Lækkun fasteignaskatta vísað til fjárhagsáætlunar

Frá fundi í borgarstjórn Reykjavíkur í haust.
Frá fundi í borgarstjórn Reykjavíkur í haust. mbl.is/Árni Sæberg

Samþykkt var á borgarstjórnarfundi fyrr í kvöld að vísa tillögu Sjálfstæðisflokksins um lækkun fasteignaskatta til gerðar fjárhagsáætlunar fyrir árið 2023.

„Við munum styðja [tillöguna] en við munum líka fylgja henni fast eftir og ganga úr skugga um að skattprósentan muni lækka um næstu áramót,“ sagði Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík á fundinum.

„Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokks fagna því að tillögu flokksins um lækkun fasteignaskatta verði vísað til fjárhagsáætlunar,“ sagði hún einnig.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert