Býr í miðri leikmynd True Detective á Dalvík Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 31. janúar 2023 22:31 Svanfríður Jónasdóttir fyrir utan heimili sitt á Dalvík. Beint fyrir framan húsið er lögreglustöðin í Ennis, sem raunar er pósthúsið á Dalvík. Vísir/Tryggvi Það stendur mikið til á Dalvík þessa dagana þar sem tökur á bandarísku spennuþáttunum True Detective eru að fara að hefjast. Búið er að klæða aðalgötu bæjarins í bandarískan búning. Fyrrverandi bæjarstjóri bæjarins býr í miðri leikmyndinni.
Um er að ræða fjórðu þáttaröð þáttanna vinsælu. Í þetta skiptið leikur stórleikkonan Jodie Foster aðalhlutverkið, rannsóknarlögreglukonuna Liz Danvers, og er hún væntanleg til Dalvíkur. Dalvík verður í gervi lítils bæjar í Alaska-ríki Bandaríkjanna. Stutt myndskeið úr þáttunum má sjá í spilaranum hér fyrir neðan, auk heimsóknar fréttamanns á tökustað. Klippa: Dalvík verður Ennis Á Dalvík er nú verið að breyta aðalgötu bæjarins í heila leikmynd. Svanfríður Jónasdóttir, fyrrverandi alþingismaður og bæjarstjóri, býr beint á móti pósthúsinu á Dalvík, sem er lögreglustöðin í Ennis. Þú ert í hringiðinni, þú átt heima hérna í miðri leikmynd. Hvernig er það? „Það hefur nú verið frekar ónæðissamt en ég er ekki að kvarta því það hefur líka verið skemmtilegt að fylgjast með þessu,“ segir Svanfríður. Búið er að klæða hús hennar að utan og byrgja gluggana sem snúa að leikmyndinni. Svanfríður lætur það hins vegar ekki angra sig. „Það er náttúrulega mjög áhugavert að horfa á miklar breytingar verða á þessu svæði. Þetta er aðalgatan í gegnum þennan Alaska-bæ sem heitir Ennis. Hér hefur mikið action verið í gangi. Það er búið að setja hér upp rafmagnsstaura eins og voru í gamla daga. Jólaskreytingar því þetta á að gerast um jól. Það er komnar nýjar merkingar, það er búið að klæða húsið mitt af að hluta. Það eru alls konar hlutir í gangi sem er mjög gaman að fylgjast með,“ segir hún. Eins og sjá má í myndskeiðinu hér fyrir ofan hefur ýmsum skiltum verið komið fyrir við Hafnarbraut, sem heitir reyndar Front Street í þáttunum. Ýmsum skiltum hefur verið komið fyrir, meðal annars þetta, sem auglýsir steikarkvöld á fimmtudögum.Vísir/Tryggvi Og ekki er annað að skilja en að Dalvíkingar séu spenntir fyrir því að vera í hringiðu Hollywood „Ég heyri nú mest í konunum sem ég er að synda með á morgnana. Ég heyri ekki betur en að þeim finnist þetta mjög spennandi. Ég er alltaf spurð, hvað er að gerast í Ennis, og ég reyni að svara því skilmerkilega,“ segir Svanfríður. Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir, sveitarstjóri Dalvíkurbyggðar er ánægð með athyglina á bænum. „Það er bara mjög skemmtileg. Ég hlakka eiginlega meira til að sjá hvernig þetta kemur út í þáttunum sjálfum. Þá er náttúrulega óskaplega gaman að hafa séð þetta byggt upp frá grunni og fylgst með því, alveg frá fyrsta degi.“
Dalvíkurbyggð Kvikmyndagerð á Íslandi Bíó og sjónvarp Tökur á True Detective á Íslandi Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Fjölskylda í norðurljósaleit hrakin á brott af leiðsögumönnum Innlent Verulega brugðið yfir Hamraborgarmálinu Innlent „Trúði því ekki að þetta væri ég“ Innlent Vilja koma böndum á bókhald trúfélaga Innlent Hátt í hundrað dauðsföll á þremur árum Innlent Líkamsárás til rannsóknar eftir nóttina Innlent Segir árásarmennina hafa ætlað til Belarús Erlent Stjórnmálamaðurinn Joe Lieberman látinn Erlent Býr á Íslandi en dæmd í sex ára fangelsi í Rússlandi Innlent Ferðaóðir Íslendingar þyrpast í ferðalög innanlands sem utan Innlent Fleiri fréttir Bjartur skírdagur fram undan í höfuðborginni Líkamsárás til rannsóknar eftir nóttina Fjölskylda í norðurljósaleit hrakin á brott af leiðsögumönnum Vilja koma böndum á bókhald trúfélaga Ferðaóðir Íslendingar þyrpast í ferðalög innanlands sem utan Verulega brugðið yfir Hamraborgarmálinu Hátt í hundrað dauðsföll á þremur árum Týndi vinningshafinn gaf sig fram og græddi níu milljónir Felldu úr gildi friðlýsingu en mátu Mumma ekki vanhæfan Kvöldfréttir Stöðvar 2 Býr á Íslandi en dæmd í sex ára fangelsi í Rússlandi Eldur í Hafnarfirði Haraldur mátti ekki hækka launin en Sigríður ekki heldur lækka þau Læknafélagið mótfallið lögleiðingu dánaraðastoðar „Trúði því ekki að þetta væri ég“ Ekki viss hvort nokkru þurfi að breyta eftir tug milljóna króna þjófnað 546 Grindvíkingar vilja selja Þórkötlu húsið sitt Steinunn Ólína hálfu skrefi frá því að bjóða sig fram Baldur mælist með langmest fylgi Stálu áli í Grindavík en gómaðir af lögreglu Útlit fyrir að gasmengun berist til vesturs og suðvesturs Hæstiréttur bannar síþrotamanni að stunda rekstur Flestir öryggishnappar vegna heimilisofbeldis Fá 82 þúsund fyrir að vinna frá átta til 23 Mikilvægt að upplýsa málið svo aðrir sjái sér ekki leik á borði Helga hellir sér í forsetaslaginn Pallborðið: Eiga læknar að aðstoða fólk við að deyja? Hættuleg gasmengun kemur í veg fyrir opnun Bláa lónsins „Galið að fara svona með opinbert fé“ Þjófanna enn leitað og óvíst hvenær Bláa lónið opnar Sjá meira