Arsenal óskar eftir frestun á Norður-Lundúnaslagnum

Arsenal mætti Liverpool í undanúrslitum enska deildabikarsins í gær.
Arsenal mætti Liverpool í undanúrslitum enska deildabikarsins í gær. AFP

Arsenal hefur lagt fram formlega beiðni til ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu um að leik liðsins gegn nágrönnum sínum í Tottenham Hotspur, sem á að fara fram á sunnudaginn, verði frestað.

Nokkur fjöldi leikmanna Arsenal er að glíma við meiðsli eða eru smitaðir af kórónuveirunni, auk þess sem fjórir leikmenn liðsins eru með landsliðum sínum á Afríkumótinu í Kamerún.

Því telur Arsenal sig ekki geta náð í lið fyrir Norður-Lundúnaslaginn sem á að fara fram á Tottenham Hotspur-vellinum síðdegis á sunnudag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert