Bitnar á íslenskum iðnaði

Guðmundur Ásgeirsson, framkvæmdastjóri Á. Guðmundsson, gagnrýnir innkaupastefnu hins opinbera.
Guðmundur Ásgeirsson, framkvæmdastjóri Á. Guðmundsson, gagnrýnir innkaupastefnu hins opinbera. mbl.is/Ófeigur

Þegar hið opinbera ræðst í framkvæmdir og innkaup er mikilvægt að íslenskir hönnuðir og framleiðendur sitji við sama borð og innflytjendur og erlendir framleiðendur. Ef fyrsta hugsun er alltaf sú að sækja vörur og þjónustu til útlanda verður aldrei til öflugur innlendur iðnaður.

Þetta segir Guðmundur Ásgeirsson, framkvæmdastjóri Á. Guðmundsson, en tilefnið er væntanleg kaup hins opinbera á húsgögnum í nýbyggingum í miðborginni.

T.d. hafa fulltrúar Landsbankans ferðast til Lundúna við undirbúning nýrra höfuðstöðva til að kynna sér verkefnamiðaða vinnuaðstöðu.

Átak um að kaupa íslenskt

Jóhanna Klara Stefánsdóttir, sviðsstjóri mannvirkjasviðs hjá Samtökum iðnaðarins, sagði í samtali við ViðskiptaMoggann í síðustu viku að þetta væri athyglisvert í ljósi þess að stjórnvöld stæðu nú fyrir átaksverkefninu Látum það ganga, sem gengur út á að hvetja til kaupa á íslenskri vöru og þjónustu.

Guðmundur tekur undir með Jóhönnu og segir val á íslenskri þjónustu hafa margfeldisáhrif.

Þá sé alþekkt í Evrópu að lönd geri innlendri hönnun og framleiðslu hærra undir höfði með ýmsum leiðum. Það sé ljóst að umræddar nýbyggingar muni vekja mikla athygli, jafnvel út fyrir landsteinana og því sé það kjörið tækifæri til að gefa íslenskum iðnaði byr undir báða vængi.

Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK