar sömu tegundar frá öðrum seljanda þótt þær séu ekki nákvæmlega sambærilegar þannig að þær hafi alla sömu aukahluti eða aukabúnað. Í slíkum tilvikum verður þó að greina frá því ef varan er ekki sambærileg því val neytenda við kaup á bifreið ræðst af fleiri þáttum en kaupverði. Þannig getur aukabúnaður bifreiðar vegið mikið í þessu mati neytenda enda telur Neytendastofa að það teljist til óréttmætra og villandi viðskiptahátta að bera saman ósambærilegar vörur í auglýsingatilgangi,“ segir meðal annars í ákvörðun Neytendastofu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert