17. mars 2023 kl. 10:14
Erlendar fréttir

Slóvakar senda Úkraínumönnum herþotur

Stjórnvöld í Slóvakíu ætla að senda 13 MiG-29 herþotur til Úkraínu. Forsætisráðherra landsins, Eduard Heger, tilkynnti ákvörðunina í morgun. Þar með verður Slóvakía annað aðildarríkið í Atlantshafsbandalaginu sem leggur Úkraínumönnum til þotur. Pólverjar tilkynntu um það sama í gær. Slóvakar ætla einnig að senda Úkraínumönnum loftvarnakerfi.

Stjórnvöld í Rússlandi hafa brugðist ókvæða við tíðindunum og segjast ætla að eyðileggja þoturnar sem Pólverjar og Slóvakar senda.