Mikil líkindi með framgöngu áströlsku sérsveitarinnar í Afganistan og kanadíska Sómalíu-hneykslinu Hólmfríður Gísladóttir skrifar 3. desember 2020 16:34 Glæpir áströlsku sveitarinnar áttu sér stað á árunum 2009-2013. epa/Paul Miller Fyrrverandi varnarmálaráðherra Kanada segir að eina leiðin til að uppræta kerfislæg „menningarvandamál“ og endurheimta orðspor kanadíska hersins í kjölfar svokallaðs Sómalíu-hneykslis, hafi verið að leysa upp umrædda hersveit.
Mikil líkindi þykja með Sómalíu-hneykslinu og því máli sem nú er til rannsóknar innan ástralska hersins en samkvæmt nýrri skýrslu tóku 19 úrvalssveitarmenn þátt í því að myrða 39 almenna borgara í Afganistan á árunum 2009-2013. Í skýrslu Australian Defence Force segir m.a. að morðin megi rekja til „stríðsmannakúltúrs“ innan sveitarinnar en nýliðar voru t.d. „vígðir“ með því að láta skjóta fanga. Þá tóku menn lögin í eigin hendur og gengust upp í því að vera útvaldir og „sérstakir“. Stilltu sér upp með fórnarlambinu og tóku myndir Sómalíu-hneykslið snérist um hermenn í Airborne Regiment en þeir urðu m.a. uppvísir að því að hafa pyntað og myrt 16 ára sómalskan dreng árið 1993. Þeir voru á þeim tíma hluti af friðargæsluliði Sameinuðu þjóðanna í Sómalíu. Hermennirnir tóku hryllilegar myndir þar sem þeir stilltu sér upp með hinum 16 ára Shidane Arone á meðan pyntingunum stóð en í framhaldinu komu einnig í ljós myndskeið sem sýndu hermenn láta rasísk ummæli falla og taka þátt í grimmdarlegum „busavígslum“. Málið vakti mikla reiði meðal Kanadamanna og árið 1995 ákvað David Collenette, þáverandi varnarmálaráðherra, að leysa sveitina upp og láta fallhlífaherdeildirnar þrjár sem henni tilheyrðu renna inn í aðrar sveitir. Eina leiðin til að uppræta vandann Engar fregnir hafa borist af því að áströlsk stjórnvöld séu að velta því fyrir sér að fara sömu leið en Collenette sagði í samtali við Guardian að þetta hefði verið eina leiðin til að takast á við þau djúpstæðu vandamál sem hefðu leitt til framgöngu hermannanna. „Ég er ekki að segja að bara af því að Kanada gerði þetta ættu önnur ríki að gera slíkt hið sama,“ sagði hann. „En ef þú horfir á okkar reynslu, þar sem stríðsglæpir enduðu í sakfelllingum og þær afhjúpuðu kerfislæg vandamál innan þeirra stofnana þaðan sem einstaklingarnir komu, þá virtist rökrétt, ef þú taldir þig ekki geta breytt kúltúrnum, að byrja upp á nýtt. Sem er það sem við gerðum og það virkaði.“ Collenette sagði vandann m.a. hafa verið fólginn í því að innan hersins voru menn enn að hugsa eins og þeir gerðu í heimsstyrjöldunum, í Kóreu og á tímum kalda stríðsins. Ákvörðun hans hefði komið mönnum á óvart en það hefði engu að síður verið tilfinning manna að grípa þyrfti til róttækra ráðstafana. Aðgerðirnar hefðu borið árangur; Sómalíu-hneykslið væri ljótasti bletturinn á hernaðarsögu Kanada en mikið vatn runnið til sjávar. Enginn kanadískur hermaður hefur verið ásakaður um stríðsglæp síðan. Guardian og BBC sögðu frá.
