Hákon Daði fór á kostum

Hákon Daði Styrmisson er markaskorari mikill.
Hákon Daði Styrmisson er markaskorari mikill. Ljósmynd/Sigfús Gunnar

Hornamaðurinn Hákon Daði Styrmisson heldur áfram kröftugri byrjun sinni með þýska handknattleiksfélaginu Gummersbach og var markahæsti leikmaður liðsins í öruggum 35:27 sigri gegn Dessauer í þýsku B-deildinni í kvöld.

Hákon Daði skoraði 10 mörk líkt og Janko Bozovic, samherji hans hjá Gummersbach.

Elliði Snær Viðarsson lék einnig með liðinu og skoraði eitt mark. Guðjón Valur Sigurðsson þjálfar liðið.

Anton Rúnarsson lék þá með Emsdetten sem krækti í gott 31:31 jafntefli gegn Bietigheim í B-deildinni. Eftir að hafa verið undir nánast allan leikinn kom jöfnunarmarkið úr vítakasti á lokasekúndunni.

Anton skoraði þrjú mörk og lagði upp annað í kvöld.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert