„Þegar mótið er hálfnað erum við á fjandi góðum stað“ Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 23. febrúar 2021 20:30 Arnar Daði, þjálfari Gróttu. Vísir/Vilhelm Gróttumenn gerðu sér lítið fyrir og unnu sex marka sigur á Selfyssingum, 26-20, sem eru með eitt best mannaða lið landsins. Í upphafi leiktíðar var það talið nánast vonlaust verk að gera Gróttu að samkeppnishæfu liði í deild þeirra bestu.
Annað hefur komið á daginn en Grótta er með níu stig í 10. sæti deildarinnar. „Skrítið, við förum upp þarna í miðju Covid og okkur fannst á einhverjum tímapunkti eins og leikmannaglugginn væri ekkert alltof stór. Þegar uppi er staðið náðum við í frábæra blöndu af leikmönnum, óreyndir leikmenn sem hafa fengið fá tækifæri í bland við leikmenn sem hafa spilað margar mínútur og mörg tímabil í deildinni. Þegar uppi er staðið og mótið er hálfnað erum við á fjandi góðum stað,“ sagði Arnar Daði Arnarsson, þjálfari Gróttu, í viðtali við Sportpakka Stöðvar 2 í kvöld. „Maður er að reyna njóta augnabliksins. Þetta er ekkert sjálfsagt. Það er ekkert sjálfsagt að liðið sé svona samrýnt, allir séu klárir í bátana og menn geri það sem þeim er sagt að gera. Við æfum mjög vel, það eru langir myndbandsfundir en það virðist ekki skipta neinu máli. Þegar menn sjá að þeir eru að uppskera þá eru þeir tilbúnir að leggja meira á sig en vanalega.“ „Ég segi bara sem betur fer erum við að ná í þessa tvo sigurleiki núna í röð og þrátt fyrir við séum bara með þrjá sigurleiki eftir 11 leiki erum við búnir að sýna það og sanna að undirbúningur hjálpar liðum mikið. Þetta snýst um svo marga þætti,“ sagði Arnar Daði að lokum. Klippa: Sportpakkinn: Viðtal við Arnar Daða Ítarlegra viðtal við Arnar Daða verður birt á Vísi í fyrramálið.
Handbolti Íslenski handboltinn Olís-deild karla Grótta Sportpakkinn Tengdar fréttir Arnar Daði: Við erum bara f******* góðir „Þetta er bara frábær sigur, og ég var að segja við strákana að þetta er ekkert sjálfsagt,“ sagði Arnar Daði Arnarsson þjálfari Gróttu eftir sigurinn gegn Selfoss í kvöld. 22. febrúar 2021 21:26 Umfjöllun og viðtöl: Selfoss - Grótta 20-26 | Grótta skellti heimamönnum Grótta vann í kvöld sterkan sex marka sigur gegn Selfoss í Hleðsluhöllinni, lokatölur 20-26. Stefán Huldar átti stórleik í marki Gróttu og var með 19 varin skot, eða um 49% markvörslu. Gestirnir voru sterkari aðilinn stærstan hluta leiksins og sigurinn verðskuldaður gegn ríkjandi Íslandsmeisturum. 22. febrúar 2021 20:53 „Greinilega mikill tilfinninga rússíbani þessi frumraun hans í Olís deildinni“ Farið var yfir dramatískan sigur Gróttu á Fram í Olís deild karla í Seinni bylgjunni í gær. Þjálfari Gróttu mætti í skrautlegt viðtal að leik loknum, fóru Henry Birgir Gunnarsson og sérfræðingar þáttarins yfir það. 20. febrúar 2021 13:50 Mest lesið Remy Martin ekki meira með í þessari úrslitakeppni Körfubolti Fengið nóg af því að vera ruslakista fyrir viðbjóð frá fólki Körfubolti „Vestri hefur verið að taka leikhlé“ Íslenski boltinn „Af hverju þurfa þeir meiri athygli, er þetta ekki bara fínt?“ Körfubolti LeBron gæti fengið sig lausan frá Lakers og verið án félags í sumar Körfubolti Dagskráin í dag: Stórleikir og stórstjörnur út um allt Sport Courtois ekki með Belgíu á EM Fótbolti Löwen í undanúrslit þrátt fyrir fína frammistöðu Orra Freys Handbolti „Vantaði meiri breidd til þess að veita þeim harðari keppni“ Handbolti „Breytir einvíginu ansi mikið“ Körfubolti Fleiri fréttir Löwen í undanúrslit þrátt fyrir fína frammistöðu Orra Freys „Vantaði meiri breidd til þess að veita þeim harðari keppni“ „Náðum að stilla spennustigið betur í hálfleik“ Uppgjörið: Valur - ÍBV 30-22 | Valskonur mættu með sópinn gegn ÍBV Teitur Örn og félagar í undanúrslit þrátt fyrir tap Aldís Ásta frábær þegar Skara komst í undanúrslit Sigvaldi Björn markahæstur þegar Kolstad komst í úrslit Hrafnhildur Anna til Stjörnunnar Sveinn til Kolstad og vill ólmur læra af Gullerud Valsmenn spila fyrri leikinn á heimavelli Uppgjör,viðtöl og myndir : FH - ÍBV 28-29 | Elmar neitaði að fara í sumarfrí Valsmenn fyrstir í úrslit Evrópukeppni í 44 ár Ættingjarnir ábyggilega þreyttir á manni Sigrar hjá Íslendingaliðunum Óðinn Þór bikarmeistari í Sviss Fimm mörk Hauks þegar Kielce komst í úrslit Arnór stökk til: „Hugsaði að við hefðum engu að tapa“ „Það var ekkert annað í hausnum á mér“ Uppgjörið: Haukar 28-25 Fram | Aftur unnu Haukakonur eftir framlengingu Þórey Anna mögnuð og Valur sigri frá úrslitum „Þá á bara að gefa tilkynningu út af hálfu HSÍ“ Teitur hafði betur í Íslendingaslagnum Sveinn í sigti Kolstad FH-ingar skrefi nær úrslitaeinvíginu Bjarki Már atkvæðamikill í dramatískum sigri Bjarni í Selvindi semur við Val Norðmenn töpuðu milljónum á því að halda HM í handbolta „Þetta einvígi er bara rétt að byrja“ Uppgjörið: Afturelding 28-25 Valur | Mosfellingar leiða einvígið eftir sveiflukenndan leik Haukur hafði betur í Meistaradeildarslagnum við Magdeburg Sjá meira
Arnar Daði: Við erum bara f******* góðir „Þetta er bara frábær sigur, og ég var að segja við strákana að þetta er ekkert sjálfsagt,“ sagði Arnar Daði Arnarsson þjálfari Gróttu eftir sigurinn gegn Selfoss í kvöld. 22. febrúar 2021 21:26
Umfjöllun og viðtöl: Selfoss - Grótta 20-26 | Grótta skellti heimamönnum Grótta vann í kvöld sterkan sex marka sigur gegn Selfoss í Hleðsluhöllinni, lokatölur 20-26. Stefán Huldar átti stórleik í marki Gróttu og var með 19 varin skot, eða um 49% markvörslu. Gestirnir voru sterkari aðilinn stærstan hluta leiksins og sigurinn verðskuldaður gegn ríkjandi Íslandsmeisturum. 22. febrúar 2021 20:53
„Greinilega mikill tilfinninga rússíbani þessi frumraun hans í Olís deildinni“ Farið var yfir dramatískan sigur Gróttu á Fram í Olís deild karla í Seinni bylgjunni í gær. Þjálfari Gróttu mætti í skrautlegt viðtal að leik loknum, fóru Henry Birgir Gunnarsson og sérfræðingar þáttarins yfir það. 20. febrúar 2021 13:50