Ástralía Kanada Afganistan Hernaður Tengdar fréttir Bræði í Ástralíu vegna „ógeðslegrar“ myndar frá Kína Yfirvöld í Ástralíu hafa krafist afsökunarbeiðni frá ráðamönnum í Kína eftir að talsmaður utanríkisráðuneytis Kína deildi samsettri mynd sem sýna átti ástralskan hermann myrða stúlku í Afganistan. 1. desember 2020 15:35 Tíu hermenn til viðbótar reknir vegna stríðsglæpa í Afganistan Forsvarsemnn herafla Ástralíu hafa rekið minnst tíu hermenn sem sagðir eru hafa orðið vitni að morðum á óvopnuðum föngum í Afganistan. Áður hefur verið lagt til að minnst 19 hermenn verði rannsakaðir og mögulega ákærðir fyrir stríðsglæpi. 26. nóvember 2020 12:03 Ástralskir hermenn drápu almenna borgara í Afganistan Ástralskir sérsveitahermenn eru sagðir bera ábyrgð á að minnsta kosti þrjátíu og níu morðum sem framin voru í stríðinu í Afganistan á árunum 2009 til 2013. 19. nóvember 2020 09:32 Skýrsla um mögulega stríðsglæpi Ástrala í Afganistan mun reynast þjóðinni þungbær Scott Morrison, forsætisráðherra Ástralíu, mun skipa sérstakan saksóknara sem ætlað verður að sækja hermenn til saka vegna ásakana um stríðsglæpi í Afganistan. 12. nóvember 2020 10:08 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Meinleysisgrey sem séu lífríkinu afar mikilvæg Innlent Fico ekki talinn í lífshættu Erlent Um 800 börn bíða eftir leikskólaplássi í Reykjavík Innlent Sjö smáskjálftar við Sýlingarfell og Veðurstofan fylgist vel með Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent „Þetta reddast“ voru fyrstu orðin sem hann lærði Innlent „Heill vinnustaður er dreginn sundur og saman í háði“ Innlent Hundrað milljarða fjárfesting í uppnámi Innlent Segir seinlæti First Water stórfurðulegt Innlent Gjörbreytt bílpróf en segja hvergi slegið af kröfum Innlent Fleiri fréttir Fico ekki talinn í lífshættu Þróun ES-30 flugvélarinnar flutt frá Svíþjóð til Kaliforníu Þetta er vitað um árásarmanninn Biden skorar á Trump Forsætisráðherra Slóvakíu í lífshættu eftir skotárás Þverpólitískar tillögur um viðbrögð vegna gervigreindar FIFA byrjað að vinda ofan af umbótum eftir spillingarhneykslið Fulltrúar Talíbana á ráðstefnu í Ósló Fyrsta opinbera málverkið af konunginum Karli III afhjúpað í gær Gróðureldar ógna olíuvinnslumiðstöð í Kanada Gríðarleg leit gerð að mönnum sem frelsuðu fanga í Frakklandi Skriðdrekar Ísraelshers komnir inn í íbúðahverfi í Rafah Framámaður AfD sektaður fyrir að nota slagorð nasista Vill bjóða NATO að byggja nýjan flugvöll í Færeyjum Þorir að veðja bjór á að hún verði áfram forsætisráðherra Lokað á grein um barnadráp í Bretlandi Drápu fangaverði og hjálpuðu fanga að strjúka „Rússnesku lögin“ samþykkt í Georgíu Bendlaði Trump beint við þagnargreiðslurnar Losnar af réttargeðdeild eftir allt saman Blinken í óvænta heimsókn til Kænugarðs Megrunarlyfin nýjasta vopnið gegn hjartasjúkdómum? Fjöldi látinna á Gasa á reiki Færeyingar fjölga vindmyllum til að draga úr olíukyndingu Ein blóðugasta kosningabarátta í manna minnum „Rússneskum lögum“ hraðað áfram þrátt fyrir hávær mótmæli Þrír menn ákærðir í Bretlandi vegna tengsla sinna við Hong Kong Staðfestir flokkun AfD sem öfgasamtaka Sló eigið met á Everest Kórónuveirufaraldurinn ekkert miðað við sýklalyfjaónæmi Sjá meira
Bræði í Ástralíu vegna „ógeðslegrar“ myndar frá Kína Yfirvöld í Ástralíu hafa krafist afsökunarbeiðni frá ráðamönnum í Kína eftir að talsmaður utanríkisráðuneytis Kína deildi samsettri mynd sem sýna átti ástralskan hermann myrða stúlku í Afganistan. 1. desember 2020 15:35
Tíu hermenn til viðbótar reknir vegna stríðsglæpa í Afganistan Forsvarsemnn herafla Ástralíu hafa rekið minnst tíu hermenn sem sagðir eru hafa orðið vitni að morðum á óvopnuðum föngum í Afganistan. Áður hefur verið lagt til að minnst 19 hermenn verði rannsakaðir og mögulega ákærðir fyrir stríðsglæpi. 26. nóvember 2020 12:03
Ástralskir hermenn drápu almenna borgara í Afganistan Ástralskir sérsveitahermenn eru sagðir bera ábyrgð á að minnsta kosti þrjátíu og níu morðum sem framin voru í stríðinu í Afganistan á árunum 2009 til 2013. 19. nóvember 2020 09:32
Skýrsla um mögulega stríðsglæpi Ástrala í Afganistan mun reynast þjóðinni þungbær Scott Morrison, forsætisráðherra Ástralíu, mun skipa sérstakan saksóknara sem ætlað verður að sækja hermenn til saka vegna ásakana um stríðsglæpi í Afganistan. 12. nóvember 2020 10:08