Lyfjaskortur í Bandaríkjunum eykst um 30 prósent Hólmfríður Gísladóttir skrifar 23. mars 2023 11:54 Lyfjaskortur getur ógnað þjóðaröryggi, sagði á nefndarfundinum í gær. Lyfjaskortur í Bandaríkjunum jókst um 30 prósent á síðasta ári samanborið við árið 2021. Meðalbiðtími eftir því að lyf yrðu aftur fáanleg voru átján mánuðir en lyf hafa verið ófáanleg í allt að fimmtán ár.
Þetta var meðal þess sem fram kom á opnum fundi þjóðaröryggisnefndar öldungadeildar Bandaríkjaþings í gær. Meðal þeirra lyfja sem skortur hefur verið á eru algeng sýklalyf, svæfingalyf og vökvar sem eru notaðir til að halda lyfjaslöngum hreinum. Öldungadeildarþingmaðurinn Gary Peters, formaður nefndarinnar, sagði skortinn ekki aðeins ógn við velferð sjúklinga heldur einnig ógn gegn þjóðaröryggi. Ástæður lyfjaskortsins voru sagðar margvíslegar; meðal annars ýmsir efnahagslegir þættir, ógegnsæ birgðakeðja og sú staðreynd að 80 til 90 prósent allra lyfja væru framleidd utan landsteinanna. Meðal þeirra sem báru vitni fyrir þingnefndinni var krabbameinsskurðlæknirinn Andrew Shuman, sem sagði skort á krabbameinslyfjum „hægfara harmleik“. Hann nefndi sem dæmi nýlegan skort á krabbameinslyfinu etópósíð, sem varð til þess að hann varð að ákveða með sér hver ætti að fá lyfið og hver ekki. „Sem læknir sem hefur helgað líf sitt baráttunni gegn krabbameini, þá er erfitt að tjá það hversu hræðilegt það er,“ sagði Shuman. Hann sagði að lyfjafræðingi hefði tekist að láta lyfjaforða sjúkrahússins duga í það skiptið en að það ætti ekki að vera undir þeim komið að reyna að nýta hvern einasta dropa þegar líf væru í húfi. Etópósíð er á sérlyfjaskrá Lyfjastofnunar en ekki á skrá yfir lyf sem skortur er á. Vimala Raghavendran, yfirmaður hjá stofnuninni U.S. Pharmacopeia, sem vinnur að því að tryggja öruggar lyfjabirgðir, sagði starfsmenn sína hafa komist að því að þau lyf sem helst myndaðist skortur á væru ódýr lyf, lyf sem væru flókin í framleiðslu eða lyf sem hefðu ekki staðist gæðakröfur og verið innkölluð. Þá var bent á að ódýrustu lyfin væru gjarnan framleidd á afmörkuðum svæðum á Indlandi og í Kína, þar sem framleiðslan kostaði lítið, en á sama tíma væri framleiðslan viðkvæm fyrir utanaðkomandi áhrifum á borð við náttúruhamfarir eða pólitískan óróa. Sérfræðingar sem mættu fyrir nefndina sögðu að gera mætti ýmsar úrbætur, til að mynda fylgjast betur með framboði af virkum efnum í lyfjaframleiðslu. Þá mætti fylgjast betur með frammistöðu framleiðenda og verðlauna þá sem stæðu sig hvað varðar framboð og gæði. Krabbameinslæknirinn Shuman var einn þeirra sem sagði nauðsynlegt að taka upp hvata fyrir fyrirtæki sem framleiddu ódýr en nauðsynleg lyf. Til að mynda hefði myndast skortur á augndropum sem væru hræódýrir en réðu úrslitum um það hvort ákveðinn sjúklingahópur héldi sjóninni eða yrði blindur. Benti hann á að smásöluverð lyfja endurspeglaði ekki alltaf mikilvægi þeirra fyrir sjúklinga. New York Times greindi frá.
Bandaríkin Lyf Heilbrigðismál Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Litaðir seðlar til skoðunar og málið á mjög viðkvæmu stigi Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Sagðist ætla að nota tíu milljón króna kókaín allt sjálfur Innlent Sér eftir Landsdómsmálinu: „Ég myndi aldrei gera þetta svona aftur“ Innlent Yrði gagnkynhneigður maður spurður sömu spurningar? Innlent „Hinsegin fólk þekkir vel að vera smættað niður í einkalíf sitt“ Innlent Íslenskar stjörnur fái peninga að gjöf til að leggja undir í veðmálum Innlent Hátíðardagskrá víða um land á verkalýðsdaginn Innlent Sniglar hægja á umferð Innlent Mótmælendur og gagnmótmælendur tókust á Erlent Fleiri fréttir Stuðningur við dönsku ríkisstjórnina aldrei verið minni Mótmælendur og gagnmótmælendur tókust á Trump sektaður um meira en milljón króna Rússar sagðir nota skotflaugar frá Norður-Kóreu Þrettán ára drengur stunginn til bana með sverði Særði minnst fimm með sverði í Lundúnum Íslendingur sem lúbarði lögreglumenn í Varsjá þarf að borga brúsann Fjórir lögreglumenn skotnir til bana í Charlotte Rostungur sem fannst í fyrra drapst af völdum fuglaflensu Hvetur Hamas til að ganga að rausnarlegum tillögum Ísrael Flugvöllur Færeyinga fær að taka við stærri þotum Yousaf segir af sér sem ráðherra og formaður Skoska þjóðarflokksins Sánchez hættir við að segja af sér Grafið undan fjölmiðlafrelsinu víða í Evrópu Vopnahlé í sjónmáli? Tveir látnir eftir að bíll hafnaði í sjónum við Stokkhólm Fjölmenn mótmæli vegna ofbeldisbylgju í Ástralíu Vasaúr ríkasta manns Titanic seldist á 210 milljónir Þúsundir hvöttu Sánchez til að segja ekki af sér Skoða að færa Mónu Lísu í eigið herbergi Harvey Weinstein lagður inn á spítala Þingmaður hleypti af skoti fyrir utan skemmtistað Rýma dómshús vegna sprengjuhótunar Dómstóll fyrirskipar handtöku landbúnaðarráðherra Selenskís Ákvörðun áfrýjunardómstólsins áfall og stórt skref aftur á bak Trump líklegur til að græða á úrskurði Hæstaréttar Dómi Harvey Weinstein snúið við Tekur fyrir að hafa verið „hermaður Hitlers“ Maður á sextugsaldri sagður hafa stungið grunnskóladreng Sánchez íhugar að segja af sér vegna meintrar spillingar Sjá meira