Viðskipti innlent

Árni tekur við af Berg­lindi Rán hjá Orku náttúrunnar

Atli Ísleifsson skrifar
Árni Hrannar Haraldsson.
Árni Hrannar Haraldsson. ON

Orka náttúrunnar hefur ráðið Árna Hrannar Haraldsson í starf framkvæmdastjóra fyrirtækisins og mun hann hefja störf þann 1.maí næstkomandi.

Hann tekur við stöðunni af Berglindi Rán Ólafsdóttur sem nýverið var ráðin forstjóri ORF Líftækni.

Í tilkynningu frá ON segir að Árni Hrannar búi yfir mikilli reynslu sem stjórnandi í íslenskum og alþjóðlegum fyrirtækjum síðustu tuttugu ár.

„Árni hefur búið í Sviss frá árinu 2011 og síðustu ár starfað sem framkvæmdastjóri og borið ábyrgð á aðfangakeðju MSPharma sem er alþjóðlegt lyfjafyrirtæki með starfsemi víða um heim. Þá hefur Árni Hrannar einnig gegnt lykilhlutverkum hjá Xantis Pharma í Sviss, Actavis og 66° Norður,“ segir í tilkynningunni. 

Árni Hrannar er fimmtugur, giftur með þrjú börn og alinn upp í Hafnarfirði þar sem hann gekk í grunnskóla og framhaldsskóla. Hann lauk B.SC. námi í efnafræði frá Háskóla Íslands árið 1997 og M.SC. gráðu í rekstrarverkfræði frá Danmarks Tekniske Universitet (DTU) árið 2000.

Haft er eftir Helgu Jónsdóttur, stjórnarformanni ON, að Árni Hrannar hafi mikla alþjóðlega reynslu sem yfirmaður í markaðsleiðandi lyfjafyrirtækjum. „Þá hefur hann yfirgripsmikla og fjölbreytta þekkingu á öllum sviðum virðiskeðjunnar hvort sem það eru innkaup, rekstur, framleiðsla eða stýring á flóknum aðfangakeðjuferlum sem dæmi. Þetta eru allt hlutir sem munu nýtast okkar fyrirtæki vel auk þess sem metnaður og sýn Árna Hrannars fer vel saman við þá vegferð sem Orka náttúrunnar er á,“ segir Helga.


Tengdar fréttir





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×