Liverpool dróst á móti úrvalsdeildarliðinu Aston Villa á útivelli þegar dregið var til 3. umferðar ensku bikarkeppninnar í kvöld.
Viðureign liðanna er líklega sú stærsta í umferðinni og afar áhugaverð, ekki síst fyrir þær sakir að Aston Villa vann óvæntan stórsigur á Englandsmeisturunum, 7:2, á Villa Park í haust. Á þessu stigi keppninnar koma úrvalsdeildarliðin inn. Úrvalsdeildarliðin Arsenal og Newcastle drógust einnig saman.
Gylfi Þór Sigurðsson og liðsfélagar hjá Everton taka á móti Rotherham og Jóhann Berg Guðmundsson og samherjar í Burnley fengu heimaleik gegn MK Dons. Daníel Leó Grétarsson og samherjar hans í Blackpool fá úrvalsdeildarliðið WBA í heimsókn. Þá leika Jón Daði Böðvarsson og félagar í Millwall við utandeildaliðið Boreham Wood.
Utandeildarlið Marine fær Jose Mourinho og Tottenham í heimsókn sem verður athyglisverð viðureign en Marine leikur í raun í 8. deild. Aðeins einu sinni áður hefur lið úr þeirri deild komist í 3. umferð keppninnar.
Chelsa fær Morecambe í heimsókn en liðið leikur í d-deildinni.
Manchester United tekur á móti Watford og Manchester City á móti Birmingham.
3. umferð FA bikarkeppninnar:
Huddersfield Town - Plymouth Argyle
Southampton - Shrewsbury Town
Chorley - Derby County
Marine - Tottenham Hotspur
Wolverhampton Wanderers - Crystal Palace
Stockport County - West Ham United
Oldham Athletic - Bournemouth
Manchester United - Watford
Stevenage - Swansea
Everton - Rotherham
Nottingham Forest - Cardiff
Arsenal - Newcastle
Barnsley - Tranmere Rovers
Bristol Rovers - Sheffield United
Boreham Wood - Millwall
Blackburn Rovers - Doncaster
Stoke City - Leicester
Wycombe - Preston
Crawley - Leeds
Burnley - MK Dons
Bristol City - Portsmouth
QPR - Fulham
Aston Villa - Liverpool
Brentford - Middlesbrough
Manchester City - Birmingham
Luton - Reading
Chelsea - Morecambe
Exeter - Sheffield Wednesday
Norwich - Coventry
Blackpool - West Brom
Newport County - Brighton
Cheltenham - Mansfield