Byrjar að spila eftir landsleikjahléð

Gareth Bale er kominn aftur til Tottenham.
Gareth Bale er kominn aftur til Tottenham. AFP

José Mourinho knattspyrnustjóri Tottenham Hotspur segir að Gareth Bale muni byrja að spila með liðinu eftir landsleikjahléið í október. Bale er kominn til félagsins á ný í láni frá Real Madrid eftir sjö ára dvöl þar.

Tottenham á eftir að spila fjóra leiki fram að þeim tíma, gegn Leyton Orient í deildabikarnum, gegn Shkëndija í Evrópudeildinni og gegn Newcastle og Manchester United í úrvalsdeildinni.

Fyrsti leikur eftir landsleikjahléið er á heimavelli gegn West Ham 17. október. „Hann er yfir sig ánægður með að vera kominn aftur í félagið sem stendur hjarta hans næst. Hann er yfir sig ánægður með að vera að fara að spila með okkur. Þegar leikmaður er með slíka hvatningu er hægt að stytta undirbúningstímann og þann tíma sem hann þarf til að verða leikfær," sagði Mourinho á fréttamannafundi í dag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert