„Ljótt að plata“ Vésteinn Örn Pétursson skrifar 24. september 2021 23:02 Sigurður Ingi og Þorgerður Katrín tókust á í kvöld. Vísir/Vilhelm „Ég skil sífellt minna í því sem Þorgerður Katrín segir þegar hún byrjar að tala um þennan gengisstöðugleika,“ sagði Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins, í sjónvarpssal í kvöld. Skömmu síðar sakaði hann Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttir, formann Viðreisnar, um að „plata.“
Þar vísaði Sigurður Ingi til stefnu Viðreisnar um að festa gengi krónunnar við Evru. Seðlabankastjóri hefur sagt hugmyndir um slíkt vanhugsaðar að einhverju leyti og að slík aðgerð gæti kallað á hærri stýrivexti. Í leiðtogaumræðum Ríkissjónvarpsins í kvöld var öllum fulltrúum flokkanna gefið færi á að spyrja einn mótframbjóðenda sinna spurningar að eigin vali. Sigurður Ingi ákvað að beina sinni spurningu til Þorgerðar Katrínar, með nokkrum inngangi. „Við vitum öll, og hún veit það, þrátt fyrir að hún tali ekki þannig, að vextir innan Evrópu eru mjög ólíkir. Hún veit alveg að vextir á húsnæðislán eru líka hærri heldur en hún er að tala um,“ sagði Sigurður Ingi. Því næst vísaði hann til staðreyndavaktar Kjarnans, sem sagði í dag að Þorgerður Katrín hefði sett fram hálfsannleik þegar hún sagði mögulegt fyrir Ísland að gera samkomulag við Seðlabanka Evrópu um að tengja gengi krónunnar við Evruna. „Staðreyndin er sú að allt það sem þarf að gerast getum við gert sjálf, en hún er eiginlega að kalla eftir því að Evrópa dragi það yfir okkur.“ Þegar þarna var komið við sögu þótti þáttastjórnendum Sigurður Ingi orðinn heldur langorður í inngangi sínum, og kröfðu hann um að bera upp spurninguna, sem ekki stóð á: „Spurningin er því þessi: Er Viðreisn og Þorgerður Katrín sammála seðlabankastjóranum og er ekki bara ljótt að plata fólk?“ Gagnrýndi „íslenska sérhyggju“ Þorgerður Katrín játti því að það væri einmitt ljótt að plata fólk og sagði að þess vegna skipti máli að fólk fengi heildarmyndina um það að „skyndiloforðaflaumur, eins og til dæmis Framsóknarflokksins í gegnum tíðina,“ fengi fólk alltaf í bakið. „Einhverjar launahækkanir sem er lofað í dag, fólk missir þær daginn eftir af því að gengið fer af stað. Ég tek undir með seðlabankastjóra, því hann er að leggja áherslu á það sem við höfum verið að segja. Það vantar aga í ríkisfjármálin, það vantar aga á vinnumarkaði og við þurfum að tengja okkur stærra svæði.“ Þorgerður Katrín spurði þá Sigurð Inga á móti hvers vegna önnur lögmál ættu að gilda hér á landi en í Evrópu og hvers vegna þörf væri á „íslenskri sérhyggju.“ „Af hverju getum við ekki farið eins og Norðurlöndin og eins og Evrópa, og tryggt hér gengisstöðugleika?“ spurði Þorgerður Katrín. Á þessum tímapunkti töluðu þau Sigurður Ingi og Þorgerður Katrín ofan í hvort annað, en sú síðarnefnda fékk orðið að lokum. „Meira að segja Færeyingar, sem eru tengdir við Evruna, hafa tryggt gengisstöðugleika. Ég var einmitt að lesa grein um ferðaþjónustuna þar sem þeir fagna því að þeir eru með gengisstöðugleika og fyrirsjáanleika fram í tímann. Það er það sem íslenskar útflutningsgreinar eru að kalla eftir. Eigum við ekki að fara aðeins og sækja fram? Ekki þessa kyrrstöðu,“ sagði Þorgerður Katrín þá. Sigurði Inga lét sér þó fátt um finnast við þessi svör, og skaut einfaldlega inn í: „Ljótt að plata.“
Alþingiskosningar 2021 Framsóknarflokkurinn Viðreisn Tengdar fréttir Allir flokkarnir vilja kynjafræði kennda í skólum Síðustu leiðtogaumræður fyrir Alþingiskosningar fóru fram í kvöld þar sem leiðtogar allra þeirra flokka, sem bjóða fram á öllu landinu, komu saman og deildu um stærstu kosningamálin. 24. september 2021 22:01 Lakkrískjóll Katrínar vekur athygli netverja Kjóllinn sem Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra klæddist í leiðtogaumræðum á Ríkissjónvarpinu nú í kvöld, þar sem fulltrúar flokkanna sem bjóða fram til Alþingis mætast, hefur vakið nokkra athygli á samfélagsmiðlum. 24. september 2021 20:21 Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur. Mest lesið Monica Lewinsky fór flatt á því að segja satt Innlent Reiðin kraumaði við ofsaakstur á Reykjanesbraut Innlent Hljóp á eftir stungumanninum um Faxafen með innyflin lafandi út úr sér Innlent Sá sem mölvaði rúðurnar glímir við alvarleg andleg veikindi Innlent Allar rúður brotnar hjá Fiskikónginum við Sogaveg Innlent Magni kaupmaður látinn 88 ára að aldri Innlent Tekist á í Stúdentaráði: „Furðulegasti fundur sem ég hef mætt á“ Innlent Ölfusárbrú opnuð á ný eftir harðan aftanáakstur Innlent Ítarleg úttekt á þjónustu við börn með kynama þungur áfellisdómur Erlent Lýsir letilífi rándýrra hæstaréttardómara Innlent Fleiri fréttir Grindvíkingar boða til mótmæla gegn Þórkötlu Tíma þingsins betur varið í önnur mál Segir „ómanneskjulegt“ álag á foreldrum einhverfra barna Stungumaður þarf að dúsa inni fram að dómi Sagði upp til að annast einhverfa dóttur, vantraust á þingi og bílastæðagjöld Ræða vantrauststillögu Skólabrú með garði á þakinu „djörf og fersk“ tillaga Hætta með safnskóla fyrir grindvísk börn Reiðin kraumaði við ofsaakstur á Reykjanesbraut Lýsir letilífi rándýrra hæstaréttardómara Hljóp á eftir stungumanninum um Faxafen með innyflin lafandi út úr sér Magni kaupmaður látinn 88 ára að aldri Húsfélag ekki skaðabótaábyrgt vegna myglu í séreign Tekist á í Stúdentaráði: „Furðulegasti fundur sem ég hef mætt á“ Fresta gildistöku kjarabóta til öryrkja til að slá á þenslu Monica Lewinsky fór flatt á því að segja satt Sá sem mölvaði rúðurnar glímir við alvarleg andleg veikindi Ölfusárbrú opnuð á ný eftir harðan aftanáakstur Öryrkjar gagnrýna frestun á lagabreytingu og FÍB vill grisja bílastæðafrumskóginn Fleiri gifta sig hjá sýslumanni en í kirkju Sagði höfuðhögg eiga að koma í veg fyrir að lögreglan fengi hann í hendurnar Landlæknir rannsaki ummæli formanns Geðlæknafélagsins Fimmtungur ánægður með störf Einars borgarstjóra Brynjar pirrar sig á undirskriftum gegn Bjarna Umferðaróhapp við Vesturlandsveg Allar rúður brotnar hjá Fiskikónginum við Sogaveg „Allir sem voru á þessum markaði spáðu því að þetta yrði svona“ „Við þurfum að fá einhver viðbrögð“ „Eðlilegt að þingið skeri stjórnina úr snörunni“ Mátti sekta mann sem lagði á eigin lóð Sjá meira
Allir flokkarnir vilja kynjafræði kennda í skólum Síðustu leiðtogaumræður fyrir Alþingiskosningar fóru fram í kvöld þar sem leiðtogar allra þeirra flokka, sem bjóða fram á öllu landinu, komu saman og deildu um stærstu kosningamálin. 24. september 2021 22:01
Lakkrískjóll Katrínar vekur athygli netverja Kjóllinn sem Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra klæddist í leiðtogaumræðum á Ríkissjónvarpinu nú í kvöld, þar sem fulltrúar flokkanna sem bjóða fram til Alþingis mætast, hefur vakið nokkra athygli á samfélagsmiðlum. 24. september 2021 20:21