Flugvallarstæði í Hvassahrauni á hættusvæði Heimir Már Pétursson skrifar 2. mars 2021 19:21 Mögulegt flugvallastæði í Hvassahrauni. Grafík/HÞ Samgönguráðherra segir að ef umbrotin á Reykjanesi leiði til eldgoss kalli það á endurmat á Hvassahrauni sem flugvallarkosti. Sérfræðingar segja Hvassahraun á hættusvæði, fari að gjósa.
Í nýju hraunflæðilíkani er gert ráð fyrir að hraun muni renna í nágrenni og jafnvel yfir mögulegt flugvallastæði í Hvassahrauni eins og sést á bleiku flekkjunum á meðfylgjandi mynd, ef gos hæfist á Reykjanesi í yfirstandandi jarðhræringum. Njáll Trausti Friðbertsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins telur ekki vænlegt að byggja nýjan flugvöll í Hvassahrauni. Hann er einn helstu baráttumanna fyrir því að Reykjavíkurflugvöllur fái að starfa áfram.Vísir/Vilhelm Njáll Trausti Friðbertsson kom inn á þessi mál í sérstakri umræðu um innviði og þjóðaröryggi á Alþingi í dag. „Værum við til dæmis þessa dagana vel sett með innanlandsflugvöll í Hvassahrauni. Væri það skynsamlegt ef til meiriháttar hamfara kæmi að vera með innanlandsflugið í uppnámi vegna staðsetningar í Hvassahrauni, Reykjanesbrautina lokaða vegna hraunrennslis og þar af leiðandi ótryggar samgöngur við alþjóðaflugvöllinn í Keflavík,“ spurði Njáll Trausti en hann hefur farið framarlega í baráttunni fyrir því að ekki verði hreyft við Reykjavíkurflugvelli. Samgönguráðherra segir samkomulag við Reykjavíkurborg frá nóvember 2019 um tveggja ára rannsóknir á kostum flugvallar í Hvassahrauni standa. En núverandi staða hljóti að koma til skoðunar í þeim efnum.Vísir/Vilhelm Sigurður Ingi Jóhannsson samgönguráðherra segir samkomulag ríkis og borgar um könnun á kostum Hvassahrauns enn standa. En fyrstu rannsóknum á að ljúka undir lok þessa árs. „Hins vegar er náttúrlega ljóst að ef þarna er að fara að gerast atburðir af þessari stærðargráðu þá mun það örugglega koma til endurmats,“ segir Sigurður Ingi. Þorvaldur Þórðarson sem er einn helsti sérfræðingur landsins í hraunflæði segir að ef eldgos verði á þeim stað sem mestar líkur væru á því nú yrði flugvallarstæði í Hvassahrauni á hættusvæði.Stöð 2/Sigurjón Þorvaldur Þórðarson eldfjallasérfræðingur segir að samkvæmt nýjustu spá myndi annað hvort gjósa rétt sunnan við Keili eða austan við Trölladyngju í Móhálsadal, gjósi á annað borð á næstunni. „Þá myndi hraun flæða norður og niður Hrútagjágengjuna í átt að Hafnarfirði og síðan í áttina líka að fyrirætluðu flugvallarstæði.“ Að hraun færi að minnsta kosti í kringum flugvallarsvæðið og jafnvel á það? „Það gæti þess vegna farið yfir það. En mjög líklega í grennd við það. Einfaldasta leiðin til að líta á þetta er að flugvallarstæðið er inn á hættusvæði hvað hraunflæði varðar,“ segir Þorvaldur Þórðarson. Ljós- og dökkbleiku flekkirnir á þessari mynd frá sérfræðingum Háskóla Íslands sýna hvar hraun mun líklegast flæða gjósi þar sem mestar líkur eru á gosi miðað við stöðuna í dag.
Jarðhræringar á Reykjanesi Reykjavíkurflugvöllur Keflavíkurflugvöllur Fréttir af flugi Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Hundrað milljarða fjárfesting í uppnámi Innlent Beðnir um að senda börnin sín með net vegna flugnafaraldurs Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Bréf Eggerts kom flatt upp á bæjarstjórnarmenn Innlent Forsætisráðherra Slóvakíu í lífshættu eftir skotárás Erlent Halla þótti standa sig best Innlent Gjörbreytt bílpróf en segja hvergi slegið af kröfum Innlent „Köld vatnsgusa“ framan í skólasamfélagið í Laugardal Innlent Þetta er vitað um árásarmanninn Erlent Meinleysisgrey sem séu lífríkinu afar mikilvæg Innlent Fleiri fréttir Um 800 börn bíða eftir leikskólaplássi í Reykjavík Meinleysisgrey sem séu lífríkinu afar mikilvæg Sjö smáskjálftar við Sýlingarfell og Veðurstofan fylgist vel með „Þetta reddast“ voru fyrstu orðin sem hann lærði Lögreglan þurfi nauðsynlega auknar rannsóknarheimildir Mikill meirihluti hlynntur dánaraðstoð Fátt ef nokkuð stöðvar eldislaxinn Segir seinlæti First Water stórfurðulegt Hæstiréttur segir tíma í flugvél vera vinnutíma Vill ræða brottvísun til Nígeríu í nefnd: „Skelfileg ásýnd á þessu máli“ Gjörbreytt bílpróf en segja hvergi slegið af kröfum Fagna framfaraskrefi ráðherra en vilja afnema tilvísanakerfið Þórdís í sendinefnd til Georgíu vegna umdeildra laga Maðurinn fannst heill á húfi Hundaskítur fyrir utan kosningamiðstöð Baldurs vekur spurningar Skilur uppnám skólasamfélagsins í Laugardal en horfa þurfi á staðreyndir Bréf Eggerts kom flatt upp á bæjarstjórnarmenn Flugvél Icelandair þurfti að snúa við Píratar hafa áhyggjur af skorti á eftirliti með lögreglu Úr 256 pakkningum á mánuði upp í sex þúsund Útlendingalög, tilvísanir og skólabygging í Laugardal Fólk setji símana á akstursstillingu til að koma í veg fyrir slys Hundrað milljarða fjárfesting í uppnámi Beðnir um að senda börnin sín með net vegna flugnafaraldurs „Nú verður þú bara að spyrja Bjarna“ Halla þótti standa sig best Ísland hástökkvari á Regnbogakortinu Stefni í endurtekningu á síðasta vori Nýir fatasöfnunargámar á leið til landsins Forsetaframbjóðendur mæta í kappræður á Stöð 2 og Vísi Sjá meira