Minnist bróður síns sem féll frá um helgina: „Hjartað þitt var úr gulli og þú barðist fyrir lífinu þínu“ Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar 4. apríl 2021 20:57 Guðný Sigríður Eiríksdóttir minnist bróður síns, Daníels Eiríkssonar, með hlýju. Maðurinn sem lést af áverkum sem hann hlaut fyrir utan heimili sitt í Kórahverfi í Kópavogi á föstudaginn langa hét Daníel Eiríksson. Daníel var fæddur árið 1990 en einn maður situr í gæsluvarðhaldi í þágu rannsóknarhagsmuna vegna andlátsins.
Systir Daníels, Guðný Sigríður Eiríksdóttir, minnist bróður síns í fallegri kveðju á Facebook-síðu sinni í dag. „Elsku besti litli bróðir minn. Ég vil ekki trúa að þú sért farinn frá okkur. Þetta er svo ósanngjarnt og óraunverulegt... Þú áttir þetta ekki skilið,“ skrifar Guðný, sem gaf Vísi góðfúslegt leyfi til að vitna í færsluna. Hún lýsir bróður sínum sem hjálpsömum og góðum dreng sem hafi ekkert aumt mátt sjá. „Það kom þér stundum í vandræði og þú mættir alltaf ósigrandi til leiks. Þú varst svo hraustur með óteljandi líf! Hjartað þitt var úr gulli og þú barðist fyrir lífinu þínu. Hjartað þitt vildi ekki hætta að slá. Þú þráðir svo heitt að lifa eðlilegu lífi elsku Daníel minn og stóðst þig eins og hetja. Þú varst klettur fyrir svo marga síðustu mánuði,“ skrifar Guðný. Hún segir erfitt að hugsa til þess að geta ekki lengur hringt í bróður sinn, skutlað honum um og notið samverustunda með honum og fjölskyldunni. „En ég veit að þú vakir yfir okkur & heyrir í okkur,“ skrifar Guðný meðal annars. „Er svo þakklát fyrir fallegu kveðjustundina sem við áttum með þér. Hvíldu í friði elsku litli bróðir minn. Elska þig að eilífu.“ Einn í gæsluvarðhaldi Líkt og fram hefur komið í fréttum hefur lögreglan til rannsóknar hvernig andlát Daníels bar að og situr einn maður í gæsluvarðhaldi vegna málsins á grundvelli rannsóknarhagsmuna. Grunur leikur á að bíl hafi verið ekið á Daníel en upphaflega voru þrír rúmenskir karlmenn handteknir vegna málsins. Tveimur þeirra hefur verið sleppt. Símasamskipti sem lögregla fann í síma Daníels leiddu til þess að mennirnir voru handteknir. Meðal þess sem lögregla rannsakar nú er hvort einhver vitni hafi orðið að atvikinu en sá er sætir gæsluvarðhaldi hefur borið fyrir sig að um slys hafi verið að ræða. Margeir Sveinsson aðstoðaryfirlögregluþjónn vildi í samtali við Rúv fyrr í kvöld ekki gefa upp hvort andlátið sé rannsakað sem manndráp en til rannsóknar sé hvernig hinn látni hlaut þá áverka sem hann var með.
Lögreglumál Mannslát í Vindakór Mest lesið Fengu ekkert merki frá þyrlunni sem hrapaði með forsetann um borð Erlent OpenAI hættir notkun raddar eftir inngrip lögmanna Johansson Erlent Katrín leiðir í nýrri könnun Prósents Innlent Mikill viðbúnaður vegna bráðra veikinda Innlent Netanjahú hafnar handtökuskipuninni Erlent Réttað yfir Hinrik XIII og öðrum leiðtogum valdaránstilraunar Erlent „Viðurkenning á því að þetta er blaðamennska sem hann var að stunda“ Innlent Fyrsti stríðsþristurinn lentur Innlent 80 til 120 herskip lágu í Hvalfirði Innlent Ráðherrar hafi verið ítrekað varaðir við gjöf Haraldar Innlent Fleiri fréttir Katrín leiðir í nýrri könnun Prósents „Viðurkenning á því að þetta er blaðamennska sem hann var að stunda“ Þolinmæði saminganefnda á þrotum Gæsluvarðhald yfir Davíð Viðarssyni framlengt 80 til 120 herskip lágu í Hvalfirði Fyrsti stríðsþristurinn lentur Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna sé vanhæft til að takast á við aðstæðurnar Handtökuskipun á hendur forsætisráðherra og kjaradeila Séra Eva Björk ráðin biskupsritari Fimm stríðsþristar á leiðinni til landsins Samningur BÍ í höfn í Karphúsinu Ráðherrar hafi verið ítrekað varaðir við gjöf Haraldar Sungið og sungið á Sauðárkróki „Ég stóð bara með sóttvarnalækni“ Mikill viðbúnaður vegna bráðra veikinda Ósk um handtökuheimild og deilur um Erfðagreiningu Erfitt að ímynda sér meiri harðlínumann en Raisi Sat saklaus í unglingafangelsi í tvö ár Frambjóðendur geti nýtt sér skoðanakannanir Glæsilegt fuglasafn í veiðihúsinu við Hítará Varasamt að ferðast á sumardekkjum í kvöld Óttast um afdrif Íransforseta og ferðaveðrið í beinni Stuðningur Katrínar við sóttvarnarlækni sjálfsagður „Fólk er bara að bíða“ Tveir prestar og tveir djáknar vígðir í Skálholti Lægð yfir landinu og snjókoma fyrir norðan Áfall þegar samskipti Katrínar og Kára voru birt Aukin skjálftavirkni og erjur um Erfðagreiningu Örlítil aukning í skjálftavirkni undir Svartsengi Forsetakosningar, mansal og samningar Reykjavíkur við olíufélögin Sjá meira