Fundu steindaský í lofthjúpi fjarlægrar risareikistjörnu Kjartan Kjartansson skrifar 23. mars 2023 13:53 Teikning listamanns af fjarreikistjörnunni VHS 1256 b. Árið þar er um tíu þúsund ára langt. NASA, ESA, CSA, J. Olmsted (STScI) Ský úr sílíkötum eru á meðal þess sem James Webb-geimsjónaukinn fann í lofthjúpi fjarreikistjörnu sem er margfalt stærri en nokkur hnöttur í okkar sólkerfi. Mælingar sjónaukans á reikistjörnunni eru sagðar byltingakenndar.
Síliköt eru svokallaðar steindir sem eru byggingarefni steina. Þau innihalda kísil og súrefni, tvö algengustu frumefnin í skorpu jarðarinnar sem er að mestu leyti úr sílíkötum. Steindir af þessu tagi mynda ský hátt í andrúmslofti fjarreikistjörnunnar VHS 1256 b í um fjörutíu milljón ljósára fjarlægð frá jörðinni, að því segir í grein á Stjörnufræðivefnum. VHS 1256 b er gasrisi, um nítján sinnum efnismeiri en Júpíter. Reikistjarnan er svo stór að hún jaðrar við að vera svonefndur brúnn dvergur, smá sólstjarna þar sem kjarnasamruni nær sér þó aldrei á strik. Hún gengur um tvo brúna dverga á um tíu þúsund árum, um fjórfalt fjær móðurstjörnunum en Plútó er frá sólinni okkar. Ólgandi iðustraumar bera hita upp í háloftin Þrátt fyrir fjarlægðina er hitinn þar sem sílíkatskýin fundust um 830 gráður á Celsíus. Reikistjarnan er talin aðeins um 150 milljón ára gömul, hálfgert ungbarn á stjarnfræðilegan mælikvarða, og innri hiti hennar er enn hár. Hann berst með ólgandi iðustraumum upp í efri lög lofthjúpsins á sama tíma og kaldara efni þrýstist niður. Ólgan í lofthjúpnum veldur gífurlegum birtubreytingum, þeim mestu sem reikistjörnufræðingar hafa nokkurn tímann séð í athugunum sínum. Skýin eru úr stórum og litlum sílíkataögnum. Þær fínustu eru sagðar svipaðar rykögnum í reykjarmekki en þær stærri líkist heitri gosösku eða sandi. „Stærri agnirnar gætu verið meira eins og mjög heitar og mjög smáar sandagnir,“ segir Beth Biller frá Edinborgarháskóla og meðhöfundur greinar um rannsóknina. Tilvist skýjanna er að líkindum hverful. Eftir því sem gasrisinn eldist á næstu milljörðum ára kólnar hann og breytist. Sílíkötin falla þá niður og andrúmsloftið verður heiðskírara. Litrófsgreining á lofthjúpi VHS 1256 b. Aldrei áður hafa svo margar sameindir fundist við eina athugun á fjarreikistjörnu.NASA, ESA, CSA, J. Olmsted (STScI), B. Miles (University of Ariz Skýin víkja fyrir heiðríkju Mælingar Webb-sjónaukans á VHS 1256 b eru sagðar marka tímamót. Með því að litrófsgreina ljós frá reikistjörnunni fann hann merki um vatnsgufu, metan, kolmónoxíð og koldíoxíð í lofthjúpi hennar. Þau efni hafa öll fundust áður í fjarreikistjörnum með öðrum sjónaukum en aldrei öll i einu. Yfirleitt hefur aðeins tekist að finna merki um eitt frumefni eða sameind í einu. Fjarlægð reikistjörnunar frá móðurstjörnunum auðveldaði rannsóknir á henni. Webb-sjónaukinn er næmur fyrir innrauðu ljósi eða hitageislun. Vegna þess hversu langt VHS 1256 b er frá brúnu dvergunum truflaði útgeislun þeirra ekki mælingarnar og Webb gat rannsakað hana beint í stað þess að reiða sig á óbeinar athuganir sem eru algengar í rannsóknum á fjarreikistjörnum.
Geimurinn Vísindi James Webb-geimsjónaukinn Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Litaðir seðlar til skoðunar og málið á mjög viðkvæmu stigi Innlent Forsetavaktin 2024: Hver verður sjöundi forseti lýðveldisins? Innlent Sagðist ætla að nota tíu milljón króna kókaín allt sjálfur Innlent Sér eftir Landsdómsmálinu: „Ég myndi aldrei gera þetta svona aftur“ Innlent „Hinsegin fólk þekkir vel að vera smættað niður í einkalíf sitt“ Innlent Yrði gagnkynhneigður maður spurður sömu spurningar? Innlent Íslenskar stjörnur fái peninga að gjöf til að leggja undir í veðmálum Innlent Hátíðardagskrá víða um land á verkalýðsdaginn Innlent Hjólastólinn í „tengdamömmuboxi“ á toppi bílsins Innlent Gæti dregið til tíðinda á næstu klukkustundum Innlent Fleiri fréttir Stuðningur við dönsku ríkisstjórnina aldrei verið minni Mótmælendur og gagnmótmælendur tókust á Trump sektaður um meira en milljón króna Rússar sagðir nota skotflaugar frá Norður-Kóreu Þrettán ára drengur stunginn til bana með sverði Særði minnst fimm með sverði í Lundúnum Íslendingur sem lúbarði lögreglumenn í Varsjá þarf að borga brúsann Fjórir lögreglumenn skotnir til bana í Charlotte Rostungur sem fannst í fyrra drapst af völdum fuglaflensu Hvetur Hamas til að ganga að rausnarlegum tillögum Ísrael Flugvöllur Færeyinga fær að taka við stærri þotum Yousaf segir af sér sem ráðherra og formaður Skoska þjóðarflokksins Sánchez hættir við að segja af sér Grafið undan fjölmiðlafrelsinu víða í Evrópu Vopnahlé í sjónmáli? Tveir látnir eftir að bíll hafnaði í sjónum við Stokkhólm Fjölmenn mótmæli vegna ofbeldisbylgju í Ástralíu Vasaúr ríkasta manns Titanic seldist á 210 milljónir Þúsundir hvöttu Sánchez til að segja ekki af sér Skoða að færa Mónu Lísu í eigið herbergi Harvey Weinstein lagður inn á spítala Þingmaður hleypti af skoti fyrir utan skemmtistað Rýma dómshús vegna sprengjuhótunar Dómstóll fyrirskipar handtöku landbúnaðarráðherra Selenskís Ákvörðun áfrýjunardómstólsins áfall og stórt skref aftur á bak Trump líklegur til að græða á úrskurði Hæstaréttar Dómi Harvey Weinstein snúið við Tekur fyrir að hafa verið „hermaður Hitlers“ Maður á sextugsaldri sagður hafa stungið grunnskóladreng Sánchez íhugar að segja af sér vegna meintrar spillingar Sjá meira