Fámennt á áhorfendapöllunum

Íslenskir stuðningsmenn í leiknum gegn Dönum.
Íslenskir stuðningsmenn í leiknum gegn Dönum. Ljósmynd/Szilvia Micheller

Flestir Íslendinganna sem hvatt hafa liðið á áhorfendapöllunum í Búdapest á EM í handknattleik virðast vera farnir heim til Íslands. 

Fámennt er í stúkunni í höllinni glæsilegu en þó skal skýrt tekið fram að þeir Íslendingar sem eru láta vel í sér heyra og eru öll klætt í blátt. Okkar menn munu því taka eftir okkar fólki gegn Króötum. 

En hópurinn er mun fámennari en í riðlakeppninni. Er þetta fyrsti leikur dagsins og danskir stuðningsmenn sem fóru að hvetja Ísland gegn Frakklandi eru ekki komnir. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert