Risabreyting hjá Anníe Mist á næstu heimsleikum í CrossFit Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 26. janúar 2022 09:31 Anníe Mist Þórisdóttir varð í þriðja sæti á síðustu heimsleikum en mun ekki keppa sem einstaklingur á heimsmeistaramótinu í ár. Skjámynd/Instagram/@anniethorisdottir Íslenska CrossFit goðsögnin Anníe Mist Þórisdóttir ætlar sér að keppa á næstu heimsleikum en hún verður þó í allt öðru hlutverki en hingað til.
Anníe Mist tilkynnti á samfélagsmiðlum sínum að hún sé búin að setja saman lið og ætli því ekki að keppa í einstaklingskeppninni á 2022 tímabilinu heldur í liðakeppninni. Liðið hennar verður þjálfað af manni hennar Frederik Ægidius en væntanlegir liðsfélagar okkar konu eru engir aukvisar heldur þau Lauren Fisher, Khan Porter og Tola Morakinyo. Blaðamenn Morning Chalk Up hafa trú á þessu liði og slá því upp að Anníe Mist sé búin að setja saman sannkallað ofurlið. View this post on Instagram A post shared by Annie Thorisdottir (@anniethorisdottir) Anníe Mist hefur tvisvar sinnum orðið heimsmeistari kvenna í CrossFit og vann bronsið á síðustu heimsleikum þar sem hún var að verðlaunapallinum í sjötta sinn á ferlinum. Fyrstu heimsleikar Anníe voru árið 2009 og þrátt fyrir þessa breytingu í ár þá er hún þó ekki búin að útiloka það að keppa sem einstaklingur aftur. „Ég algjörlega elskaði síðasta tímabil og er svo þakklát fyrir hvað allt gengur vel á æfingum. Ég er enn að verða betri og ég er mjög spennt fyrir komandi tímabili,“ skrifaði Anníe Mist Þórisdóttir á Instagram síðu sína. Hún hefur aldrei keppt í liðakeppni á heimsleikum en hefur þó tekið þátt í liðakeppni á öðrum mótum. Hún myndaði Rogue Team Balck árið 2016 með þeim Rich Froning, Josh Bridges og Katrínu Tönju Davíðsdóttur. Þá vann Anníe Mist WOW stronger mótið bæði 2017 og 2018 og þá unnu hún og Katrín Tanja saman Butcher’s Classic mótið árið 2019. View this post on Instagram A post shared by Morning Chalk Up (@morningchalkup) „Ég hef viljað vera hluti af liði í þó nokkurn tíma en hef aldrei látið verða að því. Rétta tækifærið gafst aldrei en fyrir 2022 tímabilið þá passaði þetta allt svo vel,“ skrifaði Anníe Mist. „Þetta þýðir samt ekkert fyrir 2023 tímabilið. Ég tek alltaf bara eitt ár í einu en þið getið ekki ímyndað ykkur hvað ég er spennt fyrir því að æfa og vinna með þeim Lauren Fisher, Khan Porter og Tola Morakinyo,“ skrifaði Anníe Mist. „Ég hef kannski verið að keppa sem einstaklingur allan minn feril en ég hef samt aldrei verið ein. Nú fæ ég tækifæri til að stækka liðið mitt og upplifa skin og skúri á keppnisgólfinu þremur nýjum liðsfélögum mínum,“ skrifaði Anníe.
CrossFit Mest lesið Tiger og McIlroy hunsuðu hvorn annan Golf Klopp enn fúll út í Maddison eftir að Liverpool missti af titlinum 2019 Enski boltinn Barcelona þarf tæplega tuttugu milljarða fyrir lok júnímánaðar Fótbolti Snorri Barón um Söru: „Ógeð sem enginn á að þurfa að ganga í gegnum“ Sport NFL tekur ekki undir umdeild ummæli Butker Sport McIlroy í baráttunni þrátt fyrir yfirvonandi skilnað Golf Uppgjörið og viðtöl: Keflavík - Njarðvík 94-91 | Tvíframlengdur spennutryllir Körfubolti „Frábært að ná sigri í fyrsta leik og í svona svakalegum leik“ Körfubolti Uppgjörið, viðtöl og myndir: Valur - Haukar 28-25 | Valskonur Íslandsmeistarar Handbolti „Ég táraðist smá“ Sport Fleiri fréttir Fyrsta HM stelpnanna okkar verður vonandi í Brasilíu 2027 Snorri Barón um Söru: „Ógeð sem enginn á að þurfa að ganga í gegnum“ Klopp enn fúll út í Maddison eftir að Liverpool missti af titlinum 2019 Tiger og McIlroy hunsuðu hvorn annan NFL tekur ekki undir umdeild ummæli Butker Dagskráin í dag: PGA-meistaramótið í golfi, úrslit í körfu karla og margt fleira Barcelona þarf tæplega tuttugu milljarða fyrir lok júnímánaðar „Frábært að ná sigri í fyrsta leik og í svona svakalegum leik“ „Svíður mjög mikið að við séum ekki nógu klókar til að klára“ McIlroy í baráttunni þrátt fyrir yfirvonandi skilnað Uppgjörið og viðtöl: Keflavík - Njarðvík 94-91 | Tvíframlengdur spennutryllir „Ég táraðist smá“ „Manni finnst nýjasti bikarinn alltaf sætastur“ Börsungar styrktu stöðu sína í öðru sæti Uppgjörið, viðtöl og myndir: Valur - Haukar 28-25 | Valskonur Íslandsmeistarar Bikarmeistarar Víkings í næstu umferð ásamt Keflavík og Fylki Uppgjör: Stjarnan - KR 5-3 | Endurkoma KR-inga hófst of seint gegn Stjörnunni Leeds í úrslit um sæti í ensku úrvalsdeildinni Íslendingarnir gerðu lítið þegar Skara féll úr leik Sverrir Ingi á toppinn í Danmörku Kolbeinn lagði upp jöfnunarmark Gautaborgar Jafnt í Íslendingaslag í undanúrslitum Viðar Ari skoraði og lagði upp í ótrúlegum sigri Stefán Teitur skoraði þegar Silkeborg lagði AGF annað sinn UEFA setur pressu á City Football Group Fyrirliði 21 árs landsliðs Svía skiptir um landslið Tímabilið búið hjá Ederson og City treystir á Ortega í síðustu tveimur leikjunum Margrét Lára: Mér finnst hún hafa verið stórkostleg Chelsea sló spjaldametið í deildinni Besti Belginn í Subway deildinni samdi við Hauka Sjá meira